Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Page 20
L
jósmyndaklúbburinn Blik á
Suðurlandi var stofnaður árið
2008 og eru félagar rúmlega
fimmtíu. Kristín Snorradóttir Waag-
fjörð, kölluð Kidda, gekk í klúbbinn
fyrir fjórum árum og var fljótlega
komin í ferðanefnd og kynningar-
nefnd.
„Klúbbmeðlimir hittast hálfsmán-
aðarlega yfir vetrarmánuðina í sal á
Selfossi þar sem við erum að sýna
hvert öðru myndir og svo fáum við
oft atvinnuljósmyndara til að koma
og halda fyrirlestra. Við höfum feng-
ið til okkar Rax, Sissu og Spessa svo
einhverjir séu nefndir. Þeir hafa ver-
ið viljugir að koma og sýna okkur
hvað þeir eru að gera og kenna okk-
ur ýmislegt,“ segir Kidda.
„En auðvitað hefur starfsemin
okkar mikið legið niðri undanfarið
vegna Covid. Við fórum í eina dags-
ferð í febrúar í fyrra og dagsferð á
Þingvallasvæðið, en við förum gjarn-
an í dagsferðir og tökum myndir. Svo
höfum við farið utan í ferðir en 2018
fórum við til Færeyja og 2019 til
Grænlands. Ég var að undirbúa ferð
til Noregs þegar Covid skall á þannig
að hún frestast til 2022,“ segir Kidda
og segir hópinn mjög skemmtilegan.
„Þarna er fólk á öllum aldri, af öll-
um stéttum,“ segir Kidda og segir
ekki nauðsynlegt að búa á Suður-
landi til að fá inngöngu í klúbbinn.
Hún býr í Reykjavík og keyrir á Sel-
foss á fundi.
„Ég bjó á Hellu þegar ég byrjaði í
klúbbnum. En þótt flestir séu af
Suðurlandi eru allir velkomnir í
klúbbinn,“ segir hún og tekur fram
að fólk þurfi ekki að hafa reynslu á
sviði ljósmyndunar, fólk getur skoð-
að klúbbinn á http://www.blik.is og
gengið í hann þar líka.
„Síðustu ár höfum við sett upp
ljósmyndasýningar á Hótel Selfossi
sem standa í ár í senn,“ segir Kidda
sem segir sýninguna opna núna og
allar myndir þar eru til sölu.
Ólst upp við ljósmyndun
Kidda hefur verið haldin ljósmynda-
bakteríunni síðan hún var lítil stelpa.
„Pabbi heitinn átti flottar mynda-
vélar; Hasselblad og Rolleyflex,
Leica og fleira. Ég ólst upp við ljós-
myndun og lærði að framkalla í skól-
anum þegar ég er unglingur. Svo
keypti ég mér almennilega vél þegar
ég var þrítug,“ segir Kidda og segist
gjarnan vera með myndavél um
hálsinn.
„Ljósmyndun fyrir mér er heilun.
Mér finnst gaman að taka myndir af
börnum í leik og svo náttúrunni og af
dýrum. Ég fjárfesti í góðum linsum í
fyrra og ferðaðist mikið um Ísland
og myndaði. Ég er svolítið byrjuð í
fuglaljósmyndun og náði yfir tutt-
ugu tegundum í fyrra á mynd. Það
er þolinmæðisvinna að ná myndum
af fuglum.“
Hver er besta mynd sem þú hefur
tekið?
„Mynd af lunda á flugi sem ég tók
í Flatey á Breiðafirði.“
Fylgst lengi með Rax
Ástríðan fyrir ljósmyndun óx enn
meir þegar Kidda fór til Færeyja að
mynda um árið.
Hópurinn sigldi mikið um
Grænland og myndaði
stórkostlega náttúruna.
Ljósmynd/Kidda
Kidda veit fátt skemmtilegra en að
ferðast um Ísland með myndavél
um hálsinn. Grænland og Færeyjar
heilla einnig.
Ljósmynd/Sólveig Stolzenwald
Ljósmyndun
er heilun
Áhugaljósmyndarar á Suðurlandi eru þó
nokkrir og eru margir þeirra í ljósmynda-
klúbbnum Bliki. Þar hittist fólk á öllum aldri
sem deilir ástríðu fyrir ljósmyndun.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021
ÁHUGAMÁL
5
Ljósmyndaklúbburinn Blik lagði land undir fót og heimsótti Kötluíshelli í Mýrdalsjökli fyrr í mánuðinum.
Ljósmynd/Kidda