Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021 Í Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni er að finna vefnaðarvöruverslun. Hún heitir Sauma og þegar inn er komið tekur á móti manni stór, stæðilegur og brosmildur karlmaður á besta aldri. „Það þykir mörgum skrýtið að karl sé að vinna hérna,“ viðurkennir Sveinn Dal Sigmarsson, „og sumir viðskiptavinirnir eru til að byrja með hálf- smeykir við mig vegna þess hvað ég er stór og mikill. Þeir jafna sig þó venjulega fljótt enda tek ég vel á móti öllum. Annars er það sér- íslenskt fyrirbrigði að konur vinni frekar í búð- um af þessu tagi, erlendis eru það langmest karlar.“ Það er nefnilega það. Ekki þarf að verja löngum tíma með Sveini til að skynja að jafnan er stutt í grínið og hlát- urinn. „Já, já, ég hef mjög gaman af því að grínast í fólki en auðvitað þarf maður að lesa kúnnana; fólk er misjafnlega móttækilegt fyrir sprelli.“ Hann brosir. Viðskiptavinirnir eru mest konur en Sveinn hefur þó tekið eftir mikilli aukningu hjá körl- um á síðustu misserum enda sæki þeir nú í auknum mæli í nám í fatahönnun. „Sauma- skapur hættir aldrei en auðvitað gengur þetta í bylgjum. Alltaf þegar kreppir að eykst til dæmis saumaskapur og fólk sækir í betra efni sem endist,“ segir Sveinn og bætir við að saumaskapur hafi aukist talsvert í kórónu- veirufaraldrinum enda þrengi nú að hjá mörg- um, auk þess sem ýmsir hafi meiri tíma til að sinna áhugamálum sínum. „Fólk hefur alltaf þörf fyrir að skapa og ótrúlegasta fólk er farið að sauma og selja á Facebook.“ Engin miskunn! Sveinn er enginn nýgræðingur í vefnaðar- vörubransanum en faðir hans, Sigmar Jónsson stórkaupmaður, átti og rak um langt árabil heildverslunina S. Ármann Magnússon. Keypti hana árið 1976 af stofnandanum, Sig- urði Ármanni Magnússyni stórkaupmanni, sem meðal annars flutti inn fyrstu Mazda- bifreiðarnar til Íslands. Sigmar einbeitti sér að innflutningi og sölu vefnaðarvara og hóf Sveinn ungur störf hjá föður sínum; við að sendast, pakka efni og bera það inn í verslun- ina sem í þá daga var til húsa á Hverfisgötu 76. „Það var engin miskunn,“ segir Sveinn sem finnst hann skyndilega við tilhugsunina standa andspænis tveimur tonnum af efni úti á stétt. Þrátt fyrir að hafa verið viðloðandi vefn- aðarvörubransann í meira en fjörutíu ár hefur Sveinn aldrei saumað sjálfur – fyrr en nú. „Auðvitað hefur maður byggt upp ákveðna þekkingu gegnum tíðina og ég hef alltaf verið duglegur að leiðbeina fólki. Það er mér kapps- mál að auka áhuga á saumaskap enda sel ég þá meira af efnum.“ Hann glottir. „Samt hafði ég aldrei saumað sjálfur og ákvað að bæta úr því fyrir nokkrum mánuðum. Kom þá á fót námskeiði í samstarfi við Helgu Rún Pálsdóttur, klæðskera og fatahönnuð sem kann sitthvað fyrir sér í faginu, og skráði mig sjálfur. Við vorum þarna átta karlar og ein kona á herrafatanámskeiði og ég saumaði þennan líka ljómandi fína bomberjakka, þó ég segi sjálfur frá.“ Hann hlær. Sveinn segir saumanámskeiðum iðulega vaxa fiskur um hrygg þegar kreppir að í þjóð- félaginu og margir hafi skráð sig á slík nám- skeið í bankahruninu. „Margt af því fólki fór síðan út í rekstur sem það er ennþá með. Þeg- ar fólk missir vinnuna og lífsviðurværið á það auðvitað að spyrja sig: Hvað hefur mig alltaf langað að gera?“ Stakk vin sinn í rassinn Sveinn fæddist í Reykjavík árið 1963 og var tápmikið barn. Alltaf glaður og kátur en líka skapstór. „Það hefur elst af mér,“ segir hann glottandi. Á ýmsu gekk, eins og þegar Sveini sinnaðist við strák í hverfinu, elti hann með vasahníf á lofti og stakk í rasskinnina. „Sjálf- sagt hefði þetta verið lögreglumál í dag en á þeim tíma leystu foreldrar okkar málið bara sín á milli og við vorum byrjaðir að leika okkur saman aftur daginn eftir.“ Feðgarnir voru víst ekki alltaf sammála og þegar hann var sextán ára lenti Sveinn upp á kant við föður sinn með þeim afleiðingum að hann hætti í fússi í heildversluninni. Hann var staðráðinn í að bjarga sér sjálfur og réð sig í togaralöndun. „Þar náði ég því til dæmis að vinna með sting. Það hafa ekki allir gert. Til að byrja með voru menn tortryggnir í garð sonar heildsalans en það lagaðist smám saman og ég vann menn á mitt band. Það var algjört ævin- týri að vinna við togaralöndunina.“ Í eitt skipti var okkar maður hætt kominn. Hann var þá að vinna niðri í lest á togara þegar kassastæða sem verið var að hífa upp á dekk rakst utan í lúguna með þeim afleiðingum að kassarnir tvístruðust í allar áttir. „Þegar ég horfði á þetta gerast og allt dótið koma yfir mig var ég ekki í nokkrum vafa: Jæja, núna er ég dauður! Sama héldu aðrir sem urðu vitni að þessu. Nema hvað? Ég var sprelllifandi og hvorki skráma né mar á mér. Af einhverjum ótrúlegum ástæðum höfðu kassarnir raðast allt í kringum mig. Menn áttu ekki orð.“ Sveinn var einnig til sjós í tvö sumur, á Stapafellinu, og varð svo frægur að vera tek- inn fyrir smygl í fyrsta túr. – Hverju varstu að smygla? „Fjórtán vodkaflöskum og einum plötuspil- ara. Ég slapp með sekt og fékk að halda plötu- spilaranum eftir að hafa greitt toll.“ Undir stjórn Þræla-Jóns – Átti sjómannslífið við þig? „Já, það átti ágætlega við mig. Að vísu spúði ég eins og múkki í fyrstu ferðinni. Það kætti yfirmann minn, sem gekk undir því geðþekka nafni Þræla-Jón, óskaplega og hann lét mig losa skítastíflu meðan ég var hvað slappastur. Síðar gekk Þræla-Jón fram af mér og ég ætl- aði að berja hann. Þá sagði hann: „Jæja, Svenni minn. Núna erum við góðir.“ Og hann bað aftur um mig sumarið á eftir.“ Sveinn var við nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti á veturna og eftir skólaball fór hann heim með stelpu. Þurfti svo að skreppa á kló- settið um nóttina og hverjum haldið þið að hann hafi þá mætt? Jú, laukrétt, téðum Þræla-Jóni. „Mér krossbrá auðvitað en það hvorki datt né draup af Jóni sem bauð mér bara vinsamlega góða nótt. Enda kom á daginn að þetta var alls ekki Þræla-Jón, heldur tvíburabróðir hans, sem kannaðist auðvitað ekkert við mig.“ Hann skellihlær. Sveinn var mikill hrakfallabálkur á sínum yngri árum; mölbraut til dæmis á sér höndina í svifdrekaflugi. „Ég var níu mánuði í gifsi eftir það slys. Ekki nóg með það; mér tókst á ein- hvern ótrúlegan hátt að brjóta á mér hina höndina líka. Var sumsé um tíma í gifsi á báð- um.“ Höfuðleðrið flettist af Mesta áfallið var þó þegar hann keyrði spítt- bát óvart upp á land þegar hann var sextán ára. Sveinn var þá að draga mann á sjóskíðum á Þingvallavatni og með þrjá unga pilta með sér í bátnum. Honum hlekktist á með þeim af- leiðingum að báturinn keyrði upp í harðaland. Sjóskíðamaðurinn og tveir piltanna slösuðust lítið sem ekkert en þriðji pilturinn festist undir bátnum mikið slasaður. „Það var skelfileg að- koma. Höfuðleðrið var að hluta farið af svo skein í kúpuna sem hafði brotnað. Hann sat fastur undir bátnum og ég fylltist einhverjum fítonskrafti og tókst að lyfta bátnum upp þann- ig að hægt var að ná drengnum undan. Fólk dreif að úr nærliggjandi bústöðum og honum var komið til þess að gera hratt undir læknis- hendur. Ég var í algjöru sjokki og áttaði mig ekki strax á því að ég var mikið slasaður sjálf- ur; miltað hafði til að mynda sprungið.“ Sveinn og pilturinn voru báðir fluttir á gjör- gæslu þar sem þeir lágu næstu dagana. Fjöl- skylda Sveins var úti á landi og komst því ekki strax að sjúkrabeðinum. „Við lágum hlið við hlið og aumingja drengurinn grét látlaust í tvo sólarhringa. Það var gríðarlega erfitt. Það sem kom mér í gegnum þetta var afstaða móður hans sem sat hjá okkur. Hún sagði öllu máli skipta að við jöfnuðum okkur, síðar mætti fara yfir hvað fór úrskeiðis. Sem betur fer greri drengurinn sára sinna og náði fullri heilsu á ný. Þetta slys kemur oft upp í hugann enda mín mesta eftirsjá í lífinu. Þetta hafði djúp- stæð áhrif á mig.“ Það leit ekki kona við mér Sveinn var réttnefnt partíljón á sínum yngri árum og kveðst um tíma hafa verið eins og eitt af húsgögnunum á skemmtistaðnum Holly- wood, sem naut mikillar hylli á níunda áratugn- um. Nokkurt bakslag kom hins vegar í kven- hylli hans eftir að ljósmynd birtist af honum í tímaritinu Samúel, þar sem hann var staddur á balli hjá Samtökunum ’78. „Það kom þannig til að systir mín leigði með samkynhneigðum manni og ég hafði skutlað þeim á umrætt ball. Samúel var vinsælt blað og eftir að myndin birtist var ég stimplaður samkynhneigður. Það leit ekki kona við mér í tvö ár á eftir.“ Hann hlær dátt. Eftir stúdentspróf fór Sveinn aftur að vinna í heildverslun föður síns enda erjur þeirra feðga löngu gleymdar. Þar var hann til 27 ára aldurs eða þar til örlögin gripu í taumana. Sveinn var þá tekinn fyrir ölvunarakstur og missti bílprófið. Álpaðist svo til að keyra próf- laus og var nappaður á ný sem þýddi að refs- ingin var framlengd. Hann vann mikið við út- keyrslu fyrir heildverslunina og þar með var grunninum kippt undan starfinu. Og hvað gera menn þá? Jú, skella sér í háskóla í Flórída. Sveinn skráði sig í nám í fjármálum og fjár- mögnun og undi hag sínum vel í sólinni þar vestra. Var aukinheldur kominn með bílpróf og bíl eftir eina viku. Lítil samskipti voru víst milli lögreglunnar á Flórída og í Reykjavík á þessum árum. Samband, börn og skilnaður Hann sneri heim að þremur árum liðnum, með háskólagráðu og sænska konu, Jenny, upp á arminn. Eftir skamma dvöl hér heima lá leið þeirra til Lundar, þar sem Sveinn fór í meist- aranám í Evrópufræðum. „Mér þótt það blasa við enda stefndi Ísland hraðbyri inn í Evrópu- sambandið á þessum tíma.“ Það fór á annan veg, eins og við þekkjum. Að námi loknu fór Sveinn að vinna sem fjár- málastjóri hjá Norðurlandadeild samtaka al- þjóðlegra flugfélaga í Stokkhólmi, IATA, og Jenny hjá tæknirisanum Ericsson. IATA er milliliður milli flugfélaga og ferðaskrifstofa og peningaflæðið um 600 milljarðar á ári, að sögn Sveins. Þau eignuðust tvö börn saman á þess- um tíma en á endanum komu brestir í sam- bandið. „Við vorum bæði mjög metnaðargjörn og fjarlægðumst smám saman hvort annað. Við bárum þó sem betur fer gæfu til að skilja í góðu og erum fínir vinir í dag. Ég grínast gjarnan með að börnin hafi allt það versta frá mömmu sinni en það er auðvitað algjört kjaft- æði – þau hafa það allt frá mér.“ Hann hlær. Sonur Sveins og Jenny, Alfreð Dal, býr á Ís- landi en dóttirin, Embla Júlía, er að ljúka há- skólanámi í Bandaríkjunum, auk þess að spila körfubolta, eins og móðir hennar gerði á sinni tíð. Þær eru báðar hávaxnar, Jenny 191 cm og Embla Júlía 186 cm. Alfreð er einnig í hærri kantinum, 206 cm. „Þegar hann var fjórtán ára vildi hann prófa að búa á Íslandi og hefur verið hér síðan. Embla Júlía er líka mjög stolt af ís- lenskum uppruna sínum en hefur ekki viljað búa hér. Við erum samt í góðu sambandi og hún kemur oft í heimsókn,“ segir Sveinn. Við eigum saman dóttur! Þegar sambandinu við Jenny lauk sneri Sveinn heim til Íslands, eftir þrettán ár í útlöndum. Þá biðu hans óvænt tíðindi. Kona sem hann hafði átt einnar nætur gaman með í Hollywood löngu áður knúði óvænt dyra og tjáði honum að þau ættu saman dóttur – sem þá var ný- fermd. DNA-próf staðfesti mál konunnar. „Það var mikil upplifun að „eignast“ nýfermda dóttur með spangir – gallharða gelgju. Mamma var að setja í uppþvottavélina þegar ég kom hálfskömmustulegur að færa henni þessi tíðindi. Hún leit snöggt upp og sagði: „Svona er að vera ríðandi úti um allt!“ Og hélt svo áfram að setja í uppþvottavélina.“ Þið getið rétt ímyndað ykkur að núna er dátt hlegið. Fyrsti fundur þeirra feðgina var heldur stirður. Sveinn bauð dóttur sinni, Kolbrúnu, í bíltúr og hún svaraði fyrirspurnum hans bara með einsatkvæðisorðum, nei eða já. „Ég var engu nær eftir þennan bíltúr en þegar hún var komin út úr bílnum sneri hún við til að segja Jæja, núna er ég dauður! Sveinn Sigmarsson kann vel við sig sem tuskukaupmaður enda fær hann næringu og kraft úr því að hitta fólk. Sveinn Dal Sigmarsson er að eigin sögn tuskusali og rekur vefnaðarvöruverslun. Hann er með djúpar rætur í faginu en byrjaði þó ekki sjálfur að sauma fyrr en fyrir nokkrum mánuðum. Margt hefur á daga Sveins drifið en hann menntaði sig í fjármálum og starfaði lengi erlendis. Ungur slapp hann með skrekkinn úr löndunarslysi og varð sjálfur valdur að alvarlegu bátaslysi. Þá eignaðist hann óvænt nýfermda dóttur og er hálfbróðir hins ástsæla aflraunamanns Jón Páls Sigmarssonar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.