Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Síða 32
Ríkissjónvarpið hefur sýningar á flunkunýjum tónlistarþætti sem kallast Straumar næstkomandi laugardagskvöld. Ekki verður ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta þætt- inum en þá verður þemað Júróvisjón en þjóðin hefur um langt árabil haft mikið dálæti á þeirri ágætu keppni og götur gjarnan tæmst meðan á henni stendur. Hápunktur þáttarins verður væntanlega frumflutningur á framlagi Íslands til Júróvisjón ár- ið 2021 sem tónlistarflokkurinn geðþekki Daði og Gagnamagnið flytur, að beiðni húsbænda í Efstaleiti. Slík er hlýja landsmanna í garð Daða og félaga að ekki þótti þörf á að henda í undan- keppni að þessu sinni. Í seinni fjórum þáttum seríunnar verða einstakir áratugir í forgrunni, áttan, sjöan, sexan og nían, eins og unga fólkið kallar þá dýrðlegu tíma. Umsjón með Straumum hafa Björg Magnúsdóttir og Freyr Eyjólfsson sem vonandi á eftir að henda í eina eða tvær eftirhermur milli laga. Daði og Gagna- magnið verja heiður Íslands í Júróvisjón 2021. Morgunblaðið/Eggert Júrómantík og þáþrá Björg Magnúsdóttir er annar umsjónarmanna hinna nýju tónlistarþátta á RÚV, Strauma. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýr tónlistarþáttur hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu um næstu helgi. SUNNUDAGUR 7. MARS 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 499.000,- DUCA model 2959 L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,- L 241 cm Leður ct. 10 Verð 549.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla MENTORE model 3052 L 162 cm Leður ct. 10 Verð 419.000,- L 201 cm Leður ct. 10 Verð 469.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ETOILE model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 529.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 569.000,- Viðmótið á forsíðu Morgun- blaðsins árið 1941 var býsna frá- brugðið því sem við eigum að venjast í dag. Í stað harðra frétta og burðarljósmyndar var þar eingöngu að finna auglýsingar og þá ekki síst smáauglýsingar. Á forsíðu blaðsins 7. mars það ár var aðalauglýsingin helguð hinu fljótvirka FLIK-FLAK- sápulöðri „sem leysir og fjar- lægir öll óhreinindi á stuttri stundu“. Mikið var auglýst eftir fólki í vinnu, ekki síst stúlkum. Café Central vantaði stúlku strax og ónefndur veitingastaður auglýsti eftir stúlku. „Mánaðarlaun kr. 150.00, auk dýrtíðaruppbótar.“ Ekki amalegt. Þá vantaði kven- mann til að veita forstöðu vefn- aðarvöruverslun í bænum. Einn- ig lýsti ung, reglusöm og ábyggileg stúlka eftir atvinnu og var reiðubúin að vinna kauplaust í tvær vikur til reynslu og ungur og reglusamur maður með minna bílpróf óskaði eftir vinnu. Nokkuð var auglýst eftir bif- reiðum til kaups og verslanir voru duglegar að minna á síma- númer sitt. Þannig var Kaup- höllin með nýtt númer, 1710, Klæðaverszlun Andrjesar And- rjessonar h.f. var með 1737 og h.f. Hamar með 1695. Fatabúðin auglýsti góðar vörur á góðu verði, svo sem líf- stykki og mjaðmabelti og kola- ausurnar voru komnar í Biering. Síðast en alls ekki síst þá þakk- aði Jón Jónsson á Hofi í Vatnsdal hjartanlega öllum þeim sem heiðruðu hann á áttræðisafmæli hans með heimsóknum og heillaskeytum. GAMLA FRÉTTIN Látið FLIK-FLAK þvo fyrir yður! Fínasta silki og óhreinustu verka- mannaföt, FLIK-FLAK þvær allt. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Björn Thors leikari Kári Árnason miðvörður Pablo Marí miðvörður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.