Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 14
Þ
að muna án efa margir eftir Krist-
jönu Þorgeirsdóttur, fyrrverandi
þjálfara í Baðhúsinu, en í yfir 25 ár
starfaði hún í hóp- og einkaþjálfun í
Baðhúsinu og Sporthúsinu.
Hún starfar nú sem ráðgjafi og markþjálfi
ásamt því að vera í námi.
„Ég bý í Garðabænum með tveimur
yngri stelpunum mínum, þeim Helenu og
Míu. Ég á fjögur börn og er mjög ánægð á
þeim stað sem ég bý. Enda hef ég verið hér
í tólf ár.“
Getur þú sagt mér hvar þú hefur búið um
ævina?
„Ég ólst upp í kringum Laugardalinn. Eftir
að ég varð fullorðin hef ég búið á þó nokkrum
stöðum, til dæmis Kaupmannahöfn yfir sumar
þegar ég var í menntaskóla. Ég flutti frekar ung
að heiman, eða sautján ára. Þegar ég hugsa til
baka þá var þetta mjög góður tími. Ég kláraði
bara skólann og það var ekkert partístand á
mér. Mér fannst alveg geggjað að búa ein. Ég
flutti síðan óvænt til Akureyrar eftir stúdents-
próf. Ég segi yfirleitt að ég hafi ætlað að vera í
tvær vikur þar, en var í sjö ár. Það var frábær
tími og ég eignaðist marga, kæra vini á þeim
tíma. Akureyri á alltaf sérstakan stað í hjarta
mínu og ég fæ oft „heimþrá“ þrátt fyrir að fjöl-
skylda mín búi ekki þar.“
Hver er skrítnasti staður sem þú hefur búið
á?
„Vegna sérstakra aðstæðna hjá mér buðu
vinkonur mínar í Karmelklaustrinu í Hafnar-
firði mér að vera hjá sér. Það er sennilega
skrítnasti en jafnframt einn sá fallegasti staður
sem ég hef hallað höfði mínu á kodda. Ég vakn-
aði eldsnemma á morgnana við kirkjuklukkur
og söng. Þetta var ógleymanlegur og dýrmætur
tími.“
En sá skemmtilegasti?
Ljósmynd/Colourbox
„Skemmtilegast þótti mér að búa í litlu
sveitaþorpi í Umbria-héraðinu á Ítalíu. Þar var
ég með fjölskylduna mína, yngsta barnið
tveggja ára og elsta tólf ára. Við aðlöguðumst
ítölsku sveitalífi og eignuðumst marga, góða
vini, bæði Ítala og aðflutta sem komu frá öllum
heimshornum. Þarna fólust lífsgæðin í því að
eiga samveru við fólkið sitt og vini. Að borða
góðan mat, staldra við í lífinu og anda að sé
gróðurilminum. Umbria er græna hjarta Ítalíu
og mikil ræktun eins og annars staðar í landinu.
Öll fjölskyldan á góðar minningar frá þessum
ævintýralega tíma.“
Hvað gerir góða íbúð að heimili?
„Það er fyrst og fremst fólkið og hvernig fólk
kemur fram við hvert annað. Að hafa áhuga á
hvert öðru og hafa umhverfið kærleiksríkt og
uppbyggjandi.“
Hvaða setningu myndir þú setja fyrir ofan
hurðina hjá þér til að lýsa stemningunni heima?
„Hér er kærleikur, gleði, ást og hamingja.
Velkomin!“
Bjó í klaustri
um tíma
Ljósmynd/Karmelklaustrið
Kristjana bjó um tíma í
Umbria-héraðinu á Ítalíu.
Kristjana bjó um tíma hjá vinkonum sínum í
Karmelklaustrinu í Hafnarfirði.
„Ég vaknaði eldsnemma ámorgnana við
kirkjuklukkur og söng. Þetta var
ógleymanlegur og dýrmætur tími.“
Kristjana Þorgeirsdóttir
hefur búið víða um ævina.
Kristjana Þorgeirsdóttir er ævintýralega skemmtileg og
opin kona. Hún hefur búið víða, meðal annars í klaustri
sem hún segir góða upplifun.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021