Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Eggert
INGIBJÖRG FRÍÐA HELGADÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hörpu vantar
afmælislag
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021
VERIÐ
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Í heila viku og gott betur hefur jörðin skolfið undir fótum okkar á suðvest-urhorni landsins. Það hefur ekki verið flóafriður fyrir kippum, drunum,titringi og skjálftum þannig að það liggi við sjóriðu. Á nóttinni vaknar
fólk með andfælum við það að rúm víbra og hristast.
Eina nótt í vikunni vakna ég með óreglulegan óróapúls.
Morguninn eftir má sjá enn eina jarðskjálftafréttina. Aftur er mynd af
Keili á forsíðu. Aftur þurfa jarðfræðingar og aðrir spekingar að svara sömu
spurningum. Svörin hafa verið einhvern veginn svona: „Það er tvennt í stöð-
unni, annaðhvort heldur jarð-
skjálftahrinan áfram, eða hún
hættir“.
Sem er vissulega svar. Bara ekkert
sérlega gott.
Næsta stóra spurningin var hvort
færi að gjósa. Svarið var yfirleitt á
þessa vegu: „Ekkert bendir til þess
að fari að gjósa, þó mögulega gæti
gosið núna, eftir tíu ár eða hundrað“.
Líka svar, en ekkert sérlega gott.
Hvað gerist svo? Jú, á miðvikudag-
inn er ég í rólegheitum á kaffihúsi
með viðmælanda og alveg slök, hald-
andi að næsta gos verði líklega löngu
eftir að ég verð komin undir græna
torfu. Ég kem til baka í vinnuna og þá
er allt á suðupunkti! Gos innan fárra klukkutíma! Halló!
Þetta var ekkert á dagskrá og nú átti bara að skella þessu á með engum
fyrirvara! Þetta var alls ekkert sviðsmyndin sem hafði verið teiknuð upp fyrr
um morguninn.
En hvað gerist svo? Ekkert gos. Um kvöldið gat ég ekkert sofnað fyrir
gosóróa. Ég sem átti að mæta eldsnemma í ræktina morguninn eftir. Um
5.30 hrökk ég upp og kíkti á mbl. Enn ekki farið að gjósa. Ég fór bara aftur
að sofa og þurfti að senda þjálfaranum skilaboð um að ég kæmist alls ekki í
ræktina sökum gosóróa og hás óróapúls.
Nýjasta nýtt er að „líklega“ ef það fer að gjósa sko, sé það upphafið að
margra alda gosskeiði. Sei, sei, já, já. En mögulega byrjar það eftir hundrað
ár. Já, eða á morgun?
Enn bíðum við spennt, því hvað er meira spennandi en gos við bæjar-
dyrnar. Svo er alltaf hægt að horfa á Keili í beinni. Sjónvarpsefni sem er vin-
sælt. Og afar svæfandi.
Það þýðir ekkert að lofa okkur gosi og svíkja okkur svo. Koma svo Litli-
Hrútur í Þráinsskjaldarhrauni. Koma svo!
Óróapúls
og gósórói
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Næsta stóra spurn-ingin var hvort færiað gjósa. Svarið var yfir-leitt á þessa vegu: „Ekk-
ert bendir til þess að fari
að gjósa, þó mögulega
gæti gosið núna, eftir tíu
ár eða hundrað“.
Sigríður Lárusdóttir
Já, ég sá gosið í Eyjafjallajökli og
flaug líka yfir gosið í Holuhrauni.
SPURNING
DAGSINS
Hefur þú
séð eldgos?
Þorsteinn Sörensen
Ég sá Heklugosið 1947. Pabbi hélt á
mér en ég var fimm ára.
Birgitta Rán Magnúsdóttir
Nei. Mig langar smá að sjá gos, en
það fer eftir hvað það verður nálægt.
Guðmundur Einarsson
Já. Ég sá Heklu gjósa fyrir mörgum
árum.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Hvað er á döfinni hjá þér?
Við erum að leita að tíu ára gömlum krökkum til að semja af-
mælislag fyrir Hörpu sem verður tíu ára í maí. Hugmyndin er
að krakkar sendi inn til okkar örstutt kynningarmyndband. Þau
þurfa ekki að vera búin að semja neitt eða senda inn tilbúið lag.
Þau þurfa bara að segja okkur hver þau eru, hvað þau eru að
grúska í tónlist og af hverju þau vilja vera með í þessu verk-
efni. Þau mega líka spila fyrir okkur ef þau vilja. Við erum líka
að leita að krökkum sem geta samið texta.
Hvað eruð þið að leita að mörgum krökkum?
Við erum að leita að um það bil tíu krökkum í teymið. Það er
betra að vera ekki með of stóran hóp. En þegar lagið verður
tilbúið stækkum við hópinn og fáum þá krakka sem geta flutt
lagið; krakka sem geta annaðhvort sungið eða spilað á hljóð-
færi.
Hvenær þarf lagið að vera tilbúið?
Þegar afmælishátíðin verður sett í maí. Það er svo gaman að
krakkarnir eru jafngamlir húsinu og þekkja ekkert annað en lífið
með Hörpu. Það er gaman að persónugera húsið eins og tíu ára
barn.
Eru tíu ára börn nógu gömul í þetta verkefni?
Já, það er hundrað prósent okkar reynsla. Ég og maðurinn minn,
Siggi, erum saman í þessu en við erum menntuð í skapandi tón-
listarmiðlun. Við höldum oft tónlistarsmiðjur fyrir börn, ungmenni
og fullorðna þar sem við hjálpum fólki að semja tónlist. Það geta
allir samið tónlist. Krakkar eru oft að springa úr hugmyndum og
eru óhrædd við að setja þær fram.
Harpa auglýsir eftir tíu ára krökkum, sem finnst gaman að spila og
semja tónlist, til þess að taka þátt í því að semja nýtt afmælislag
fyrir Hörpu. Krakkar skulu senda inn stutt kynningarmyndband,
fyrir 8. mars, á harpa@harpa.is. Tónlistarfólkið Ingibjörg Fríða
Helgadóttir og Sigurður Ingi Einarsson heldur utan um verkefnið.