Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Page 28
BREIDD Bandaríska söngkonan og lagahöf-
undurinn Valerie June segir svartar tónlistar-
konur aldrei hafa verið einsleitan hóp enda
þótt þeirri staðreynd hafi ekki verið slegið upp
sérstaklega. Þegar hún var barn hafi hún
haldið að allar svartar stúlkur ættu að syngja
eins og Whitney eða Aretha en síðar hafi hún
áttað sig á því að breiddin væri mun meiri.
Þetta kemur fram í viðtali við hana í breska
blaðinu The Guardian en Valerie June sendi á
dögunum frá sér sína fimmtu breiðskífu, The
Moon and Stars: Prescriptions for Dreamers.
„Sjálf mun ég alltaf tala eins og sveita-
kona en ég get sungið hvað sem er.“
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021
LESBÓK
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. mars
Páskablað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
26. mars
Girnilegar uppskriftir af veislumat
og öðrumgómsætum réttum
ásamt páskaskreytingum,
páskaeggjum, ferðalögum
og fleira.
BÍÓ Ár mitt með Salinger eða My Salinger Year nefnist nýj-
asta kvikmynd fransk/kanadíska leikstjórans Philippe Fal-
ardeau sem frumsýnd var í Bandaríkjunum og Kanada á dög-
unum. Myndin gerist árið 1995 og hermt er af ungri stúlku,
Joönnu að nafni, sem leikin er af Margaret Qualley, sem ræður
sig til starfa hjá umboðsskrifstofu og fær þar það hlutverk að
svara aðdáendabréfum hins sérvitra rithöfundar J.D. Salinger
sem hún þekkir hvorki haus né sporð á. BBC lýsir myndinni sem
„The Devil Wears Prada fyrir þá sem taka bækur fram yfir
tísku“. Margaret Qualley er dóttir leikkon-
unnar Andie MacDowell og er líklega þekkt-
ust fyrir að hafa leikið hina tápmiklu Pussy-
cat sem Cliff Booth pikkaði upp á rauðu
ljósi í Once Upon a Time in Hollywood.
Svarar fyrir Salinger
Margaret Qualley fer
með aðalhlutverkið. AFP
Sveitaleg í máli en syngur hvað sem er
Valerie June leikur á hin ýmsu hljóðfæri.
AFP
Eliran Kantor teiknaði umslagið.
Helloween í
sjöunda veldi
SPRETTUR Fram undan er veisla
hjá aðdáendum Helloween en sex-
tánda breiðskífa þessa gamalgróna
þýska sprettmálmbands er væntan-
leg 18. júní. Hún sætir tíðindum fyr-
ir þær sakir að Kai Hansen söngv-
ari og gítarleikari, sem hætti í
bandinu 1989, og Michael Kiske
söngvari, sem hætti 1993, snúa nú
aftur. Enginn missti þó vinnuna af
þeim sökum en allir fimm sem fyrir
voru í Helloween eru þar enn,
þeirra á meðal stofnmeðlimirnir
Michael Weikath gítarleikari og
bassaleikarinn Markus Großkopf,
gjarnan nefndur Stórhöfði hér um
slóðir. Hansen, Kiske og Andi Deris
skipta nú með sér söngnum.
Þrjár ungar leikkonur og tværeldri og reynslumeiri bítastum Óskarsverðlaunin fyrir
bestan leik í aðalhlutverki.
Elst er hin bandaríska Frances
McDormand, 63 ára, sem hlýtur til-
nefningu fyrir frammistöðu sína í
Nomadland eftir Chloé Zhao. Þar
leikur hún konu sem misst hefur eig-
inmann sinn og vinnuna og bregst við
með því að selja allar eigur sínar og
leggja land undir fót á húsbíl í leit að
nýrri vinnu og eftir atvikum ævintýr-
um. McDormand er tvöfaldur Ósk-
arsverðlaunahafi í þessum flokki,
vann fyrst fyrir Fargo 1997 og síðan
fyrir Three Billboards Outside Ebb-
ing, Missouri 2018. Þá hefur hún í þrí-
gang verið tilnefnd fyrir bestan leik í
aukahlutverki án þess að fara með
styttuna heim; fyrir Mississippi
Burning 1989, Almost Famous 2001
og North Country 2006. Sumsé vön
manneskja.
Bandaríska leikkonan Viola Davis,
55 ára, hefur einu sinni áður verið til-
nefnd fyrir framgang sinn í aðal-
hlutverki; fyrir The Help 2011. Hún
fór ekki með sigur af hólmi í það
skipti. Davis vann hins vegar Óskar-
inn sem besta leikkona í aukahlut-
verki fyrir Fences 2016. Hún var
einnig tilnefnd í þeim flokki fyrir
Doubt 2008. Í ár er Davis tilnefnd
fyrir titilhlutverkið í myndinni Ma
Rainey’s Black Bottom eftir George
C. Wolfe. Þar ferðumst við aftur til
ársins 1927 og kynnumst virtri þel-
dökkri blússöngkonu, Ma Rainey,
sem komin er á mála hjá hvítum út-
gefanda – sem ekki var hlaupið að á
þeim tíma.
Hin bandaríska Andra Day, 36 ára,
er þekktari sem söngkona en leik-
kona en fékk stóra tækifærið í mynd
Lee Daniels The United States vs.
Billie Holiday, þar sem hún fer með
titilhlutverkið. Þetta er hennar fyrsta
tilnefning til Óskarsverðlauna en Day
vann á dögunum Gullhnöttinn fyrir
bestan leik í dramahlutverki. Myndin
fjallar um ævi hinnar ástsælu söng-
konu en árið 1940 flæktist hún inn í
baráttu yfirvalda vestra gegn fíkni-
efnum en markmiðið var að fá
Holiday til að hætta að syngja lagið
umdeilda Strange Fruit.
Hin breska Carey Mulligan, 35 ára,
er sú eina af yngri leikkonunum sem
áður hefur verið tilnefnd til Óskars-
verðlauna, fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki í An Education 2009, mynd-
inni sem gerði hana að stjörnu á einni
nóttu. Hún vann ekki þá. Mulligan
hefur fengið mikið lof fyrir frammi-
stöðu sína í Promising Young Wom-
an, sem er frumraun leikstjórans
Emerald Fennell. Þar leikur hún
unga konu sem flosnað hefur upp úr
læknanámi og býr heima hjá for-
eldrum sínum eftir áfall sem hún varð
fyrir þegar bestu vinkonu hennar var
nauðgað af samnemanda þeirra. Hún
svipti sig í framhaldinu lífi. Að því
kemur að karakter Mulligan sker upp
herör gegn fjölþreifnum körlum og
þá sérstaklega nauðgara vinkonu
hennar.
Síðast en ekki síst er breska leik-
konan Vanessa Kirby, 32 ára, tilnefnd
í fyrsta sinn fyrir leik sinn í Pieces of
a Woman eftir Kornél Mundruczó.
Þar fer hún með hlutverk konu sem
missir sitt fyrsta barn í fæðingu.
Óska(rs)börn
akademíunnar
Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru kunn-
gjörðar í vikunni. Góðkunningja akademíunnar
er að finna á listunum tveimur yfir bestan leik í
aðalhlutverki í bland við ný og spennandi nöfn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Chadwick Boseman:
Ma Rainey’s Black Bottom.
AFP
Anthony Hopkins: Father.
Getty Images via AFP
Steven Yeun: Minari.
AFP
Gary Oldman: Mank.
AFP
Andra Day:
The United States vs. Billie Holiday.
AFP
Riz Ahmed: Sound of Metal.
Getty Images via AFP