Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 12

Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 V ið rifum allt út úr gamla eldhúsinu, tókum niður veggi og færðum þvotta- hús frá þessu svæði annað,“ segir Sól- veig sem veit fátt skemmtilegra en að hanna stór eldhús fyrir fjölskyldur sem kunna að halda góð boð. Þegar hún fór í verkefnið hafði hún þarfir fjöl- skyldunnar í huga. „Þau vildu stórt barborð til að sitja við í eld- húsinu og lögðu áherslu á skilvirkni og hag- kvæmni. Þau vildu hafa tvennt af öllu. Svo ég hannaði eldhús með tveimur ísskápum, tveimur upp- þvottavélum og tveimur ofnum. Fjölskyldan vildi ekki hafa efri skápa í eld- húsinu en var að leita eftir ákveðnum léttleika, sem mér finnst ég hafa náð fram á skemmti- legan hátt.“ Lærði fagið sitt á Ítalíu Eyjan er að mati Sólveigar með meiri karakt- er þar sem ákveðið var að nota svartan við í hana. „Allar innréttingar í eldhúsinu eru hvítar að undanskilinni eyjunni og eru þær frá HTH- innréttingum. Viðarhillan á veggnum er sér- smíðuð hjá Efnissölunni. Borðplatan er frá Steinprýði og er úr kvartsi. Blöndunartækin eru einstaklega falleg og eru þau frá Ísleifi Jónssyni og svo til að setja smá „bling“-útlit á eldhúsið valdi ég að nota gylltar höldur frá HTH-inn- réttingum.“ Hönnun Sólveigar ber merki þess að hún lærði fag sitt á Ítalíu, nánar tiltekið í ISAD Design School í Mílanó. „Það hefur án efa áhrif á það sem ég geri, en ég veit fátt skemmtilegra en að hanna húsnæði með þarfir fólksins sem ég vinn fyrir í huga. Fjölskyldan í Kópavogi er sem dæmi mjög opið og skemmtilegt fólk sem heldur mikið af matarboðum. Mig langaði að búa til eldhús með það í huga. Lýsingin gerir mikið fyrir eldhúsið „Síðan eru hjónin þannig að þau njóta þess að eiga rómantískar stundir saman og því ákvað ég að setja lítinn bekk undir glugga í eldhúsinu þar sem þau gætu setið hvort í sínu horni með gott rauðvínsglas að lesa bók með huggulegt útsýni og í þessu fallega rými þar sem þau geta notið návistar við alla þá sem koma inn í eldhúsið eða ganga um svæðið.“ Hillurnar undir eldhúsbekknum eru auka- geymslur fyrir matarstell eða hluti úr eldhús- inu. Eins er hægt að geyma góðar bækur þar og hluti sem fjölskyldan notar á bekknum. Barstólarnir inni í eldhúsinu eru stílhreinir stólar úr Epal. Stór búrskápur er í eldhúsinnréttingunni þar sem ísskáparnir tveir eru staðsettir og inni í þeim skápum er falleg lýsing. „Ég ákvað að taka aðeins niður loftið til að poppa aðeins upp eldhúsið. Eins er lýsingin hugsuð sem góð vinnulýsing. Ljósin sem notuð eru í eldhúsinu eru úr Lýsingu og hönnun og þótt veggljósið sé aðallega fyrir stemninguna þá lýsir það á hluta af borði þar sem hægt er að hafa fallega ávexti í skál svo dæmi séu tekin,“ segir Sólveig. Það eru eflaust margir sem vilja gera eitthvað fallegt fyrir eldhúsið sitt um páskana. Sólveig Viðarhillan á Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússarkitekt hannaði ein- staklega gott vinnueldhús í Kópavogi fyrir fimm manna fjölskyldu sem er mikið fyrir að halda góðar veislur. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhúss- arkitekt lærði fag sitt í Mílanó á Ítalíu. Það skiptir öllu máli að vel fari um alla í eldhúsinu. Bæði þá sem eru að borða og þá sem eru að vinna. Eyjan sker sig fallega úr með svörtum við. Bekkurinn í eldhúsinu var geti átt rómantískar stundir Veislueldhúsmeð öllu í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.