Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 21. MARS 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ETOILE model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,-
Hinir heiðbláu lærisveinar Peps Guardiolas hjá Manchester
City hafa farið með himinskautum á yfirstandandi sparktíð og
eiga enn þá möguleika á því ótrúlega afreki að vinna fernuna.
Liðið er svo gott sem búið að tryggja sér enska meistaratitilinn,
á fyrir höndum úrslitaleik í enska deildabikarnum gegn Totten-
ham Hotspur 25. apríl og er komið í átta liða úrslit í Meist-
aradeild Evrópu, þar sem það mætir Borussia Dortmund. Þá er
ótalið elsta sparkmót í heimi, enski bikarinn, en City glímir þar
við Everton í átta liða úrslitum um helgina.
Hér þarf vitaskuld allt að ganga upp en skili City sér fyrst í
mark á öllum mótum yrði það einstakt afrek hjá ensku félagi.
Nágrannar City í Manchester United unnu sem kunnugt er
þrennuna, deild, bikar og Meistaradeild Evrópu, undir stjórn
Sir Alex Fergusons árið 1999. Þeir sem muna hvaða lið vann
deildabikarinn það ár mega klappa sér roggnir á bakið.
Kevin De Bruyne skorar enn eitt markið fyrir City, gegn Southampton á dögunum. AFP
Vinnur City fernuna?
Hinn sigursæli knattspyrnustjóri Manchester City,
Pep Guardiola, þekkir bara eina leið – upp.
AFP
Oft er rætt um að vinna dolluna en Man.
City getur gert gott betur, unnið fernuna.
„Ragnar er þarna að syngja lagið „Litli vin“, en fær
ekki að vera í friði því að ég geri mitt bezta til þess
að snúa út úr fyrir honum.“
Þannig lýsti Svavar Gests meðfylgjandi mynd
sem birtist í Morgunblaðinu á þessum degi árið
1961. Tilefnið var tónleikar sem hljómsveit Svav-
ars Gests stóð fyrir í Austurbæjarbíói og téður
Ragnar var vitaskuld Bjarnason.
„Við leikum vinsælustu dægurlögin frá því í vet-
ur bæði innlend og erlend og til þess að gera það
fjölbreytt komum við fram í ýmsum gervum. T.d.
leikum við eitt þeirra laga er Los Paraguios kynntu
er þeir voru hér á ferð. Komum við þá fram í líkum
búningum og þeir klæddust og flytjum lagið í sama
búningi, en gerum svolítið grín að þeim um leið.
Einnig koma þau þarna Nína og Friðrik og syngja
fyrir áheyrendur. Þ.e.a.s. Ragnar og Reynir með
aðstoð hljómplötu. Svo verður skemmtiþáttur, en
þar gera þrír meðlimir úr hljómsveitinni grín að
mér í þættinum „Gettu betur“,“ sagði Svavar.
GAMLA FRÉTTIN
Ragnar fékk ekki
að vera í friði
Ragnar Bjarnason og Svavar Gests eins og þeir birtust
lesendum Morgunblaðsins fyrir réttum sextíu árum.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Júníus Meyvant
tónlistarmaður
Jesús Kristur
frelsari
Pétur Örn Guðmundsson
tónlistarmaður