Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 10
„Ég fór bara sjálfur eftir mjólk. Kannski nennti
ég ekki að tuða í þeim,“ segir Felix og brosir.
„Við erum ekkert öðruvísi en aðrir for-
eldrar.“
Felix segir eitt aðalatriðið hafa verið að húsið
væri alltaf opið þeim og vinum þeirra, líka á
þeim vikum sem þau byggju hjá mæðrum sín-
um.
„Þetta gekk mjög vel og mæðurnar voru til í
þetta fyrirkomulag sem var frábært. Og af því
að á þessum tíma þóttum við óhefðbundin fjöl-
skylda var mikilvægt að allir sæju að þarna
væri bara um að ræða venjulega Vesturbæjar-
fjölskyldu,“ segir Felix og Baldur bætir við að
hvorki þeir né börnin hafi upplifað fordóma.
„Nema það að orðið hommi var stundum not-
að í neikvæðri merkingu,“ segir Baldur og Felix
bendir á að enn í dag má heyra rapp-texta með
fordómafullum orðum í garð samkynhneigðra.
Börnin í fótspor feðranna
Nú er sonurinn leikari og dóttirin stjórnmála-
fræðingur. Voru þetta samantekin ráð?
„Ég segi stundum að við unnum,“ segir Bald-
ur í gríni.
Þeir þvertaka fyrir að hafa ýtt börnunum út í
að feta í fótspor þeirra.
„Ég held að dóttir okkar hafi verið feimin að
segja okkur að hún ætlaði í stjórnmálafræði,“
segir Baldur kíminn.
„Álfrún Perla tók sér ársfrí til að flakka um
heiminn og finna sig og kom svo til mín og sagði;
„pabbi, veistu að ég held ég fari bara í stjórn-
málafræði.“ Ég svaraði: „Veistu Álfrún Perla,
ég hefði getað sparað þér ár“,“ segir Felix og
hlær.
Sonurinn Guðmundur tók háskólapróf frá
sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands og
vinnur mikið við leikstjórn.
„Hann er mikið að leika, er í spuna og er að
leikstýra,“ segir Felix og segir þau bæði á réttri
hillu.
„Við höfum nóg að ræða við matarborðið og
svo er tengdadóttirin, Þuríður Blær Jóhanns-
dóttir, leikkona og tengdasonurinn, Árni Freyr
Magnússon, sagnfræðingur,“ segir Baldur og
viðurkennir að mikið sé talað um stjórnmál á
heimilinu.
„Við þusum alveg rosalega mikið á morgn-
ana,“ segir Felix og þeir hlæja dátt.
Felix segist vissulega vera pólítískur en lætur
þó Baldur um að starfa og hrærast í stjórn-
málum.
Baldur var mjög virkur í stúdentapólitíkinni í
Vöku á sínum tíma og sat síðar á þingi fyrir
Samfylkinguna.
„Ég var virkur í ungliðahreyfingu Sjálfstæð-
isflokksins áður en ég fór til Bretlands. Eftir
fjögurra ára dvöl í Bretlandi sá ég hvað Íhalds-
flokkurinn gerði bresku samfélagi og það hafði
mikil áhrif á mig. Í kringum hrunið gekk ég í
Samfylkinguna og var varaþingmaður og settist
á þing sem var mjög skemmtileg reynsla og gaf
mér góða innsýn í stjórnmálin og hefur hjálpað
mér að greina þau eftir á,“ segir Baldur og seg-
ist ekki hafa verið virkur í pólitík síðan 2013.
Hjónin segjast hafa mjög svipaðar stjórn-
málaskoðanir og hugsjónir.
„Við erum báðir alþjóðasinnar og Evrópu-
sinnar og trúum á að samstarf þjóða sé heilla-
vænlegt,“ segir Felix.
Hinn sanni Eurovision-aðdáandi
Felix hefur verið sjálfstætt starfandi listamaður
allar götur síðan hann var í Greifunum sem
ungur maður. Hann er um þessar mundir að
leika í Mömmu Klikk í Gaflaraleikhúsinu, með
útvarpsþátt hjá RÚV og er fararstjóri íslenska
Eurovision-hópsins.
„Ég leiði vinnuna við að koma atriðinu á svið
og stjórna ferðinni frá A til Ö,“ segir Felix og
segir stefnuna vera að öll lönd mæti til Rotter-
dam og flytji sín lög á sviðinu. Hann segir enn
óvíst hvort áhorfendur verði í salnum.
„Ég er búinn að vinna í Eurovision meira og
minna í áratug. Byrjaði sem PR-maður, varð
svo kynnir og endaði sem fararstjóri. Þetta er
ótrúlega gaman og heilmikil vinna. Fyrir mann
eins og mig sem hefur gríðarlegan áhuga á list-
um og fjölmiðlum, þá eru þarna áhugamálin
sameinuð. Þetta er stærsti sjónvarpsþáttur í
heimi og þarna kemur margt frambærilegt fólk
alls staðar að. Alþjóðasinninn og diplómatinn ég
er þarna eins og fiskur í vatni,“ segir Felix og
segist vinna í því að koma keppninni hingað
heim einn góðan veðurdag.
Ert þú Eurovision-aðdáandi Baldur?
„Sko. Ég er hinn sanni Eurovision-aðdáandi
og var það þegar við hittumst! Hann var þá
meira skeptískur á Eurovision en það var ég
sem hélt Eurovision-partí og hafði gert lengi.
En nú upp á síðkastið hef ég verið að grúska í
hinu pólitíska og samfélagslega hlutverki Euro-
vision. Mér finnst það spennandi og hef sankað
að mér alls kyns efni. Það kemur að því að ég
geti skrifað um það fræðigrein,“ segir Baldur
og blaðamanni verður að orði að honum takist
alls staðar að troða stjórnmálum að.
„Ég reyni það sko!“ segir Baldur og Felix
bætir við að vissulega sé pólitík í Eurovision,
enda hafi söngvakeppnin upphaflega verið póli-
tískur friðarviðburður í stríðshrjáðri Evrópu.
„Þarna geta Evrópubúar sameinast eina
kvöldstund um það sem þeir eiga sameiginlegt
og ýtt til hliðar ágreiningsefnum,“ segir Baldur
sem hyggst nota sína vitneskju um Eurovision í
námskeiði um smáríki í Evrópu á næstunni, en
eitt sérsviða Baldurs eru smáríki.
Ísland í skjóli
Felix er með fleiri járn í eldinum því hann hefur
nóg að gera við að skemmta börnum.
„Ég er enn að vinna með Gunna Helga og í
haust munum við halda 25 ára afmælistónleika
Gunna og Felix í Háskólabíói,“ segir hann og
segist einnig taka að sér veislustjórn.
„Ég hef alltaf verið sjálfs mín herra og hef
kosið það að festa mig ekki neins staðar.“
Felix og Baldur segjast gjarnan vinna í sama
rými, bæði heima og erlendis, en báðir hafa
mikinn áhuga á að skoða heiminn og jafnvel
vinna í leiðinni.
„Við höfum gert það alveg síðan við kynnt-
umst, að fara reglulega utan í viku eða tvær til
að skrifa. Felix er þá að sinna listsköpun sinni
og ég að skrifa fræðigreinar og bækur,“ segir
Baldur en meðfram kennslunni í HÍ stundar
hann rannsóknarvinnu og skriftir.
Baldur segir kennsluna hafa að mestu farið
fram á netinu undanfarið ár í faraldrinum.
„Það hefur komið skemmtilega á óvart hvað
það hefur gengið vel og nemendur eru mjög
virkir í samtali yfir netið og jafnvel virkari en
áður,“ segir Baldur og segist nú um þessar
mundir vera að leggja lokahönd á bók á ensku,
sem gefin verður út í Bandaríkjunum.
„Bókin er um alþjóðasamskipti Íslands í
sögulegu samhengi frá landnámi til stofnunar
lýðveldis. Ég er þar að skoða hvort landið hafi
verið í skjóli erlendra ríkja í gegnum tíðina en
ég hef verið að vinna með þær kenningar að
smáríki þurfi skjól. Ég velti meðal annars fyrir
mér hvort Íslandi hafi verið í skjóli af Dan-
mörku eða hvort Danmörk hafi verið „vonda“
nýlenduveldið.“
Og hvert er svarið?
„Svarið við þúsund ára sögunni?“ segir Bald-
ur og hlær.
„Stutta svarið er að við höfum í rauninni allar
götur verið í skjóli voldugra nágranna en skjólið
hefur á stundum verið kostnaðarsamt.“
Að fara út fyrir Evrópu
Áhugamál Baldurs og Felix eru margvísleg og
segjast þeir njóta þess að bjóða fjölskyldu og
vinum heim í mat og jafnvel eru þá spiluð borð-
spil.
„Okkur finnst mjög gaman að halda boð og
spila, þótt það hafi verið minna um það núna í
Covid,“ segir Felix.
„Við förum saman í crossfit þrisvar í viku og
svo hjólum við mikið. Það eru okkar gæðastund-
ir,“ segir Baldur.
„Ferðalög eru mikið áhugamál; við viljum
heimsækja sem flesta staði á jarðarkringlunni.
Við höfum farið víða, til Evrópu, Asíu og Suður-
Ameríku,“ segir Felix.
Baldur segir þá hafa áttað sig á því fyrir
nokkru að áfangastaðirnir voru yfirleitt önnur
Evrópuríki. Þá var kominn tími á nýtt fimm ára
plan.
„Þá gerðum við plan um að ferðast til tveggja
ólíkra menningarheima tvisvar á ári í fimm ár.
Það varð til þess að við fórum út fyrir Evrópu,“
segir Baldur.
Felix segist einnig horfa mikið á fótbolta og
þá gjarnan með syninum Guðmundi.
„Ég er brjálaður KR-ingur og Liverpool-
maður. Það er búið að vera dálítið erfitt síðustu
vikur.“
Helgar í hellum
„Þegar Felix er í fótboltanum er ég að grafa út
manngerða hella,“ segir Baldur.
Blaðamaður hváir.
Manngerða hella?
„Ég er frá bæ sem heitir Ægissíða í Rangár-
vallasýslu. Á bænum er að finna tólf manngerða
hella sem munnmælasögur segja að séu jafnvel
gerðir af Pöpum, írsku fólki sem nam hér land á
undan norrænum mönnum. Afi minn sagði mér
þessa sögu og afi hans honum. Fjölskyldan hef-
ur undanfarin fimm ár verið að standsetja þessa
hella, moka út úr þeim, búa til forskála og gera
þá aðgengilega fyrir almenning með það í huga
að varðveita þá. Það er tvö hundruð manngerða
sandsteinshella að finna frá Vík og til Hvera-
gerðis og eru þeir fullir af ristum og rúnum. Yfir
þeim ríkir dulúð því það veit enginn hver gerði
þá, í hvaða tilgangi eða hvenær,“ segir Baldur
og segist eyða flestum helgum fyrir austan að
bardúsa við hellana eða að leiðsegja fólki um þá.
„Þessar spurningar hafa aldrei vafist fyrir
fólkinu á Ægissíðu vegna munnmælasagnanna.
Við segjum þessar sögur um hugsanlega veru
Íra í hellunum en segjum líka frá hvernig bænd-
ur hafa nýtt þá í gegnum tíðina. Um miðja síð-
ustu öld voru allir þessir hellar í notkun bænda.
Þeir voru notaðir sem geymslur, fjárhús, hlöð-
ur, íshús og reykhús,“ segir Baldur og segir nú
fjóra hella aðgengilega almenningi.
Fjölskylda Baldurs hefur unnið að þessu
verkefni í samvinnu við Minjastofnun Íslands
og hafa þau fengið styrki til verksins.
„Við stofnuðum fyrirtækið Hellarnir við
Hellu og opnuðum þá fyrir almenningi í janúar í
fyrra. Rétt fyrir Covid,“ segir hann og segir nú
opið alla laugardaga en í sumar verði opið alla
daga.
Baldur segir Íslendinga hafa heldur betur
verið duglega að heimsækja hellana í fyrrasum-
ar og það verði opið líka núna um páskana.
„Nú er ég þarna allar helgar að leiðsegja og
taka á móti fólki,“ segir Baldur og segir Felix
mjög oft koma með.
„Ég skipti mér lítið af hellunum en hef tekið
að mér að elda fyrir liðið og horfa á fótbolta með
gamla manninum, Þórhalli Ægi, föður Bald-
urs,“ segir Felix og hlær.
Tekist á um línulega dagskrá
Það er farið að líða að kvöldmat í fallega gula
húsinu við sjóinn. Laxinn bíður á borðinu en
Guðmundur og kona hans Blær eru á leið í mat
ásamt foreldrum Felix, Ingibjörgu og Bergi.
Eins gaman og það er að spjalla við þá Baldur
og Felix, er kominn tími til að slá botninn í sam-
talið. Ljóst er að hjónin eru afar samstíga og
sátt í sínu lífi og sambúðin farsæl.
Blaðamaður getur samt ekki stillt sig og
spyr:
Er ekkert sem fer í taugarnar á ykkur við
makann?
Þeir skellihlæja báðir.
Baldur segist þurfa að hugsa sig um.
„Við erum ekki alltaf alveg sammála um
Eurovision-lögin,“ segir hann kíminn.
„Á einhvern máta er sambandið áreynslu-
laust. Okkur líður gríðarlega vel saman,“ segir
Felix en bætir við eftir smá umhugsun:
„En það er rosalega pirrandi hvað Baldur er
fastur í línulegri dagskrá í sjónvarpinu! Hann
spyr: „Hvað er í sjónvarpinu í kvöld?“ Þá rang-
hvolfi ég í mér augunum og spyr: „Hvað viltu að
sé í sjónvarpinu í kvöld?“,“ segir Felix og hlær.
„Þarna kom hann með það! Hann vill alltaf
horfa á kvöldfréttir nokkrum mínútum eftir að
þær hefjast! Það er bara svindl!“ segir Baldur.
„Um þetta er tekist á við kvöldverðarborðið.“
Ekkert betra en bros frá krílunum
Hvað er á fimm ára planinu núna?
„Að vera aðeins meira í Berlín og ferðast. Svo
ætlum við að njóta lífsins með barnabörnunum
okkar,“ segir Felix.
„Mig langar að vinna aðeins minna en ég
dregst alltaf inn í meiri vinnu,“ segir Baldur og
segja þeir kórónuveiruárið hafa farið vel með
þá.
„Það var auðvitað minna að gera hjá mér, en
ég lifi það alveg af,“ segir Felix.
„Barnabörnin tvö komu á síðasta ári, með
þriggja vikna millibili. Við erum búnir að eiga
gott ár í rauninni. Svo erum við Baldur líka
mjög vanir að vera tveir að dúlla okkur en við
erum ofsalega mikið saman. Þannig að það var
ekki mikil breyting fyrir okkur. Við bjuggum til
okkar búbblu, sem vorum við, börnin og barna-
börnin, sem var bara dásamlegt,“ segir Felix.
„Við höfum alltaf eytt miklum tíma með börn-
unum en í fyrra þá vorum við bara alltaf saman.
Hér var borðað saman annan hvern dag,“ segir
Baldur.
Þeir eru að vonum mjög uppteknir af afahlut-
verkinu sem þeir segja engu líkt.
„Þetta er stórkostlegt. Þegar börnin okkar
voru að fæðast var það eitthvað svo eðlilegt. En
þetta er svo mikið kraftaverk; maður upplifir
þetta á allt annan máta. Barnabörnin fagna
manni svo innilega og það er ekkert fallegra en
að fá bros frá þessum krílum,“ segir Felix og
Baldur tekur undir það.
„Þetta er einhvern veginn alveg ný tilfinning
sem maður vissi ekki að væri til. Flest annað í
heiminum skiptir voða litlu máli,“ segir Baldur
og Felix bætir við: „Við erum svo þakklátir að fá
að vera svona mikið með barnabörnunum. Við
erum bara afskaplega heppnir með okkar fólk.“
Fjölskyldan er afar samrýnd. Frá vinstri má sjá Álfrúnu
Perlu Baldurdóttur, Árna Frey Magnússon, Arnald Snæ
Guðmundsson, Baldur og Felix, Eydísi Ylfu Árnadóttur,
Þuríði Blæ Jóhannsdóttur og Guðmund Felixson.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
’
Barnabörnin tvö komu á síð-
asta ári, með þriggja vikna
millibili. Við erum búnir að eiga
gott ár í rauninni. Svo erum við
Baldur líka mjög vanir að vera
tveir að dúlla okkur en við erum
ofsalega mikið saman.
VIÐTAL
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021