Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 4
Þ
etta byrjaði sennilega á því að ég
gerði mig ekki upptekna við að
fylgjast með árangri annarra
heldur nýtti ég minn tíma í að
plana minn eigin árangur og
fylgdist með öðrum, til að tileinka mér góða
hluti og læra,“ segir Elín Káradóttir, eigandi
og löggiltur fasteignasali á Byr fasteignasölu
í Hveragerði. Hún er líka markþjálfi og hef-
ur í mörg ár hjálpað fólki að taka til í lífi
sínu. Elín rekur fasteignasöluna ásamt eig-
inmanni sínum, Sigurði Vilberg Svavarssyni,
eða Sigga eins og hún kallar hann. Hann
sagði upp sinni vinnu í lok árs 2019 til að ein-
falda líf fjölskyldunnar og byrjaði að vinna á
fasteignasölunni með Elínu og dreif sig svo í
nám til löggildingar fasteignasala nú í haust.
„Siggi er viðskiptafræðingur og verk-
efnastjóri frá Háskólanum í Reykjavík og
það var mikil lukka að fá hann með mér í að
reka fasteignasöluna. Margir sögðu að
það væri ekki hægt að vinna með
makanum sínum en þetta geng-
ur vel upp hjá okkur,“ segir
Elín.
Þegar hjónin fluttu í
Hveragerði í febrúar 2016
þekktu þau engan í
bæjarfélaginu. „Við flutt-
um hingað fyrst og
fremst vegna þess að hér
voru leikskólamál í tals-
vert betra standi en hjá
Reykjavíkurborg, því ég var
ólétt að mínu fyrsta barni þeg-
ar við fluttum. Ég var alveg
ákveðin í því að ala mín börn ekki
upp í bíl á rauðu ljósi. Við hjónin vorum
sammála um að Hveragerði hefði allt, róleg-
heitin og nálægð við náttúruna, gott íþrótta-
og skólastarf og síðan mjög stutt í höf-
uðborgina ef mann vantar eitthvað. Það líða
alveg fleiri vikur án þess að ég fari til
Reykjavíkur,“ segir Elín og hlær.
Þegar Elín og Siggi fluttu í Hveragerði
var hún að eignast
sína fyrstu íbúð en
hann átti íbúð í
Reykjavík fyrir sem
hann seldi.
„Við þurftum að hafa töluvert
fyrir því, þar sem við vorum að stækka úr 63
fermetra gamalli íbúð í nýtt 146 fermetra
endaraðhús. Til þess að eiga fyrir útborgun,
flutningum, og kostnaði við kaup og sölu
þurftum við að leggja mikið til hliðar í eitt og
hálft ár. Um tíma áttum við bara einn bíl og
þegar allir voru á ferðalögum vorum við bara
ánægð með að fara í göngutúr um nærum-
hverfið. Þetta hefur lítið breyst hjá okkur.
Þessi venja, að leggja til hliðar í hverjum
mánuði og vera sjálfum sér nóg, er mikil lífs-
gæði. Ég hef alla tíð talað fyrir nægjusemi
og ég skil ekki af hverju fólk er að kaupa sér
alls konar óþarfa sem það notar aldrei. Ég
mun seint skilja af hverju fólk fyllir geymsl-
una sína eða bílskúrinn af dóti sem hefur
nánast aldrei verið notað. Talandi um þetta,
þá létum við verða af því að minnka við okk-
ur í fyrra, úr 146 fermetrum niður í 96 fer-
metra. Það var alveg meiriháttar! Við notum
öll rými og við erum ekki að borga fyrir auka
fermetra sem við notum aldrei,“ segir Elín.
Nú eru hjónin búin að selja 96 fermetra
íbúðina sína og kaupa efri sérhæð í tvíbýli.
Íbúðin er staðsett í einu af elstu húsum
Hveragerðis. Það þarf að gera nokkrar end-
urbætur á íbúðinni áður en þau flytja inn.
„Við viljum búa passlega stórt. Núna eru
börnin okkar lítil og þurfa ekki mikið pláss.
Þegar þau stækka, þá munum við stækka við
okkur og fara í stærra hús, en þangað til er
þetta fullkomið fyrir okkur, hver fermetri í
notkun og enginn möguleiki á
ruslasöfnun,“ segir Elín spennt
fyrir nýju verkefni fjölskyld-
unnar.
Ertu með gott ráð fyrir fólk
sem vill flytja?
„Mitt besta ráð til fólks er að
byrja að taka til heima hjá sér ef
það er í söluhugleiðingum. Það
kemur sér alltaf vel, hvort sem þú
ert að fara í fasteignamyndatöku, að sýna
húsið væntanlegum tilboðsgjöfum eða flutn-
inga. Þá er alltaf best að byrja á því að taka
til og taka í burtu það sem á ekki að fara
með á nýja heimilið. Þetta er það sem vex
flestum í augum, þetta er erfitt en ofsalega
gott þegar það er búið. Meira að segja eru
þess dæmi að þegar fólk hefur tekið hressi-
lega til, þá loksins sjái það húsið sem það býr
í og hætti við að selja. Sumum finnst kannski
skrýtið að ég fagni því, verandi fasteignasali,
en mér finnst það frábært. Það kemur að því
að húsið hentar ekki lengur og þá er rétti
tíminn til að skipta um húsnæði.
Mér finnst gaman að aðstoða fólk við að
finna sér annað hús sem hentar hverju sinni.
Það er svo gaman að vita af einum sem vill
minnka við sig, öðrum sem vill stækka og
koma þannig af stað keðju sem gengur upp.
Það er gaman að geta aðstoðað fólk við að
finna sitt draumahús til að geta skapað sér
nýtt heimili. Mest finnst mér gaman þegar
mér er boðið í heimsókn nokkrum mánuðum
eftir að kaup takast og ég fæ að sjá breyt-
ingar hjá fólki eftir að það er flutt inn, mér
þykir vænt um slík boð. Mér finnst líka gam-
an að vinna með verktökum sem eru að selja
nýbyggingar. Margir verktakar sýna mér
drög að teikningum og það er gaman að geta
gefið nokkur góð ráð þegar innra skipulag er
teiknað,“ segir Elín og bætir við:
„Umfram allt þá snýst starf fasteignasal-
ans um það að koma fólki úr einu húsi yfir í
annað á sem öruggasta hátt og þetta þarf að
meðhöndla af mikilli virðingu við alla aðila
málsins. Langflest við fasteignasölustarfið
er mjög skemmtilegt en það getur líka verið
krefjandi. Það getur verið krefjandi að koma
aðilum saman um helstu atriði kaupsamn-
ingsins, sömuleiðis getur það oft verið snúið
að fá lánastofnanir til að tala saman og gefa
eftir í veðréttarröð þótt það sé alltaf að
verða betra. Það getur verið erfitt þegar
einn aðilinn í málinu sinnir ekki sínu eins og
til var ætlast í upphafi og þegar einhver þarf
að gefa eftir eitthvað sem er ekki endilega
sanngjarnt að gefa eftir. Þetta eru allt verk-
efni sem þarf að leysa og það reyni ég að
gera samkvæmt bestu getu.
Góður fasteignasali er sá sem áttar sig á
því að þetta er þjónustustarf en ekki sölu-
starf. Stærsti hlutinn af þjónustunni er að
gefa sér tíma til að hlusta á fólk og leggja sig
fram um að skilja aðstæður þess og útskýra
svo næsta skref í ferlinu. Kaupferlið getur
verið flókið og góðir fasteignasalar leiða sína
viðskiptavini í gegnum ferlið, alla leið fram
yfir afsal. Mér finnst gott að reka litla
fasteignasölu, þar sem allir starfsmenn stof-
unnar koma að kaupferlinu, hver með sína
sérþekkingu. Með þessu fyrirkomulagi verð-
ur þjónustan persónulegri, þetta er mögu-
lega tímafrekara en þetta er að reynast vel
hjá okkur á Byr fasteignasölu.“
Hvernig er fasteignamarkaðurinn núna,
2021?
„Hann er allt of hraður. Það er lítið fram-
boð á eignum og verðið er að hækka mjög
hratt. Það væri betra að hafa hægari stíg-
andi í fasteignaverðinu en þar sem framboð
og eftirspurn ræður för, þá er þetta niður-
staðan. Þegar ég flutti í Hveragerði árið
2016 þá voru margir að gera það sama og við
hjónin, fara frá höfuðborgarsvæðinu til að
bæta lífsgæði sín með því að fá húsnæði á
lægra verði. Nú í dag, árið 2021, er þetta enn
að gerast. Það er mikil uppbygging hér á
svæðinu. Í Hveragerði, Þorlákshöfn og Sel-
fossi ásamt minni byggðarkjörnunum eru
margar nýbyggingar að rísa og því er ég
bjartsýn á góðan markað og mikla möguleika
fyrir fólk að flytja hingað austur fyrir fjall.“
Þurfti að hafa
mikið fyrir því að
eignast húsnæði
Elín Káradóttir flutti í Hveragerði árið 2016 ásamt eigin-
manni sínum. Hún segir starfið lifandi og það gerist alveg
að fólk hætti við að selja fasteign sína þegar það er búið
að taka til heima hjá sér fyrir fasteignamyndatöku.
MartaMaría | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Blómabærinn Hveragerði skartar sínu fegursta.
Hveragerði er fallegur bær og segir Elín að þar sé mjög gott að búa.
Elín Káradóttir
rekur fasteigna-
söluna Byr.
„Mitt besta ráð
til fólks er að
byrja að taka til
heima hjá sér ef
það er í sölu-
hugleiðingum.“
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
• Er komið að húsnæðis-
skiptum eða vantar þig
stuðning og ráðgjöf við
erfðaskrá, kaupmála eða
dánarbússkipti?
• Vilt þú fá lögmann þér við
hlið við sölu fasteignar án
þess að greiða aukalega
fyrir þá þjónustu?
• BÚUM VEL veitir nýja
tegund þjónustu.
Kynntu þér málið.
Elín Sigrún, lögmaður
sími 783 8600
elin@buumvel.is
www.buumvel.is
Sérhæfð
lögfræðiþjónusta
við búsetuskipti
með áherslu á 60+