Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 20
Ó li Gísli segir að á margan hátt sé starf matreiðslumannsins líkt starfi fast- eignasalans því hvort tveggja séu þetta þjónustustörf sem gangi út á fjölbreytt verkefni og samskipti við fólk. „Ég var aldrei að fást við sömu verkefnin og ég hitti ógrynni af alls konar fólki þegar ég var í hlut- verki matreiðslumannsins. Svo fór ég frá því að elda og taka þátt í brúðkaupum og fermingarveislum yfir í að deila stóru stundinni þegar fólk kaupir sér nýtt heimili. Það er gaman að fá að taka þátt í svona stórum stundum með alls konar fólki,“ segir Óli Gísli sem skipti um starfsvettvang árið 2006. Þá hætti hann að starfa sem matreiðslumaður og fór á fullu í fasteignasöluna en undanfarin ár hefur hann starfað á eigin fasteignasölu, Höfn. „Ég skilgreini mig sem fasteignanörd, er alltaf að skoða fasteignaauglýsingar, fletta Bo Bedre og svona. Ég kem inn á aragrúa af heimilum og oft fær maður að heyra sögur sem fylgja húsum. Hús er ekki alltaf bara steyptur kassi heldur hafa sögur lif- að inni í þeim, sögur af fyrri eigendum og margt fleira,“ segir Óli Gísli kíminn. Lét flytja inn gegnheilt tekk í eyjuna Sjálfur býr Óli í hundrað og fimmtíu fermetra einbýli í Túnunum í Garðabæ en það er eitt elsta hverfi bæjarins, og það fyrsta sem var skipulagt í bænum, vill Óli meina en hann biður Garðbæinga að nota það ekki gegn sér ef rangt reynist. „Húsið mitt er byggt árið 1958 og það var hannað af þeim Jósep Reynissyni og Gísla Halldórssyni. Ég keypti það af upprunalegum eigendum sem lögðu allt- af mikla alúð í húsið. Það var vandað til verka með þetta hús og ekki verið að eltast við tískusveiflur,“ segir hann sáttur. „Til að flokka mig áfram sem nörd þá er ég örugg- lega svona retró-tekk-nörd líka,“ segir hann og út- skýrir að hann hafi þurft að standa af sér mikla pressu frá velmeinandi vandamönnum gagnvart því að breyta ekki panelnum í loftinu. „Fólk er alltaf að koma með hugmyndir um hvernig sé hægt að mála og breyta en ég mun ekki hrófla við loftinu. Viðurinn er hluti af húsinu,“ segir Óli sem gekk svo langt að panta inn tekk frá útlöndum þegar hann stækkaði eldhúsið á sínum tíma. „Gamla eldhúsið var mjög lítið en í breytingunum þurfti ég að láta taka út litla upprunalega innréttingu úr tekki. Til að skemma ekki stílinn hafði ég mikið fyrir því að finna, og láta flytja inn, gegnheilt tekk í eldhúseyjuna og eftir mikla leit var það efnisveita í Kópavogi sem hafði upp á því fyrir mig. Eftir á get ég sagt að það er reyndar ekki mjög praktískt að nota tekk sem vinnuborð, en á móti myndast falleg tenging við húsið sem mér finnst skipta máli.“ Tekk- og fasteigna- nörd í Garðabæ Óli Gísli Sveinbjörnsson, fyrrverandi matreiðslumaður og núverandi fast- eignasali, hefur „thing“ fyrir því að halda fallegum og vönduðum hlutum í sinni upprunalegu mynd. Hann segist líka elska að taka þátt í stóru stundunum í lífi fólks, á borð við brúðkaup, fermingarveislur og kaup á fyrsta heimili. Margrét Hugrúnmargret. | hugrun@gmail.com Morgunblaði/Arnþór Birkisson „Verkin eru eftir tvíbura- systurnar Evu G. og Ernu G. Sigurðardætur og mér finnst þau koma vel út svona sitt hvoru megin við gluggann. Þessi gluggi er hálfgert listaverk út af fyrir sig. Hann er mjög stór og fyr- ir utan hann er risastórt gullregn sem getur orðið algjört listaverk á sumr- in. Borstofuborðið fannst einhversstaðar baka til í ILVU fyrir slysni. Það er níðþungt og úr gegnheilum við en svo eru gömlu tekkstólarnir hennar mömmu við borðið sem ég lét bólstra upp á nýtt.“ „Ég skilgreini þetta ekki sem jólakrans. Þetta eru bara mosi og könglar sem tengjast ekki jólunum endilega og hafa fengið hjá mér nýja skilgrein- ingu,“ segir Óli Gísli. Eldhúsið hefur að geyma góða kaffi- vél og heimilislegt andrúmsloft. „Þessi símastóll hefur fylgt mér lengi. Ég bjargaði honum á einhverri skran- sölu þar sem hann lá á bak, við grár og gugginn. Ég pússaði tekkið og gerði hann upp. Svo lét ég bólstra hann um leið og ég lét bólstra borðstofustólana. Það er svoleiðs með þessa tekkhluti að þeir þurfa bara ást og alúð og einhvern sem sinnir þeim.“ „Ég skilgreini mig sem fasteignanörd, er alltaf að skoða fasteignaauglýsing- ar, fletta Bo Bedre og svona. Ég kem inn á aragrúa af heimilum og oft fær maður að heyra sögur sem fylgja húsum. 20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.