Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021 ÁHUGAMÁL Hristum þetta af okkur L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s 2m Höldumbilinu og sýnum hvert öðru tillitssemi „Við erum svona tuttugu manna kjarni sem förum saman í þessar ferðir. Að koma til Færeyja er eins og að koma hundrað ár aftur í tím- ann og algjör heilun. Áhuginn á Grænlandi hefur líka aukist ár frá ári en ég hef fylgst lengi með Rax, sem má segja að sé goðið mitt. Hann kom einmitt til okkar með fyrir- lestur rétt áður en við fórum til Grænlands,“ segir Kidda og segir hópinn hafa farið til Narsaq á Suður- Grænlandi. „Við fórum um allt á bátum og mynduðum, sigldum einar 300 sjó- mílur samtals og heimsóttum meðal annars Brattahlíð, Hvalsey, Qaqor- toq og Landbúnaðarskólann í Quassiarsuk ásamt skriðjöklum sem eru víða á þessu svæði,“ segir hún og segir ferðina hafa verið ógleyman- lega. „Nú er það líka ástríða að skipu- leggja ferðir fyrir hópinn. Ég er að plana núna ferð um Austurland í haust,“ segir Kidda en hópurinn er nýkominn úr dagsferð frá Kötlujökli og Mýrdalsjökli. Þessa mynd tók Kidda í Vogum á Vatnsleysuströnd af yfirgefnu húsi. Ljósmynd/Kidda Myndin af lunda á flugi er uppáhaldsmynd Kiddu, en hún er tekin í Flatey. Ljósmynd/Kidda Kidda náði mynd þegar ís hrundi með látum úr hlíðum skriðjökuls þegar hún sigldi um í Grænlandi. Ljósmynd/Kidda Ljósmyndaklúbburinn Blik fór í skemmtilega ferð til Færeyja árið 2018. Ljósmynd/Allan Ragnarsson Kidda hefur mjög gaman að því að mynda hesta og önnur dýr. Ljósmynd/Kidda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.