Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 7
snemma á næsta ári. „Byggingin kemur sem við- bót við núverandi framleiðslubyggingu okkar. Hún er því byggð meðfram Fosshálsinum og verður um 1.700 fermetrar. Þarna munum við geta framleitt vörur með hagkvæmari hætti en á gömlu vélunum.“ Spurður frekar út í útflutning á vörum Ölgerð- arinnar segir Andri að fyrirtækið sé nú þegar í smávægilegum útflutningi. Til að mynda hafi talsverður áhugi verið á Borgar-bjórum. „Við höfum verið að flytja eitthvað út af bjór í gegnum árin. Það hefur ekki verið mjög stórt og við höf- um ekki sett mikinn fókus á það. Þess utan höf- um við selt talsvert af íslensku vatni til Banda- ríkjanna. Íslenskur iðnaður er auðvitað ekkert sérstaklega samkeppnishæfur í verði þegar kem- ur að útflutningi. Einingakostnaður okkar er auðvitað umtalsvert hærri heldur en hjá fyrir- tækjum erlendis. Það sem við getum aftur á móti boðið eru virðisvörur, eins og til dæmis Borg eða Collab. Við förum seint að flytja út Kristal eða Appelsín í dós. Þetta verða að vera einstakar vörur sem hægt er að selja á hærra verði. Við leggjum mikla áherslu á þróun eigin vörumerkja eins og Collab, Borg og 105 vatn.“ Undanfarin misseri hafa næringarfræðingar og heilsuráðgjafar stigið fram og lýst yfir áhyggjum af óhóflegri koffínneyslu ungmenna. Collab og 105 vatn, sem framleiddir eru af Öl- gerðinni, flokkast með koffíndrykkjum. Spurður hvort Ölgerðin sé með sölu á Collab og 105 vatni að ýta undir inntöku óhóflegs magns á koffíni meðal ungmenna kveður hann nei við. „Það sem verið er að vekja athygli á er að neysla drykkj- anna í óhófi getur verið skaðleg fyrir ungt fólk. Collab er ekki stílaður inn á þann markhóp enda erum við ekki að selja orkudrykk heldur erum við með lífsstíls- og heilsudrykk á fullorðins- markaði. Til marks um það má benda á að við er- um að koma á markaðinn með nýjan Collab sem verður án koffíns. Við erum að sjá neyslu á kaffi dragast saman og er ekki bara jákvætt að vörur eins og 105 vatn, sem er bara kolsýrt vatn og koffín, komi þar í staðinn? Ég held að það sé mjög gott en ber á sama tíma fulla virðingu fyrir því heilsuverndarsjónarmiði sem verið er að berjast fyrir,“ segir Andri og bætir við að vöruþróun Ölgerðarinnar muni í meira mæli fær- ast í átt að heilsu- og lífsstílsdrykkjum. „Það er ekkert leyndarmál að við erum að færa okkur meira í átt að vörum sem eru enn heilnæmari fyrir neytandann. Þangað stefnir heimurinn og nýtt húsnæði og vélar munu gera okkur kleift að fara þangað af auknum krafti.“ Sykurlausir drykkir að taka yfir Nú er hlutdeild sykraðra drykkja á gos- drykkjamarkaði um 38%. Sykurlausir drykkir telja því um 62% af heildarsölu gosdrykkja sem er umtalsverð breyting á nokkrum árum. Spurn eftir sykruðum drykkjum hefur dregist hratt saman og svo virðist sem ekkert lát sé á þeirri þróun. Þrátt fyrir þessa þróun kemur reglulega upp umræða um upptöku sykurskatts. Hafa ákveðnir stjórnmálamenn talað fyrir hærri álög- um á vörur sem innihalda sykur. Andri segir að allar slíkar hugmyndir séu dæmdar til að mistak- ast. „Ég hef ekki trú á neyslustýringu og það er alltaf dæmt til að mistakast. Ég furða mig á þess- ari vinnu og hugmyndum vegna þess að neyt- endur hafa nú þegar valið án þess að ríkið segi fyrir verkum. Mikill minnihluti okkar drykkja er sykraður og við erum að sjá mikinn vöxt í drykkjum eins og Kristal og Pepsi Max. Af öllum gosdrykkjum sem Ölgerðin selur eru aðeins um 31% með sykri. Við þurfum ekki stóra bróður til að segja okkur fyrir verkum. Síðasta tilraun sem gerð var með sykurskattinn mistókst hrapalega. Fyrir utan þetta allt saman þá hafa þessar til- lögur verið byggðar á röngum og gömlum tölum. Við höfum margsinnis boðið upp á samtal við yfirvöld en við því hefur aldrei verið orðið,“ segir Andri og heldur áfram: „Menn ættu kannski frekar að spyrja sig; ef hlutfall sykraðra drykkja minnkar stöðugt en þjóðin þyngist á sama tíma, er rótin þá ekki einhver önnur?“ Pepsi Max vinsælasti drykkur landsins Eins og fyrr segir hefur hlutfall sykurlausra drykkja minnkað umtalsvert undanfarin ár. Meðal sykurlausra drykkja sem notið hafa mik- illa vinsælda eru Pepsi Max og Kristall. Pepsi Max er jafnframt helsta samkeppnisvara Ölgerð- arinnar gagnvart Coca Cola, sem framleitt er af CCEP á Íslandi. Nú er svo komið að drykkurinn er orðinn söluhæsti gosdrykkur landsins og selst þannig betur en hið hefðbundna rauða kók. Hlut- deild Pepsi Max heldur jafnt og þétt áfram að aukast en frá og með miðju síðasta ári hefur bilið einungis aukist. „Árið 2006 settum við okkur markmið um að verða stærri en Vífilfell, og átti það við um heildarsölu gosdrykkja. Við náðum því markmiði tveimur árum síðar og settum okk- ur í framhaldinu enn stærra markmið sem var að gera Pepsi stærra en kók. Það gengur þrusuvel og við höfum unnið í því síðustu ár. Staðan núna er þannig að Pepsi Max er orðið stærra en rautt kók. Raunar er það ekki eini drykkurinn sem selst oft og tíðum betur en rautt kók því Kristall er þar sömuleiðis.“ Er þetta eina landið þar sem hlutdeild Pepsi er svona mikil? „Nei, ég veit að í Noregi og Bretlandi selst Pepsi Max betur en kók. Ég veit samt ekki um mörg lönd þar sem staðan er svoleiðis.“ Hver er lykillinn á bak við þennan árangur? „Frábær vara. En einnig stöðugleiki í mark- aðsmálum og margir aðrir samverkandi þættir. Varðandi okkar viðskiptavini, sem sagt verslanir og veitingastaði, þá erum við klárlega orðin þeirra fyrsta val meðal annars vegna vöruflóru okkar sem hentar breyttum lífsstíl neytenda. Það sem fær þá líka til að velja okkur frekar en samkeppnina er ástríða starfsmanna okkar sem smitar frá sér. Við höfum afar gaman af þessu enda er þetta keppni. Menningin hjá okkur er menning sigurvegara og við erum þarna úti til að vinna.“ Veiran hafði talsverð áhrif Ljóst er að heimsfaraldur kórónuveiru hafði talsverð áhrif á Ölgerðina líkt og fjölmörg önnur fyrirtæki. Veitingastaðir og hótel voru um fimmtungur af veltu fyrirtækisins, en sala til umræddra aðila hrundi. „Þetta var talsverður skellur fyrir okkur. Árið í heild sinni er kannski 70%-75% niður í þessum flokki og það er kannski fyrst núna sem þetta er aðeins að réttast við. Að sama skapi jókst salan líka í óáfengum drykkjum og matvöru í stórverslunum. Það var þó engan veginn nóg til að bæta upp þetta tekjutap. Við fórum því í ýmsar hagræðingaraðgerðir í rekstr- inum og við erum að skila fínni afkomu.“ Þið ákváðuð samt sem áður að þiggja hluta- bætur. Hvers vegna? „Við gerðum það en endurgreiddum þær síð- an. Við vissum á þessum tíma ekkert í hvað stefndi og þetta var gert til að viðhalda ráðning- arsambandi. Við hefðum þurft að fara í umfangs- meiri uppsagnir ef ekki hefði verið fyrir hluta- bæturnar. Þetta þjónaði því tilgangi og við endurgreiddum síðan bæturnar þegar í ljós kom að við þurftum ekki stuðninginn.“ Stefnt að skráningu í Kauphöll Að lokum færist samtal okkar að framtíðinni en Andri er með mörg járn í eldinum. Auk nokk- urra milljarða króna framkvæmdar stefnir Öl- gerðin nú að skráningu á markað á næstu tveim- ur árum. Fyrirtækið setti sér markmið um skráningu í Kauphöll fyrir um sex árum og segir Andri að það standi enn. „Það er verið að und- irbúa skráningu í Kauphöll árið 2022 eða 2023. Þetta er 108 ára gamalt fyrirtæki með traustan rekstur en jafnframt vaxtarmöguleika. Við trú- um því að við eigum fullt erindi inn á markað en þar höfum við greiðara aðgengi að fjármagni. Við höfum hug á því að stækka með samrunum og með skráningu tel ég að svoleiðis viðskipti geti gengið greiðar fyrir sig.“ Hvers lags fyrirtæki viljið þið helst taka yfir? „Við erum fyrst og fremst í matvöru og horf- um helst til hraðsöluvara. Sameining í innlendri matvælaframleiðslu er því efst á blaði. Við erum líka stórir í snyrtivörum og erum inni í stór- mörkuðum í gegnum Danól. Við erum með alla grunninnviði og trúum að með samruna getum við innleyst talsverða samlegð til hagsbóta fyrir alla hagaðila.“ Hvert stefnir Ölgerðin til næstu ára? „ Við viljum skapa eftirsóttasta vinnustað landsins og til þess að svo megi verða þurfum við að einbeita okkur að ákveðnum hlutum á næstu árum. Ætlum að sækja stærri hlutdeild og vinna í samkeppninni um hylli neytenda. Það er alveg augljós munur á stefnu okkar og helsta keppi- nautarins. Þeir láta framleiða fyrir sig vörur er- lendis á meðan við erum að fjárfesta háum fjár- hæðum á Íslandi. Okkar stefna er að setja pening í verkefni hér innanlands og skapa ís- lensk störf sem stuðla að minni kolefnislosun. Þannig ætlum við að keppa og ég trúi því að við munum vinna.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 2012-2020 Hlutfall sykurlausra drykkja hjá Ölgerðinni 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% Heimild: Ölgerðin2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 40% 45% 50% 57% 69% MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 7VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.