Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021FRÉTTIR
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR
Mesta lækkun
REITIR
-5,48%
63,80
Mesta hækkun
ARION
+3,59%
122,75
S&P 500 NASDAQ
+2,60%
13.459,921
+1,36%
3.881,51
-0,18%
6.639,69
FTSE 100 NIKKEI 225
3.9.'20
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
63,66
-2,52%
29.408,17
2.3.'21
70
30
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
44,07
ÁLVERÐ ($/tonn)
24.8.'20 16.2.'21
1.500
2.153,68
2.000
1.800
1.770,35
HÚSGÖGN
Þegar hið opinbera ræðst í fram-
kvæmdir og innkaup er mikilvægt
að íslenskir hönnuðir og framleið-
endur sitji við sama borð og innflytj-
endur og erlendir framleiðendur. Ef
fyrsta hugsun er alltaf sú að sækja
vörur og þjónustu til útlanda verður
aldrei til öflugur innlendur iðnaður.
Þetta segir Guðmundur Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri Á. Guðmunds-
son, en tilefnið er væntanleg kaup
hins opinbera á húsgögnum í ný-
byggingum í miðborginni.
T.d. hafa fulltrúar Landsbankans
ferðast til Lundúna við undirbúning
nýrra höfuðstöðva til að kynna sér
verkefnamiðaða vinnuaðstöðu.
Átak um að kaupa íslenskt
Jóhanna Klara Stefánsdóttir,
sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá
Samtökum iðnaðarins, sagði í sam-
tali við ViðskiptaMoggann í síðustu
viku að þetta væri athyglisvert í ljósi
þess að stjórnvöld stæðu nú fyrir
átaksverkefninu Látum það ganga,
sem gengur út á að hvetja til kaupa á
íslenskri vöru og þjónustu.
Guðmundur tekur undir með Jó-
hönnu og segir val á íslenskri þjón-
ustu hafa margfeldisáhrif.
Þá sé alþekkt í Evrópu að lönd
geri innlendri hönnun og framleiðslu
hærra undir höfði með ýmsum leið-
um. Það sé ljóst að umræddar ný-
byggingar muni vekja mikla athygli,
jafnvel út fyrir landsteinana og því
sé það kjörið tækifæri til að gefa ís-
lenskum iðnaði byr undir báða
vængi. thor@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Guðmundur Ásgeirsson gagnrýnir
innkaupastefnu hins opinbera.
Bitnar á
íslenskum
iðnaði
Ný reglugerð Evrópusambandsins
um nýtingu afgreiðslutíma á flug-
völlum tók nýverið gildi. Reglu-
gerðin felur í sér umtalsverðar
breytingar á gildandi fyrir-
komulagi en flugrekendur hafa frá
því heimsfaraldur kórónuveiru kom
upp starfað á undanþágu. Und-
anþágan fól í sér að umræddir
flugrekendur þurftu ekki að upp-
fylla 80% nýtingarhlutfall til að
halda afgreiðslutímum. Almennt
hafa flugrekendur þurft að nýta af-
greiðslutíma til að halda svoköll-
uðum hefðarrétti. Í ljósi aðstæðna
var ákveðið að veita undanþágu frá
þessum skilyrðum.
Því hefur þó verið breytt og mun
ný reglugerð taka gildi síðar í
mánuðinum. Í henni felast þó
ákveðnar tilslakanir þar sem krafa
um nýtingarhlutfall hefur verið
lækkuð úr 80% í 50%. Sömuleiðis
þarf ekki að uppfylla nýtingarhlut-
fallið á tímabilum þar sem tíma-
bundnar lokanir og ferðatakmark-
anir eru í gildi.
Icelandair í góðri stöðu
Ásdís Ýr Pétursdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, segist
ekki eiga von á því að flugfélagið
missi verðmæta afgreiðslutíma á
Keflavíkuflugvelli vegna þessa. Í
reglugerðinni er enn fremur kveðið
á um að flugrekendur geti skilað
allt að helmingi af úthlutuðum af-
greiðslutímum fyrir sumarið en
haldið hefðarrétti sumarið 2022.
„Við þurfum að uppfylla skilyrði
reglnanna á hverjum tíma en við
getum hins vegar skilað umtals-
verðu magni af afgreiðslutímum
núna og haldið okkar rétti að þeim
fyrir sumarið 2022 og munum gera
það í einhverjum tilfellum. Síðan
eru undanþágur frá reglunum
vegna aðgerða stjórnvalda á landa-
mærum sem kunna að leiða til þess
að þær gildi ekki á ákveðnum tíma-
bilum á ákveðnum áfangastöðum.“
Undanþágur frá reglum hafa
verið veittar í Bandaríkjunum og
Kanada, auk þess sem Bretland
hefur kynnt talsvert rýmri reglur
en gilda í Evrópu. Aðspurð segist
Ásdís ekki eiga von á því að Ice-
landair kunni að eiga á hættu að
missa afgreiðslutíma á erlendum
flugvöllum. „Við gerum ekki ráð
fyrir því en við munum halda
áfram að vinna samkvæmt reglu-
gerðinni að því að lágmarka þá
áhættu fyrir sumarið 2022,“ segir
hún og bætir við að félagið telji sig
geta haldið uppi nægilegri nýtingu.
„Við teljum svo vera en strangar
ferðatakmarkanir á landamærum
hafa auðvitað áhrif en það eru
ákveðnar undanþágur frá regl-
unum ef strangar ferðatakmark-
anir eru í gildi sem hafa áhrif á
nýtingu afgreiðslutímanna.“
Úthlutun afgreiðslutíma á Kefla-
víkurflugvelli er á forræði Nordic
Airport Coordination sem sér um
slíka úthlutun á Norðurlöndum. Að
sögn Guðjóns Helgasonar, upplýs-
ingafulltrúa Isavia, hefur Isavia
ekkert með málið að gera. Að-
spurður segir hann að Icelandair
greiði nú lendingargjöld á Kefla-
víkurflugvelli en þau höfðu áður
verið felld niður í kjölfar faraldurs.
Ólíklegt að Icelandair tapi
hefðarrétti á flugvöllum
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nýjar reglur um afgreiðslu-
tíma á flugvöllum í Evrópu
taka gildi síðar í mán-
uðinum. Flugfélög verða
að ná 50% nýtingarhlutfalli.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugvél Icelandair skammt frá Keflavíkurflugvelli. Félagið þarf nú að búa sig
undir breytingar á reglugerð er varðar afgreiðslutíma á flugvöllum.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Fasteignafélagið Eik hagnaðist um
693 milljónir króna í fyrra og dróst
hagnaðurinn saman um 2.275 millj-
ónir frá árinu 2019. Munar þar lang-
mestu um að matsbreytingar fjár-
festingareigna voru jákvæðar um 594
milljónir í fyrra en höfðu verið já-
kvæðar um 2.170 milljónir ári fyrr.
Rekstrartekjur námu 8.345 millj-
ónum og drógust þær saman um 311
milljónir milli ára. Rekstrarkostn-
aður lækkaði einnig milli tímabila,
nam 2.885 milljónum og dróst saman
um 179 milljónir króna. Virðisrýrnun
viðskiptakrafna jókst mjög milli ára
og nam 421 milljón í stað 31 milljónar
árið 2019. Segir Garðar Hannes Frið-
jónsson, forstjóri félagsins, að árið
2020 hafi verið krefjandi. Áhersla
hafi verið lögð á að veita leigutökum
aðstoð þar sem hennar var þurfi, ekki
síst með sveigjanleika þegar kom að
greiðslum.
Fjárfestingareignir Eikar voru
metnar á 98,4 milljarða króna í árslok
2020 og höfðu aukist frá fyrra ári
þegar þær voru metnar á 95,9 millj-
arða króna. Eigið fé félagsins stóð í
33,2 milljörðum og hafði dregist sam-
an um 350 milljónir. Skuldir námu
72,8 milljörðum og höfðu aukist um
ríflega 2.800 milljónir milli ára. Var
eiginfjárhlutfall félagisns 31,3%.
Stjórn Eikar mun leggja það til við
aðalfund félagsins 25. mars að
greiddur verði út arður til hluthafa að
fjárhæð 650 milljónir króna.
Hagnaður Eikar nam 693 milljónum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri
segir liðið ár hafa reynst krefjandi.