Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Qupperneq 17
kona hans, Edith Wilson, og aðrir í innsta hring for- setans, faldi það að mestu fyrir þingi og þjóð hvernig komið væri fyrir forsetanum. Forsetafrúin tók að sér margvíslegar skyldur for- setans og gaf fyrirmæli til stjórnkerfisins eins og væru það orð og verk forsetans. Óhugsandi núna? Þetta stóð sem sagt í tæpt eitt og hálft ár. Það væri freistandi að stökkva á þá niðurstöðu að þetta og ann- að eins væri ekki hægt lengur. En tæpum þremur ára- tugum síðar földu blaðakóngar Breta, með fjölskyldu og innsta hring, að Winston Churchill forsætisráð- herra hefði lamast að hluta vegna blóðtappa. Gamla kempan náði sér að vísu á nokkrum mánuðum og komst upp með þetta leynimakk allt. Forsetafrúin í Hvíta húsinu sagðist síðar „hafa farið vandlega yfir hvert erindi allra ráðuneyta sem bárust. Þau mál sem ég taldi óhjákvæmilegt að gengju til forsetans gerði ég ljósan og stuttan útdrátt úr og fékk honum til ákvörðnar. Sjálf tók ég því ekki neinar ákvarðanir aðrar en þær að ákveða hvaða álitaefni þyrftu að fara til hans og þá að koma þeim í aðgengilegt form. Sjálf tók ég aldr- ei eina einustu ákvörðun!“ Það er nú það. Frúin fékk heimild til að fara yfir leyniskjöl sem forset- anum voru ætluð. Hún ákvað jafnframt hvað skyldi leynt fara í stjórnkerfinu. Og þegar utan- ríkisráðherrann hélt nokkra ríkisstjórnarfundi, án þess að hún (eða forsetinn, eins og það var orð- að) væru viðstödd, var hann leystur frá embætti. Og aftur, þegar og ef menn spyrja sig hvort slíkt því líkt gæti gerst í nútímanum, þá má minna á, að öðrum af tveimur frambjóðendum var að mestu komið fyrir ofan í kjallara lungann af kosningabaráttu um emb- ætti valdamesta manns veraldar! Og enn voru það fjöl- miðlarnir sem brugðust svo illa að með fádæmum telst. Hálfri öld eftir samsærið með Churchill. Sá gamli opnar munn En hvað er að frétta af hinum frambjóðandanum? Honum Donald Trump? Tölvurisarnir hafa tekið sér að hemja málfrelsi hans og gerðu það reyndar þegar á meðan hann var enn forseti Bandaríkjanna. Þeir þurftu vissulega ekki að gera það í tilviki hins fram- bjóðandans því það heyrðist svo sem ekkert í honum nema það sem hann las upp af spjöldum aðstoðar- manna sinna. Trump hélt nýlega ræðu yfir flokksbræðrum sínum og virkaði úthvíldur og afslappaður og virtist orð- varari en stundum endranær. Vonandi lagast það. Fjölmiðlar vesturheims, einkum þeir sem staddir eru austan megin við stóra pollinn, hafa sannfært sig um það að Bandaríkjamenn hati Trump jafnmikið og 90% af félagsmönnum þeirra sjálfra. En hvað sem verður þá er það fjarri því að vera svo. Ýmsir biðu spenntir eftir ræðu forsetans fyrrverandi og ástæður þess gátu verið margvíslegar. Getgátur voru uppi um að hann myndi tilkynna stofnun nýs flokks í stað Repúblik- anaflokksins. Ekkert þess háttar. Trump lýsti ánægju sinni með flokkinn. Ætlaði hann að lýsa yfir framboði 2024? Nei, hann gerði það ekki. En sá heldur enga ástæðu til að afneita því. Er vænlegt að reyna aftur Forsetar hafa jafnan nokkurt forskot í seinni kosn- ingum sínum og það er því fært þeim til frádráttar þegar forgjöfin dugar þeim ekki til sigurs. Það var aldrei orðað við Carter að bjóða sig fram aftur gegn Reagan þegar fyrra kjörtímabil hans rann út. Enda eins gott fyrir Carter. Ronald Reagan vann í það sinn- ið alla kjörmennina í 49 ríkjum af 50. Og það munaði aðeins nokkur hundruð atkvæðum að hann ynni líka alla kjörmennina í Minnesota, ríki Mondales, fram- bjóðanda demókrata! Bush eldri tapaði fyrir Bill Clinton. En í þeim kosn- ingum tók repúblikaninn Ross Perot, „þriðji fram- bjóðandinn“, 19% atkvæðanna. Bill Clinton fékk 370 kjörmenn með aðeins 43% atkvæðanna en repúblik- anarnir tveir fengu samanlagt 56% atkvæða. Það er sem sagt ólíklegt að forseti sem tapar reyni að rétta sinn hlut í kosningum fjórum árum síðar. En það er ekki óþekkt! Það er eitt dæmi. Og það heppnaðist. Þannig tapaði demókratinn Grover Cleveland for- seti kosningunum 1888 fyrir repúblikanum Benjamin Harrison. En fjórum árum síðar fór Cleveland fyrrverandi for- seti aftur í framboð og vann Harrison forseta. En hvað segir þetta okkur um framtíðarmöguleika Trumps í þessum efnum? Harla lítið. Það eru þannig næstum engar líkur á því að Biden verði aftur í fram- boði árið 2024. En duttlungar örlaganna eru bíræfnir brandara- karlar. Þeir gætu stillt því þannig upp, að reyndi Trump aft- ur gæti hann, nákvæmlega eins og Cleveland áður, átt þess kost að sigra Harris(on) í seinna skiptið! Morgunblaðið/Eggert ’Það er sem sagt ólíklegt að forseti semtapar reyni að rétta sinn hlut í kosningumfjórum árum síðar. En það er ekki óþekkt! Þaðer eitt dæmi. Og það heppnaðist. 7.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.