Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Síða 10
„Ég fór bara sjálfur eftir mjólk. Kannski nennti ég ekki að tuða í þeim,“ segir Felix og brosir. „Við erum ekkert öðruvísi en aðrir for- eldrar.“ Felix segir eitt aðalatriðið hafa verið að húsið væri alltaf opið þeim og vinum þeirra, líka á þeim vikum sem þau byggju hjá mæðrum sín- um. „Þetta gekk mjög vel og mæðurnar voru til í þetta fyrirkomulag sem var frábært. Og af því að á þessum tíma þóttum við óhefðbundin fjöl- skylda var mikilvægt að allir sæju að þarna væri bara um að ræða venjulega Vesturbæjar- fjölskyldu,“ segir Felix og Baldur bætir við að hvorki þeir né börnin hafi upplifað fordóma. „Nema það að orðið hommi var stundum not- að í neikvæðri merkingu,“ segir Baldur og Felix bendir á að enn í dag má heyra rapp-texta með fordómafullum orðum í garð samkynhneigðra. Börnin í fótspor feðranna Nú er sonurinn leikari og dóttirin stjórnmála- fræðingur. Voru þetta samantekin ráð? „Ég segi stundum að við unnum,“ segir Bald- ur í gríni. Þeir þvertaka fyrir að hafa ýtt börnunum út í að feta í fótspor þeirra. „Ég held að dóttir okkar hafi verið feimin að segja okkur að hún ætlaði í stjórnmálafræði,“ segir Baldur kíminn. „Álfrún Perla tók sér ársfrí til að flakka um heiminn og finna sig og kom svo til mín og sagði; „pabbi, veistu að ég held ég fari bara í stjórn- málafræði.“ Ég svaraði: „Veistu Álfrún Perla, ég hefði getað sparað þér ár“,“ segir Felix og hlær. Sonurinn Guðmundur tók háskólapróf frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands og vinnur mikið við leikstjórn. „Hann er mikið að leika, er í spuna og er að leikstýra,“ segir Felix og segir þau bæði á réttri hillu. „Við höfum nóg að ræða við matarborðið og svo er tengdadóttirin, Þuríður Blær Jóhanns- dóttir, leikkona og tengdasonurinn, Árni Freyr Magnússon, sagnfræðingur,“ segir Baldur og viðurkennir að mikið sé talað um stjórnmál á heimilinu. „Við þusum alveg rosalega mikið á morgn- ana,“ segir Felix og þeir hlæja dátt. Felix segist vissulega vera pólítískur en lætur þó Baldur um að starfa og hrærast í stjórn- málum. Baldur var mjög virkur í stúdentapólitíkinni í Vöku á sínum tíma og sat síðar á þingi fyrir Samfylkinguna. „Ég var virkur í ungliðahreyfingu Sjálfstæð- isflokksins áður en ég fór til Bretlands. Eftir fjögurra ára dvöl í Bretlandi sá ég hvað Íhalds- flokkurinn gerði bresku samfélagi og það hafði mikil áhrif á mig. Í kringum hrunið gekk ég í Samfylkinguna og var varaþingmaður og settist á þing sem var mjög skemmtileg reynsla og gaf mér góða innsýn í stjórnmálin og hefur hjálpað mér að greina þau eftir á,“ segir Baldur og seg- ist ekki hafa verið virkur í pólitík síðan 2013. Hjónin segjast hafa mjög svipaðar stjórn- málaskoðanir og hugsjónir. „Við erum báðir alþjóðasinnar og Evrópu- sinnar og trúum á að samstarf þjóða sé heilla- vænlegt,“ segir Felix. Hinn sanni Eurovision-aðdáandi Felix hefur verið sjálfstætt starfandi listamaður allar götur síðan hann var í Greifunum sem ungur maður. Hann er um þessar mundir að leika í Mömmu Klikk í Gaflaraleikhúsinu, með útvarpsþátt hjá RÚV og er fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins. „Ég leiði vinnuna við að koma atriðinu á svið og stjórna ferðinni frá A til Ö,“ segir Felix og segir stefnuna vera að öll lönd mæti til Rotter- dam og flytji sín lög á sviðinu. Hann segir enn óvíst hvort áhorfendur verði í salnum. „Ég er búinn að vinna í Eurovision meira og minna í áratug. Byrjaði sem PR-maður, varð svo kynnir og endaði sem fararstjóri. Þetta er ótrúlega gaman og heilmikil vinna. Fyrir mann eins og mig sem hefur gríðarlegan áhuga á list- um og fjölmiðlum, þá eru þarna áhugamálin sameinuð. Þetta er stærsti sjónvarpsþáttur í heimi og þarna kemur margt frambærilegt fólk alls staðar að. Alþjóðasinninn og diplómatinn ég er þarna eins og fiskur í vatni,“ segir Felix og segist vinna í því að koma keppninni hingað heim einn góðan veðurdag. Ert þú Eurovision-aðdáandi Baldur? „Sko. Ég er hinn sanni Eurovision-aðdáandi og var það þegar við hittumst! Hann var þá meira skeptískur á Eurovision en það var ég sem hélt Eurovision-partí og hafði gert lengi. En nú upp á síðkastið hef ég verið að grúska í hinu pólitíska og samfélagslega hlutverki Euro- vision. Mér finnst það spennandi og hef sankað að mér alls kyns efni. Það kemur að því að ég geti skrifað um það fræðigrein,“ segir Baldur og blaðamanni verður að orði að honum takist alls staðar að troða stjórnmálum að. „Ég reyni það sko!“ segir Baldur og Felix bætir við að vissulega sé pólitík í Eurovision, enda hafi söngvakeppnin upphaflega verið póli- tískur friðarviðburður í stríðshrjáðri Evrópu. „Þarna geta Evrópubúar sameinast eina kvöldstund um það sem þeir eiga sameiginlegt og ýtt til hliðar ágreiningsefnum,“ segir Baldur sem hyggst nota sína vitneskju um Eurovision í námskeiði um smáríki í Evrópu á næstunni, en eitt sérsviða Baldurs eru smáríki. Ísland í skjóli Felix er með fleiri járn í eldinum því hann hefur nóg að gera við að skemmta börnum. „Ég er enn að vinna með Gunna Helga og í haust munum við halda 25 ára afmælistónleika Gunna og Felix í Háskólabíói,“ segir hann og segist einnig taka að sér veislustjórn. „Ég hef alltaf verið sjálfs mín herra og hef kosið það að festa mig ekki neins staðar.“ Felix og Baldur segjast gjarnan vinna í sama rými, bæði heima og erlendis, en báðir hafa mikinn áhuga á að skoða heiminn og jafnvel vinna í leiðinni. „Við höfum gert það alveg síðan við kynnt- umst, að fara reglulega utan í viku eða tvær til að skrifa. Felix er þá að sinna listsköpun sinni og ég að skrifa fræðigreinar og bækur,“ segir Baldur en meðfram kennslunni í HÍ stundar hann rannsóknarvinnu og skriftir. Baldur segir kennsluna hafa að mestu farið fram á netinu undanfarið ár í faraldrinum. „Það hefur komið skemmtilega á óvart hvað það hefur gengið vel og nemendur eru mjög virkir í samtali yfir netið og jafnvel virkari en áður,“ segir Baldur og segist nú um þessar mundir vera að leggja lokahönd á bók á ensku, sem gefin verður út í Bandaríkjunum. „Bókin er um alþjóðasamskipti Íslands í sögulegu samhengi frá landnámi til stofnunar lýðveldis. Ég er þar að skoða hvort landið hafi verið í skjóli erlendra ríkja í gegnum tíðina en ég hef verið að vinna með þær kenningar að smáríki þurfi skjól. Ég velti meðal annars fyrir mér hvort Íslandi hafi verið í skjóli af Dan- mörku eða hvort Danmörk hafi verið „vonda“ nýlenduveldið.“ Og hvert er svarið? „Svarið við þúsund ára sögunni?“ segir Bald- ur og hlær. „Stutta svarið er að við höfum í rauninni allar götur verið í skjóli voldugra nágranna en skjólið hefur á stundum verið kostnaðarsamt.“ Að fara út fyrir Evrópu Áhugamál Baldurs og Felix eru margvísleg og segjast þeir njóta þess að bjóða fjölskyldu og vinum heim í mat og jafnvel eru þá spiluð borð- spil. „Okkur finnst mjög gaman að halda boð og spila, þótt það hafi verið minna um það núna í Covid,“ segir Felix. „Við förum saman í crossfit þrisvar í viku og svo hjólum við mikið. Það eru okkar gæðastund- ir,“ segir Baldur. „Ferðalög eru mikið áhugamál; við viljum heimsækja sem flesta staði á jarðarkringlunni. Við höfum farið víða, til Evrópu, Asíu og Suður- Ameríku,“ segir Felix. Baldur segir þá hafa áttað sig á því fyrir nokkru að áfangastaðirnir voru yfirleitt önnur Evrópuríki. Þá var kominn tími á nýtt fimm ára plan. „Þá gerðum við plan um að ferðast til tveggja ólíkra menningarheima tvisvar á ári í fimm ár. Það varð til þess að við fórum út fyrir Evrópu,“ segir Baldur. Felix segist einnig horfa mikið á fótbolta og þá gjarnan með syninum Guðmundi. „Ég er brjálaður KR-ingur og Liverpool- maður. Það er búið að vera dálítið erfitt síðustu vikur.“ Helgar í hellum „Þegar Felix er í fótboltanum er ég að grafa út manngerða hella,“ segir Baldur. Blaðamaður hváir. Manngerða hella? „Ég er frá bæ sem heitir Ægissíða í Rangár- vallasýslu. Á bænum er að finna tólf manngerða hella sem munnmælasögur segja að séu jafnvel gerðir af Pöpum, írsku fólki sem nam hér land á undan norrænum mönnum. Afi minn sagði mér þessa sögu og afi hans honum. Fjölskyldan hef- ur undanfarin fimm ár verið að standsetja þessa hella, moka út úr þeim, búa til forskála og gera þá aðgengilega fyrir almenning með það í huga að varðveita þá. Það er tvö hundruð manngerða sandsteinshella að finna frá Vík og til Hvera- gerðis og eru þeir fullir af ristum og rúnum. Yfir þeim ríkir dulúð því það veit enginn hver gerði þá, í hvaða tilgangi eða hvenær,“ segir Baldur og segist eyða flestum helgum fyrir austan að bardúsa við hellana eða að leiðsegja fólki um þá. „Þessar spurningar hafa aldrei vafist fyrir fólkinu á Ægissíðu vegna munnmælasagnanna. Við segjum þessar sögur um hugsanlega veru Íra í hellunum en segjum líka frá hvernig bænd- ur hafa nýtt þá í gegnum tíðina. Um miðja síð- ustu öld voru allir þessir hellar í notkun bænda. Þeir voru notaðir sem geymslur, fjárhús, hlöð- ur, íshús og reykhús,“ segir Baldur og segir nú fjóra hella aðgengilega almenningi. Fjölskylda Baldurs hefur unnið að þessu verkefni í samvinnu við Minjastofnun Íslands og hafa þau fengið styrki til verksins. „Við stofnuðum fyrirtækið Hellarnir við Hellu og opnuðum þá fyrir almenningi í janúar í fyrra. Rétt fyrir Covid,“ segir hann og segir nú opið alla laugardaga en í sumar verði opið alla daga. Baldur segir Íslendinga hafa heldur betur verið duglega að heimsækja hellana í fyrrasum- ar og það verði opið líka núna um páskana. „Nú er ég þarna allar helgar að leiðsegja og taka á móti fólki,“ segir Baldur og segir Felix mjög oft koma með. „Ég skipti mér lítið af hellunum en hef tekið að mér að elda fyrir liðið og horfa á fótbolta með gamla manninum, Þórhalli Ægi, föður Bald- urs,“ segir Felix og hlær. Tekist á um línulega dagskrá Það er farið að líða að kvöldmat í fallega gula húsinu við sjóinn. Laxinn bíður á borðinu en Guðmundur og kona hans Blær eru á leið í mat ásamt foreldrum Felix, Ingibjörgu og Bergi. Eins gaman og það er að spjalla við þá Baldur og Felix, er kominn tími til að slá botninn í sam- talið. Ljóst er að hjónin eru afar samstíga og sátt í sínu lífi og sambúðin farsæl. Blaðamaður getur samt ekki stillt sig og spyr: Er ekkert sem fer í taugarnar á ykkur við makann? Þeir skellihlæja báðir. Baldur segist þurfa að hugsa sig um. „Við erum ekki alltaf alveg sammála um Eurovision-lögin,“ segir hann kíminn. „Á einhvern máta er sambandið áreynslu- laust. Okkur líður gríðarlega vel saman,“ segir Felix en bætir við eftir smá umhugsun: „En það er rosalega pirrandi hvað Baldur er fastur í línulegri dagskrá í sjónvarpinu! Hann spyr: „Hvað er í sjónvarpinu í kvöld?“ Þá rang- hvolfi ég í mér augunum og spyr: „Hvað viltu að sé í sjónvarpinu í kvöld?“,“ segir Felix og hlær. „Þarna kom hann með það! Hann vill alltaf horfa á kvöldfréttir nokkrum mínútum eftir að þær hefjast! Það er bara svindl!“ segir Baldur. „Um þetta er tekist á við kvöldverðarborðið.“ Ekkert betra en bros frá krílunum Hvað er á fimm ára planinu núna? „Að vera aðeins meira í Berlín og ferðast. Svo ætlum við að njóta lífsins með barnabörnunum okkar,“ segir Felix. „Mig langar að vinna aðeins minna en ég dregst alltaf inn í meiri vinnu,“ segir Baldur og segja þeir kórónuveiruárið hafa farið vel með þá. „Það var auðvitað minna að gera hjá mér, en ég lifi það alveg af,“ segir Felix. „Barnabörnin tvö komu á síðasta ári, með þriggja vikna millibili. Við erum búnir að eiga gott ár í rauninni. Svo erum við Baldur líka mjög vanir að vera tveir að dúlla okkur en við erum ofsalega mikið saman. Þannig að það var ekki mikil breyting fyrir okkur. Við bjuggum til okkar búbblu, sem vorum við, börnin og barna- börnin, sem var bara dásamlegt,“ segir Felix. „Við höfum alltaf eytt miklum tíma með börn- unum en í fyrra þá vorum við bara alltaf saman. Hér var borðað saman annan hvern dag,“ segir Baldur. Þeir eru að vonum mjög uppteknir af afahlut- verkinu sem þeir segja engu líkt. „Þetta er stórkostlegt. Þegar börnin okkar voru að fæðast var það eitthvað svo eðlilegt. En þetta er svo mikið kraftaverk; maður upplifir þetta á allt annan máta. Barnabörnin fagna manni svo innilega og það er ekkert fallegra en að fá bros frá þessum krílum,“ segir Felix og Baldur tekur undir það. „Þetta er einhvern veginn alveg ný tilfinning sem maður vissi ekki að væri til. Flest annað í heiminum skiptir voða litlu máli,“ segir Baldur og Felix bætir við: „Við erum svo þakklátir að fá að vera svona mikið með barnabörnunum. Við erum bara afskaplega heppnir með okkar fólk.“ Fjölskyldan er afar samrýnd. Frá vinstri má sjá Álfrúnu Perlu Baldurdóttur, Árna Frey Magnússon, Arnald Snæ Guðmundsson, Baldur og Felix, Eydísi Ylfu Árnadóttur, Þuríði Blæ Jóhannsdóttur og Guðmund Felixson. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir ’ Barnabörnin tvö komu á síð- asta ári, með þriggja vikna millibili. Við erum búnir að eiga gott ár í rauninni. Svo erum við Baldur líka mjög vanir að vera tveir að dúlla okkur en við erum ofsalega mikið saman. VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.