Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021 08.00 Blíða og Blær 08.20 Víkingurinn Viggó 08.30 Strumparnir 08.55 Adda klóka 09.20 Mia og ég 09.40 Lína Langsokkur 10.05 Lukku láki 10.30 Ævintýri Tinna 10.50 Angry Birds Stella 11.00 It’s Pony 11.20 Are You Afraid of the Dark? 12.05 Nágrannar 12.25 Nágrannar 12.50 Nágrannar 13.10 Nágrannar 13.30 Nágrannar 13.55 Modern Family 14.15 Impractical Jokers 14.40 Top 20 Funniest 15.20 BBQ kóngurinn 15.55 Um land allt 16.50 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Leitin að upprunanum 19.45 The Great British Bake Off 20.45 Finding Alice 21.35 Tell Me Your Secrets 22.25 Prodigal Son 2 23.10 Tin Star: Liverpool 00.05 Warrior ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi 20.30 Þegar – Tinna Stef- ánsdóttir 21.00 Sögur frá Grænlandi 21.30 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Viðurkenningarhátíð FKA 21.30 Viðurkenningarhátíð FKA Endurt. allan sólarhr. 12.30 Dr. Phil 13.15 Dr. Phil 14.00 The Bachelor 15.20 Það er komin Helgi 16.35 The King of Queens 16.55 Everybody Loves Ray- mond 17.20 Dr. Phil 18.05 For the People 18.50 Hver drap Friðrik Dór? 19.30 Með Loga 20.00 The Block 21.20 Law and Order: Special Victims Unit 22.10 Your Honor 24.00 Station 19 00.45 The Resident 01.30 The Rookie 02.15 Blue Bloods 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Lang- holtskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Stoðkerfið. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ástir gömlu meist- aranna. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Úmísúmí 07.44 Kalli og Lóa 07.56 Poppý kisukló 08.07 Kúlugúbbarnir 08.30 Lautarferð með köku 08.36 Hæ Sámur – 41. þáttur 08.43 Flugskólinn 09.05 Hrúturinn Hreinn 09.12 Múmínálfarnir 09.34 Kátur 09.36 Konráð og Baldur 09.49 Sjóræningjarnir í næsta húsi 10.00 Vísindahorn Ævars 10.05 Tónatal – brot 10.15 Daði og gagnamagnið 11.00 Silfrið 12.10 Einmana á miðjum aldri 12.40 Með sálina að veði – París 13.40 Við getum þetta ekki 14.10 Merkisdagar – Brúð- kaup 14.40 Rúnturinn 16.00 50 km skíðaganga karla 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Menningin – samantekt 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.50 Landinn 20.20 Flugslysið í Færeyjum 21.15 Lítil þúfa – Menntun 22.20 Faðmlag slöngunnar 00.20 Silfrið 01.20 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. Villi Neto hefur und- anfarnar vikur verið í karakter vegna þáttanna Hver drap Friðrik Dór sem eru nú komnir í sýningu hjá Sjónvarpi Sím- ans. Villi mætti í Síðdegisþáttinn til þeirra Loga Berg- manns og Sigga Gunnars og ræddi þar við þá um þætt- ina og hvernig það væri að vera í karakter svona lengi. Þar viðurkennir Villi að það hafi tekið á andlega að halda karakter í svo langan tíma. Þættirnir eru flóknir og ólíkir því sjónvarpsefni sem áður hefur verið gert hér á landi en Villi segir þá hafa fengið góðar mót- tökur og að viðbrögðin hafi yfirhöfuð verið mjög góð. Viðtalið við Villa má nálgast á K100.is. Loksins kominn úr karakter Sjanghæ. AFP. | Fyrir fimm árum hét Xi Jinping, forseti Kína, því að Kína yrði orðið knattspyrnuveldi árið 2050. Hrun nýkrýnds Kínameistara hefur vakið efasemdir um að þetta háleita markmið sé raunhæft. Á sunnudag tilkynntu ráðamenn Jiangsu FC að „starfsemi hefði verið hætt“. Aðeins fjórir mánuðir eru síð- an félagið sigraði í kínversku ofur- deildinni. Í kínverskum ríkismiðlum voru tíðindin sögð „áfall“. Á sínum tíma ruku fjárfestar til og jusu peningum í fótboltann, ekki síst til að vinna hylli forsetans og komm- únistaflokksins. Nú draga þeir sig brenndir til baka og í fyrra drógu sig 16 lið úr keppni í kínverskum fótbolta. Búist er við að fleiri fylgi í kjölfarið. Margt hefur því breyst síðan ofur- deildin sló Asíumetið í verði fyrir knattspyrnuleikmann í fimmgang sama árið. Kaupæðið náði hámarki þegar Brasilíumaðurinn Oscar var keyptur á 60 milljónir evra (rúmar 90 milljarða króna) til Sjanghæ SIPG í janúar 2017. Argentínski markaskorarinn Car- los Tevez gekk í sama leikmanna- skiptaglugga til liðs við Sjanghæ Shenhua þar sem hann fékk sam- kvæmt fréttum 730 þúsund evrur (rúmar 112 milljónir króna) á viku, sem munu hafa verið hæstu laun knattspyrnumanns í heimi. Ríkisfréttastofan Xinhua sagði í vikunni að svimandi há laun og greiðslur fyrir leikmenn þar sem fé- lögin kepptust við að eyða meira en andstæðingarnir hefðu orðið til þess að til varð blaðra, sem nú væri að springa. Eytt um efni fram Fréttastofan vitnaði í tölur frá Kín- verska knattspyrnusambandinu um að meðaleyðsla félaganna 16 í ofur- deildinni hefði keppnistímabilið 2018 verið um 1,1 milljarður júan (tæplega 22 milljarðar króna), en meðaltekj- urnar hefðu verið 686 milljón júan. „Útgjöld kínversku ofurdeildar- innar eru um tífalt hærri en hjá K-deildinni í Suður-Kóreu og þrefalt hærri en í J-deildinni í Japan,“ sagði Chen Xuxyan, forseti Kínverska knattspyrnusambandsins, þegar til- kynnt var um launaþak í ofurdeildinni. Blaðamaðurinn Ma Dexing, sem hefur fjallað um kínverskan fótbolta í 30 ár, sagði að á þeim tíma hefði hann orðið vitni að því að rúmlega 200 félög færu á höfuðið og gaf til kynna að vandinn væri víðtækari en núverandi hremmingar og kórónukreppan, sem olli margra mánaða frestun á ofur- deildinni og varð til þess að leikið var fyrir luktum dyrum. Búist er við því að það sé aðeins da- gaspursmál hvenær Tinajin-tígrarnir, sem hafa verið föst stærð í ofurdeild- inni frá því hún var stofnuð árið 2004, leggi upp laupana og móðurfélag He- bei FC er að drukkna í skuldum. „Meginástæðan er sú að undir- stöður atvinnumennsku í kínverskum fótbolta eru of veikar,“ skrifaði Ma, sem er með 1,5 milljónir fylgjenda á Weibo, hinu kínverska Twitter, í dálki sínum. Hann rakti það til þess að íþróttafélögin rækju fyrirtæki sem hefðu litlar rætur í þeim samfélögum þar sem þau væru. „Þess vegna byggist afkoma at- vinnufélaganna í Kína beint á fjár- hagsstöðu fyrirtækisins,“ skrifaði hann. „Þegar fyrirtækið lendir í vand- ræðum hættir klúbburinn að vera til.“ Það kom einmitt fyrir Jiangsu FC, sem þar til nýlega hét Jiangsu Suning eftir eigendunum. Fyrirtækja- samsteypan Suning, sem einnig á ítalska félagið Inter Mílanó, er í kröggum og lét félagið róa. Í Beijing News sagði að nýleg til- skipun knattspyrnusambandsins um að nota ekki heiti stuðningsfyrir- tækja í nöfnum félaga til að efla tengslin við grasrótina hefði verið kornið sem fyllti mælinn fyrir suma. Liu Yi, framkvæmdastjóri Kín- verska knattspyrnusambandsins, sagði í viðtali við AFP í fyrra að öflug ofurdeild væri lykilatriði ætti að upp- fylla metnaðarfull markmið um að halda HM í fótbolta og verða jafnvel heimsmeistarar. Lítið þokast með landsliðið Áhyggjur hafa vaknað um að áhersla á að kaupa útlendinga muni koma í veg fyrir að innlendir leikmenn nái að dafna og því var settur sérstakur skattur á erlenda leikmenn og launa- þak að auki. Í vor á deildin að fara af stað að nýju undir merkjum aukinnar ráð- deildar og fyrirhyggju. Ekki er þó ljóst hvenær það verður vegna veir- unnar og ekki er heldur víst hvaða lið verða með. Þá hefur landsliðið aðeins þokast upp um fimm sæti á lista FIFA yfir knattspyrnuþjóðir heims frá því að greint var frá því að Kína ætti að vera orðið knattspyrnuveldi um miðja öld- ina, er í 75. sæti, rétt fyrir ofan lands- lið stríðshrjáðra Sýrlendinga. Kína hefur aðeins einu sinni komist á HM. Það var árið 2002. Þeim tókst ekki að skora mark og fengu ekkert stig í þremur leikjum í sínum riðli. Fjórum mánuðum eftir að Jiangsu FC varð Kínameistari lagði félagið upp laupana. AFP KÍNA ÆTLAÐI AÐ VERÐA KNATTSPYRNUVELDI 2050 Draumur forset- ans fjarlægist –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. mars 2021BLAÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.