Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021 É g var farinn að óttast að ég hefði snert einhvern álagablett og reitt álfana til reiði,“ segir Jón Bjarki Magnússon kvikmyndagerðar- maður sposkur á svip, en ár er liðið frá því að hann lauk við fyrstu heimildarmynd sína í fullri lengd, Hálfur Álfur. Væntingar stóðu til að sýna hana á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Vínarborg og á Skjaldborgarhátíðinni síðasta vor en báðum hátíðum var frestað vegna kórónuveirufarald- ursins. Skjaldborgarhátíðin fór loksins fram í september og þar vann myndin til dómnefnd- arverðlaunanna. Í framhaldinu átti Hálfur Álf- ur að fara í almennar sýningar í Bíói Paradís – en hvað gerðist þá? Þriðja bylgja faraldursins skall á eins og flóðbylgja hérlendis. Ekki var um annað að ræða en að bíða fram á vorið og í vikunni verður loksins hægt að frumsýna myndina í Reykjavík og hefja almennar sýn- ingar í Bíói Paradís. Jón Bjarki viðurkennir þó að hann hafi fengið í magann þegar ný smit ut- an sóttkvíar komu fram í byrjun mánaðarins og ekki var hægt að útiloka að fjórða bylgja faraldursins væri að hefjast. Það virðist hins vegar hafa sloppið til, eins og við þekkjum. Jón Bjarki býr í Berlín ásamt unnustu sinni, Hlín Ólafsdóttur, sem framleiðir myndina með honum, en þau hafa dvalist á Íslandi frá því í júlí vegna faraldursins. Skelltu sér meðal ann- ars á makrílvertíð í Vestmannaeyjum eftir verslunarmannahelgi en Hlín er úr Eyjum. Jón Bjarki er ekki í vafa um að amma hans og afi, Hulda Jónsdóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon, sem myndin fjallar um, hafi hlutast þar til um, enda þótt þau séu nú búin að kveðja þetta líf. Þau fóru sjálf á ófáar ver- tíðirnar um dagana. „Amma var byrjuð að hjálpa til á vertíð fimm ára í Ingólfsfirði á Ströndum og afi var mikið á sjó, áður en hann gerðist vitavörður.“ Þráin eftir því að skapa Eftir að hafa haft blaðamennsku að aðalstarfi í um áratug venti Jón Bjarki kvæði sínu í kross árið 2015, flutti til Berlínar og hóf ári síðar MA-nám í sjónrænni mannfræði við Freie Universität. Það varð svo aftur til þess að hann féll gjörsamlega fyrir mannfræðilegri heimildarmyndagerð. „Mér finnst eins og þrá- in eftir því að skapa og viljinn til að miðla sög- um þeirra sem lítið fer fyrir í meginstraums- umræðunni hafi fundið sameiginlegan farveg í gegnum heimildarmyndagerðina,“ segir hann. Jón Bjarki fór snemma að velta fyrir sér hvað væri áhugavert lokaverkefni í náminu og varð hugsað til ömmu sinnar og afa, sem þá voru 98 og 95 ára gömul, en þau höfðu alla tíð leikið stórt hlutverk í hans lífi. „Ég ólst upp á Siglufirði og afi var vitavörður á Sauðanesvita og þar var mitt annað heimili. Ég hafði farið til þeirra með upptökutæki til að safna sögum fyrir sjálfan mig og einnig tekið viðtal við þau fyrir Stundina um litlu hlutina í lífinu, sem birtist í blaðinu með myndum Kristins Magn- ússonar. Það vakti lukku og yljaði fólki greini- lega um hjartaræturnar. Það blundaði því í mér að gera meira með þeim og miðla sögu þeirra með sjónrænni hætti.“ Trausti var fæddur 1918 og Hulda 1921, þannig að Jóni Bjarka var ljóst að stykki hann ekki á verkefnið strax yrði það mögulega of seint. Enda fór það svo að hjónin létust bæði áður en myndin var frumsýnd, Trausti nýorð- inn 100 ára 2019 og Hulda 99 ára fyrir tæpu ári. „Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa náð að gera þetta með þeim og ljúka við myndina,“ segir hann. „Þetta verkefni snýst samt ekki bara um ömmu og afa, þó þau séu miðlæg í myndinni. Þetta er miklu stærri saga um þessa heillandi kynslóð sem þau tilheyrðu. Kynslóð- ina sem upplifði ótrúlegar breytingar á lífs- háttum og tækifærum og er óðum að hverfa. Tengslin eru ekki falin, en þetta er samt alls ekki ég „elska ykkur, amma og afi-mynd“. Hefði ég bara verið að gera þetta fyrir mína nánustu þá hefði ég gert allt öðruvísi mynd.“ Heilluð af hversdagsleikanum Jón Bjarki og Hlín eru bæði heilluð af hvers- dagsleikanum og fegurðinni sem býr í honum. Fyrir vikið er heimili ömmu hans og afa í for- grunni í myndinni enda heimur út af fyrir sig og hluti af veröld sem er að hverfa. Þá var Jón Bjarki margsinnis mættur á slaginu klukkan sex árdegis til að fylgjast með afa sínum gera hafragraut, eins og hann hafði gert á morgn- ana í 85 ár. Og hvað fer betur við þennan heim en harmonikkutónlist, sem Hlín samdi sér- staklega fyrir myndina. „Það er ekki bara tón- listin sem slík, heldur líka öndunin í hljóðfær- inu. Leifar af gömlum tíma.“ Í ljósi þess hve persónuleg myndin er, þótti Jóni Bjarka einstaklega vel við hæfi að tónlist- in væri gerð af manneskju sem þekkti þau gömlu persónulega. „Hlín lagði allt í sölurnar við spilamennskuna og maður fann hvernig henni blæddi út við að túlka síðustu tóna lífs þeirra. Það varð svo ótrúlega mikil tilfinn- ingaleg nánd í hljómunum sem hún skapaði,“ segir Jón Bjarki og bætir við að Hlín hafi verið hvatamaður að verkefninu frá upphafi og alltaf haft óbilandi trú á því. „Þegar ég var í ein- hverri krísu og með efasemdir, sem kom oftar en ekki fyrir, þá var Hlín akkerið sem kom í veg fyrir að ég myndi steyta á skeri. Þá á hún gríðarlega mikið í öllu verkinu sem framleið- andi enda tekið þátt í þróun þess allt frá hug- myndastigi. Þessi mynd hefði aldrei orðið til nema fyrir hennar hjálp.“ Dauðinn leikur einnig stórt hlutverk í mynd- inni – enda nálægur þegar fólk hefur náð svo háum aldri. „Afi var mjög upptekinn af dauðan- um og umgekkst hann með húmor og ákveðnum léttleika. Hann var í senn að undirbúa hundrað ára afmæli sitt og jarðarförina – hvort sem kæmi á undan. Aldrað fólk, ekki síst háaldrað, er líka ákveðinn jaðarhópur í þjóðfélaginu sem á ekki auðvelt með að koma sinni rödd að í um- ræðunni. Það er helst þegar fólk á hundrað ára afmæli að fjölmiðlar sýni því athygli og þau samtöl eru eins og þau eru,“ segir Jón Bjarki. Heiti myndarinnar, Hálfur Álfur, vekur for- vitni og Jón Bjarki upplýsir að afi sinn hafi tengst sínum innri álfi undir það síðasta. „Hann var alinn upp á Ströndum innan um álfa og nálgast maður ekki alltaf kjarnann þegar ferðalok eru í augsýn? Amma hafði á hinn bóg- inn engan húmor fyrir þessu „álfarausi“ í hon- um og ég þorði á stundum ekki annað en að slökkva á myndavélinni þegar þau byrjuðu að karpa um það. Þarna birtust mjög skrautlegar samræður, svo ekki sé meira sagt, sem snerust meðal annars um gildi bóka og steina. Sjálfur viðurkenni ég að ég var með fordóma fyrir ál- faklisjunni. Ég meina, maður er spurður að því í Berlín hvort við Íslendingar séum ekki með álfamálaráðuneyti.“ Hann hlær. Álfarnir stukku um borð „En álfaþemað kom upp og varð myndlíking fyrir þetta ferðalag. Álfarnir stukku um borð á miðri leið og skoruðu mig á hólm! Þegar frá leið fannst mér það líka mjög viðeigandi. Álfar eru um margt holdgervingar gamla Íslands. Þeir eru enn þjóðlega klæddir og að róa til fiskjar og harðneita að fylgja okkur inn á 20. öldina, hvað þá 21. öldina. Sem barn var afi í hliðstæðu landi og átti fyrir vikið auðvelt með að tengja við álfana enda þótt amma kallaði þetta þjóðsögur og húmbúkk. Þegar upp er staðið er ég mjög glaður að álfarnir skuli hafa slegist í för með okkur. Þeir eru hluti af okkar menningu.“ Aðaltökur fóru fram vorið 2018 en um sumarið veiktist Trausti illa og var lagður inn á spítala. Náði sér í raun aldrei almennilega eftir það og lést í mars 2019, 100 og hálfs árs að aldri. Lokatökur fóru fram sumarið 2019, skömmu eftir að Trausti lést. Hulda náði að fylgja ferlinu lengur og var orðin spennt fyrir Skjaldborgarhátíðinni síðasta sumar. Því mið- ur entist henni ekki aldur til að sjá myndina sýnda þar og hljóta verðlaun. „Ömmu og afa var sárt saknað en það var yndislegt að ná að sýna myndina í bíósal full- um af fólki sem virtist vera að tengja við efnið. Myndin hefur líka verið sýnd á hátíðum hér og þar erlendis og viðbrögð hafa verið mjög ánægjuleg, en auðvitað finnst mér leiðinlegt að hafa ekki komist á þær hátíðir, út af ástandinu í heiminum,“ segir Jón Bjarki. Í umsögn dómnefndar Skjaldborgarhátíð- arinnar sagði meðal annars: „Sterk og heil- steypt saga, einlæg og tilgerðarlaus frásögn; mynd sem hrífur mann með sér frá fyrstu mín- útu og fær mann til að hlæja og gráta á víxl. Óborganlegar persónur með sterka tengingu við náttúruna og íslenskan menningararf. Myndin minnir okkur á að taka lífið ekki of al- varlega og hafa gaman, en jafnframt vekur hún okkur til umhugsunar um dauðann og það sem tekur við.“ Þurfti að margstilla kompásinn Við gerð myndarinnar beitti Jón Bjarki aðferð sem kallast „observational documentary“ og dvaldist því lengi með ömmu sinni og afa. Það var til þess að þau vöndust myndavélinni og hættu að veita henni athygli. En var ekkert mál að sannfæra þau um að taka slaginn með honum? „Í raun ekki. Afi var strax til í tuskið en amma hafði meiri efasemdir um að þau ættu erindi í heimildarmynd. Hún samþykkti þetta þó enda treystu þau mér. Þau voru mjög ólíkir karakterar; afi var meira gefinn fyrir athygli en amma sem var meira til baka. Fann sig best í ljóðlistinni enda mikil bókakona sem kunni ógrynni ljóða utan að. Þar var kjarni hennar.“ Enda þótt menn hafi skýra hugmynd þegar lagt er upp í vegferð sem þessa þá vita þeir aldr- ei nákvæmlega hver útkoman verður. Jón Bjarki tekur heilshugar undir það, hann hafi margsinnis þurft að endurstilla kompásinn. Að mörgu var að hyggja og sitthvað breyttist á leið- inni, svo sem veikindi og fráfall afa hans. Þá munu elliglöp hafa verið farin að gera vart við sig hjá gamla manninum undir það síðasta. „Framan af þá birtist það mest milli þeirra ömmu, ég tók ekki svo mikið eftir þessu sjálfur, en þetta varð meira áberandi eftir að hann veiktist og var lagður inn á spítala. Ég kaus þó að gera ekki mikið úr þessu í myndinni enda vildi ég ekki að persóna afa yrði skilgreind út frá þessum veikindum hans. Myndin breyttist á hinn bóginn á lokametrunum enda tók á að fylgja afa til grafar en vera um leið að vinna að þessu verki. Á móti kemur að ég er rosalega þakklátur fyrir að hafa lagt af stað og átt svona ríkar stundir með ömmu og afa og að þessi heimild um líf þeirra sé til, bæði myndin og svo Álfarnir skor- uðu mig á hólm! Hálfur Álfur, fyrsta heimildarmynd Jóns Bjarka Magnússonar í fullri lengd, fer í almennar sýningar í Bíói Paradís á fimmtu- daginn. Þar segir hann sögu ömmu sinnar og afa, sem urðu 99 og 100 ára, en um leið merkrar kynslóðar sem óðum er að hverfa af sjónarsviðinu. Jón Bjarki var blaðamaður í áratug en söðlaði um árið 2016, eftir að hafa staðið í eldlínu lekamálsins, og fann sína köllun í mannfræðilegri heimildarkvikmyndagerð. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.