Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Qupperneq 14
Ásgeir Elíasson
er aðalþjálfari
úrvalsdeildarliðs
Þróttar segir
leikmenn mæta
metnaðarfulla til
keppni
„Ég er nú bjartsýnn að eðlisfari og sé enga
ástæðu til annars en að Þróttur spjari sig
vel í úrvalsdeildinni í sumar. En auðvitað
getur þetta orðið á alla kanta, við gætum
hugsanlega verið að berjast á botninum
við fallið, - en við gætum líka allt eins
staðið í toppbaráttu, og á því höfum við
eðlilega meiri áhuga. Þetta verður auð-
vitað bara að koma í ljós,“ sagði Asgeir
Elíasson aðalþjálfari Þróttar í viðtali við
félagsblaðið Lifi Þróttur. Hann þjálfar
meistaraflokk Þróttar fjórða sumarið í
röð. Flokkurinn leikur í sumar í úrvals-
deildinni meðal 10 bestu liða landsins.
Ásgeir er Þrótturum góðkunnur frá fyrri
árum sem þjálfari og þá líka leikmaður, en
hann var afburða knattspyrnumaður með
Fram og síðar Þrótti og átti landsleiki með
báðum þessum félögum. Ásgeir á enn-
fremur að baki mjög góðan feril sem
knattspyrnuþjálfari. Lið hans þykja spila
áferðarfallega knattspymu, og það hefur
reynst raunin með Þróttara nú.
Vel settir með leikmenn
Knattspymulið Þróttar er að stórum
hluta „heimamenn", leikmenn uppaldir
innan félagsins og það ungir leikmenn
flestir hverjir. Glöggir sparkfræðingar
sem sjá Þrótt leika telja sig kenna „fingra-
för“ Ásgeirs á liðinu, stutt, létt og leikandi
spil sem gleður augað, en í sambland eru
djarfar spyrnur fram á framherjana. Liðið
hefur verið að skora talsvert af mörkum,
en varnarmálin hafa kannski verið helsti
höfuðverkurinn. Lið eiga ekki að þurfa að
skora þrjú eða fjögur mörk til að vinna
leiki sína. Ásgeir segir að varnarmálin
komist í lag, jafnvel þótt Þróttur hafi
fengið á sig 11 mörk gegn KR, en skorað
5 á móti eins og gerðist í æsispennandi
Deildabikarleik fyrir skemmstu. Þeim
leik lauk 5:5 en í framlengingu féll vörn
Þróttar saman af óútskýrðum ástæðum.
„Þetta var afar óhefðbundinn leikur,"
Við gætum allt e
segir Ásgeir og kímir við. Hann segir að
svona nokkuð gerist ekki aftur.
„Strákarnir hafa verið að æfa vel nán-
ast allir. Það hafa verið meiðsli í gangi
sem sést fyrir endann á og tveir leikmenn
eiga eftir að bætast í hópinn, Björgólfur
og Davíð. Ég met það þannig að við
verðum vel settir með leikmenn. Miðjan
er kannski með fæsta leikmenn, en við
erum með varnarmenn sem geta allt eins
tekið hlutverk á miðjunni," sagði Ásgeir.
Leikmenn hafa æft þetta fimm sinnum í
viku undanfama mánuði.
Bylting fyrir boltann
íþróttahallirnar hafa reynst bylting
fyrir fótboltann að mati Ásgeirs. Hann
segir að leikir á rennisléttu gervigrasi við
kjöraðstæður, í notalegu veðri, stofuhita
og rjómalogni, sé talsvert öðruvísi en
knattspyrna á grasi utanhúss þar sem
veður geta verið með ýmsu móti. En
Ásgeir er ánægður með hallarfótboltann.
„Þegar komnar eru fleiri hallir þá er
ljóst að menn eru að spila lengur," sagði
Ásgeir um þá nýjung sem fullkomnir inn-
anhúss knattspyrnuleikvangar eru. Tvær
slíkar hallir em komnar á höfuðborgar-
svæðinu, Egilshöll í Grafarvogi og Fífan í
Kópavogi, en í Keflavík er þriðja íþrótta-
höllin og sú fjórða á Akureyri. Ásgeir
segir að Þróttarar hafi ekki æft mikið í
Egilshöll, líklega 3 æfingar á hálfum velli
frá áramótum. Ein höll í Reykjavík segi
ekki mikið varðandi æfingar, en hins-
vegar fjölgi leikjum og leiktímabilið hafi
lengst. Þróttur hefur leikið fjölmarga leiki
innanhúss, í Reykjavíkurmótinu og
Deildabikarkeppninni. Leikmenn hafa
verið að standa sig nokkuð vel en Ásgeir
segir að þetta séu undirbúningsleikir og
æfing fyrir það sem koma skal, mikil átök
í úrvalsdeild og bikarkeppni sumarsins.
„Auðvitað gefur þetta einhverjar vís-
bendingar um liðin og getu þeirra en þetta
sveiflast eins og annað og er fljótt að
breytast,“ segir Ásgeir. f fyrravetur var
Þróttarliðið að spila stórkostlega knatt-
spyrnu og varð Reykjavíkurmeistari. En
þegar 1. deildin hófst gekk illa framan af
og leikir sem menn töldu að Þróttur ætti
að vinna unnust bara alls ekki. Ásgeir
segir að á tíma hafi liðið dottið út úr góðri
spilamennsku sem það hafði sýnt á renn-
isléttum gervigrasvellinum, leikmenn
hafi ekki höndlað að leika eins vel á
14