Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Blaðsíða 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021 „Ég er með þá einföldu reglu sem er bara að elta konuna. Ef ég þarf að velja á milli þá vel ég þar sem eru fleiri konur,“ segir kvikmynda- klipparinn Elísabet Ronaldsdóttir. Morgunblaðið/Ásdís Í afar lúinni byggingu við Hverfisgötu finn ég klipparann Elísabetu Ronalds- dóttur þar sem hún hefur hreiðrað um sig í öggulítilli skrifstofu með útsýni yf- ir lögreglustöðina. Elísabet er nýkomin til landsins, búin að afplána sína sóttkví og byrjuð í fjarvinnu fyrir stórt kvikmyndaver í Hollywood. Á skrifstofunni er skrifborð, tveir tölvuskjáir og ein hálftóm hilla og á veggnum hanga þrjú viðurkenningarskjöl, eitt þeirra merkt stórmyndinni Atomic Blonde. Þær hanga allar undarlega í hnapp og Elísabet af- sakar sig og segist hafa hengt þetta á nagla sem voru fyrir; hún eigi eftir að gera kósí. Það er að minnsta kosti enginn Hollywood-bragur yfir herberginu, enda er það ekkert sem El- ísabet sækist eftir. Því þrátt fyrir velgengni vestan hafs er Elísabet hógvær; hún er ánægð með sig og sína og finnst ekkert merkilegra að tala við séra Jón en Jón. Eftir langt spjall um lífið og tilveruna er ljóst að hér er töffari á ferð; hún er blátt áfram, sjálfstæð fjögurra barna móðir sem unnið hefur hörðum höndum alla ævi. Elísabet hefur lifað viðburðaríku og skemmtilegu lífi sem hefur leitt hana í hin ýmsu ævintýri um heim allan, en líka í gegnum erfiðleika. Hún sigraðist á fjórða stigs krabbameini en segir veikindin ekki hafa breytt sér á neinn hátt. Afinn sem hvarf Ronald er ekki algengt nafn á Íslandi og talið berst strax að afa hennar sem var grísk- amerískur og hafði komið hingað sem hermað- ur í stríðinu. „Hann giftist ömmu og þau voru á leiðinni að flytja til Bandaríkjanna en amma var ólétt og skipaferðir óöruggar vegna loftárása. Hann fór því á undan að undirbúa allt og hún ætlaði að koma eftir að barnið væri fætt. Svo bara hvarf hann og fannst ekki aftur fyrr en fyrir nokkrum árum síðar, og þá í líkhúsi. Ógiftur og barnlaus, fyrir utan pabba auðvitað,“ segir Elísabet. „Pabbi var skírður Ronald í höfuðið á uppá- haldsleikara afa, Ronald Reagan. Pabbi er alls ekki hrifinn af þessari nafnasögu,“ segir hún sposk. Elísabet segir allt þetta mál hið undarleg- asta því ekkert benti til að þessi maður myndi yfirgefa ólétta eiginkonu sína á Íslandi. „Það veit enginn hvað gerðist; hvað kom fyr- ir hann.“ Fjölskyldan hefur ekkert frekar reynt að komast til botns í málinu, enda segir Elísabet manninn ekkert tengdan þeim, nema blóðbönd- um. En vissulega hafa þau velt þessu fyrir sér. En vegna þess að þessi dularfulli hermaður kom inn í líf ungrar konu á Íslandi fyrir margt löngu situr blaðamaður og ræðir við stórklipp- arann Elísabetu Ronaldsdóttur. Svona er lífið tilviljanakennt. Unglingaást og barn Elísabet segist alltaf hafa verið sjálfstæð og var rétt nýfermd þegar hún fór fyrst ein til út- landa. „Ég fór sem au-pair til Svíþjóðar og var það mikið ævintýri. Ég man að ég kom heim með tvö hundruð filmur til að framkalla, en ég hafði tekið myndir af öllu; póstkössum og ljósa- staurum. Það var allt svo framandi og frá- bært,“ segir hún og hlær. Þú hefur verið svona ung au-pair? „Þetta voru aðrir tímar; nú eru allir svo verndaðir. Ég var um tíu ára þegar ég byrjaði að vinna á kvöldin og um helgar hjá kaup- manninum á horninu. Ég man ekki öðruvísi eftir mér en vinnandi,“ segir hún. Elísabet gekk í Hagaskóla og Mennta- skólann í Reykjavík en á unglingsárunum flutti hún til Svíþjóðar með foreldrum sínum sem fluttu þangað alflutt. „En ég var bara úti í eitt ár því ég var svo hræðilega ástfangin,“ segir hún og brosir. Kærastinn kom út til Elísabetar eitt sumar og svo fluttu þau heim til Íslands. „Ég bjó þá heima hjá Jóhönnu Kristjóns- dóttur vinkonu minni, en hún er móðir hans. Elsku Jóhanna tók okkur inn, brjálaða ung- linga,“ segir hún en umræddur maður er Hrafn Jökulsson. „Við eignuðumst svo Mána en skildum fljót- lega en við Jóhanna vorum alltaf bestu vinir og í öll þessi ár þar til hún dó. Hún var áhrifavald- ur í mínu lífi,“ segir Elísabet sem var aðeins átján ára þegar frumburðurinn fæddist. Fjaraði samband ykkar bara út? „Nei, nei! Fór út eins og sprengja, kjarn- orkusprengja. En við höfum nú jafnað okkur á því með árunum, enda eru þetta 37 ár síðan. Við vorum auðvitað bara unglingar, og kannski skrítnir unglingar.“ Ritari skattrannsóknarstjóra Einstæða unga móðirin lét ekki deigan síga og kláraði stúdentsprófið frá Kvennaskólanum. „Kennararnir og skólastjórinn voru dásam- legt fólk og Máni minn fór meira að segja stundum í pössun til Aðalsteins skólastjóra á meðan ég tók próf. Þetta er svolítið eins og líf mitt hefur alltaf verið; hlutirnir einhvern veg- inn bjargast,“ segir hún. Eftir stúdentsprófið leitaði Elísabet til vin- konu sinnar sem vann á ráðningarstofu. „Ég fékk vinnu sem ritari skattrannsókn- arstjóra,“ segir hún og hlær. „Þetta er minn lífsbrandari þótt samstarfs- fólki mínu þarna hafi kannski ekki fundist það fyndið. Ég reyndi alveg að skila mínu, en þegar litið er í baksýnisspegil var þetta und- arleg u-beygja,“ segir hún og segir vinkon- una næst hafa komið sér í atvinnuviðtal hjá Sýn sem var þá kvikmyndagerð þar sem framleitt var efni fyrir sjónvarp og auglýs- ingar. Elísabet byrjaði sem símastúlka en var fljót- lega farin að sinna öðrum verkum, eins og að redda „propsi“. „Ég ákvað svo að fara í kvikmyndaskóla og fór þá til London en Mána sendi ég til foreldra minna í Svíþjóð,“ segir Elísabet sem flaug svo á milli landanna í fríum til að hitta barnið. „Ég hafði alltaf haft áhuga á ljósmyndun og þegar ég fór í kvikmyndaskólann var ég með það á hreinu að leggja fyrir mig kvikmynda- töku. En svo gerist lífið og ég rataði inn í klippiherbergið og varð ástfangin af því ferli. En það var líka það að sú vinna hentaði mér vel sem einstæðri móður. Það hentar betur að ráða sínum tíma ein inni í klippiherbergi held- ur en að stjórna her manns.“ Hlutirnir einhvern veginn bjargast Kvikmyndaklipparinn Elísabet Ronaldsdóttir hefur þvælst víða um heim, oft með börn í farteskinu. Hún er nýkomin úr árslangri útlegð og nýtur þess að vera loks heima. Elísabet hefur unnið við fjölda stórmynda í Hollywood en er með báða fætur kirfilega á jörðinni. Hún lifði af fjórða stigs krabbamein en segir það ekki hafa breytt sér, hún sé alltaf söm við sig. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’En svo gerist lífið og ég rataðiinn í klippiherbergið og varðástfangin af því ferli. En það varlíka það að sú vinna hentaði mér vel sem einstæðri móður. Það hentar betur að ráða sínum tíma ein inni í klippiherbergi heldur en að stjórna her manns.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.