Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Side 20
L jósmyndaklúbburinn Blik á Suðurlandi var stofnaður árið 2008 og eru félagar rúmlega fimmtíu. Kristín Snorradóttir Waag- fjörð, kölluð Kidda, gekk í klúbbinn fyrir fjórum árum og var fljótlega komin í ferðanefnd og kynningar- nefnd. „Klúbbmeðlimir hittast hálfsmán- aðarlega yfir vetrarmánuðina í sal á Selfossi þar sem við erum að sýna hvert öðru myndir og svo fáum við oft atvinnuljósmyndara til að koma og halda fyrirlestra. Við höfum feng- ið til okkar Rax, Sissu og Spessa svo einhverjir séu nefndir. Þeir hafa ver- ið viljugir að koma og sýna okkur hvað þeir eru að gera og kenna okk- ur ýmislegt,“ segir Kidda. „En auðvitað hefur starfsemin okkar mikið legið niðri undanfarið vegna Covid. Við fórum í eina dags- ferð í febrúar í fyrra og dagsferð á Þingvallasvæðið, en við förum gjarn- an í dagsferðir og tökum myndir. Svo höfum við farið utan í ferðir en 2018 fórum við til Færeyja og 2019 til Grænlands. Ég var að undirbúa ferð til Noregs þegar Covid skall á þannig að hún frestast til 2022,“ segir Kidda og segir hópinn mjög skemmtilegan. „Þarna er fólk á öllum aldri, af öll- um stéttum,“ segir Kidda og segir ekki nauðsynlegt að búa á Suður- landi til að fá inngöngu í klúbbinn. Hún býr í Reykjavík og keyrir á Sel- foss á fundi. „Ég bjó á Hellu þegar ég byrjaði í klúbbnum. En þótt flestir séu af Suðurlandi eru allir velkomnir í klúbbinn,“ segir hún og tekur fram að fólk þurfi ekki að hafa reynslu á sviði ljósmyndunar, fólk getur skoð- að klúbbinn á http://www.blik.is og gengið í hann þar líka. „Síðustu ár höfum við sett upp ljósmyndasýningar á Hótel Selfossi sem standa í ár í senn,“ segir Kidda sem segir sýninguna opna núna og allar myndir þar eru til sölu. Ólst upp við ljósmyndun Kidda hefur verið haldin ljósmynda- bakteríunni síðan hún var lítil stelpa. „Pabbi heitinn átti flottar mynda- vélar; Hasselblad og Rolleyflex, Leica og fleira. Ég ólst upp við ljós- myndun og lærði að framkalla í skól- anum þegar ég er unglingur. Svo keypti ég mér almennilega vél þegar ég var þrítug,“ segir Kidda og segist gjarnan vera með myndavél um hálsinn. „Ljósmyndun fyrir mér er heilun. Mér finnst gaman að taka myndir af börnum í leik og svo náttúrunni og af dýrum. Ég fjárfesti í góðum linsum í fyrra og ferðaðist mikið um Ísland og myndaði. Ég er svolítið byrjuð í fuglaljósmyndun og náði yfir tutt- ugu tegundum í fyrra á mynd. Það er þolinmæðisvinna að ná myndum af fuglum.“ Hver er besta mynd sem þú hefur tekið? „Mynd af lunda á flugi sem ég tók í Flatey á Breiðafirði.“ Fylgst lengi með Rax Ástríðan fyrir ljósmyndun óx enn meir þegar Kidda fór til Færeyja að mynda um árið. Hópurinn sigldi mikið um Grænland og myndaði stórkostlega náttúruna. Ljósmynd/Kidda Kidda veit fátt skemmtilegra en að ferðast um Ísland með myndavél um hálsinn. Grænland og Færeyjar heilla einnig. Ljósmynd/Sólveig Stolzenwald Ljósmyndun er heilun Áhugaljósmyndarar á Suðurlandi eru þó nokkrir og eru margir þeirra í ljósmynda- klúbbnum Bliki. Þar hittist fólk á öllum aldri sem deilir ástríðu fyrir ljósmyndun. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021 ÁHUGAMÁL 5 Ljósmyndaklúbburinn Blik lagði land undir fót og heimsótti Kötluíshelli í Mýrdalsjökli fyrr í mánuðinum. Ljósmynd/Kidda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.