Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Blaðsíða 16
BORGARLEIKHÚSIÐ
i\\r eru haldnar Víkingáveislur. Við getum tekið
á móti 300 matargestum samtímis. i’jöðlegur
matur er borinn fram í trogum af syngjandi
víkingum og valkyrjum. Drukkið er úr hornum
að gömlum íslenskum vfkingasið. Um helgar
eru haldnir dansleikir í Fjörugarðinum. Mikill
glaumur og gleði ásamt gestum í vikingaskapi
einkenna dansleiki Fjörugarðsinns.
Fjaran
Glæsilegur veitingastaður með
rómantískum blæ, og fallegu
útsýni yfir höfnina. Þar hehir
]ón Möller leikið píanótónlist
sfðastliðin 12 ár. Einnig kemur
þar fram okkar landskunna
Vfkingasveit.
Viking Flótel
FFótelið og Vestnorræna ^
menningarhúsið eru í
sömu byggingu. í hótelinu eru 29 vel
búin og glæsileg herbergi með sturtu, salerni,
kaffivél, hárþurrku, sjónvarpi og aðgang að Netinu.
Vesmorrænt þema er á bak við hönnun herbergjanna á efri
hæðinni og á neðri hæð eru herbergin f anda víkinga.
í notalegri setustofu hótelsins er að finna fallegt handverk
frá Vestnorden löndunum þemur. Morgunverðasalur
víkingahótelsins er rúmgóður, skemmtilega
innréttaður og hentar vel til fundar eða
veisluhalda.
FJORUKRAIN
Sími 565-1213 www.fjorukrain.is
Samskiptin fær-
ast inn á netið
Þróttur tók í notkun nýja heimasíðu á net-
inu í haust og með henni má segja að
orðið hafi gjörbylting í uppiýsingagjöf og
jafnframt samskiptamöguleikum innan
félagsins. Síðan byggir á íslenska vefum-
sjónarkerfinu DIO, sem að hluta er
smíðað með þarfir íþróttafélaga sérstak-
lega í huga. A nýju heimasíðunni er nú
þegar unnt að nálgast allar nauðsynleg-
ustu upplýsingar sem fólk þarf á að halda
um starfsemi félagsins og innan tíðar má
reikna með að þar verði að finna nánast
allt sem fólk getur hugsanlega langað til
að vita um Þrótt. Sem dæmi má nefna að
foreldrar og iðkendur í yngri flokkur geta
hér gengið að æfingatöflum sínum, unnt
er að fletta upp einstökum leikmönnum
og skoða upplýsingar um þá ásamt mynd.
Þá gildir einu hvort leikmaðurinn spilar
með meistaraflokki karla eða í 6. flokki
kvenna. Hér er líka auðvelt að fylgjast
með úrslitum leikja og sjá hvaða leikir eru
framundan, hvar þeir verða leiknir og
hvenær. Fréttir eru flokkaðar eftir íþrótta-
greinum og flokkum, þannig að t.d. for-
eldrar í ákveðnum yngri flokki geta á sér-
stakri fréttasíðu flokksins fylgst með því
sem þar ber hæst.
Það krefst þó mikils starfs að halda úti
svo öflugri heimasíðu og hér kemur
atorkusemi margra Þróttara að góðu haldi.
Hátt í 40 manns taka þátt í því starfi að
uppfæra og setja nýtt efni inn á síðuna.
Tilkoma nýju síðunnar hefur einnig
auðveldað tölvupóstsamskipti og fjöld-
asendingar til muna. Þjálfarar geta nú t.d.
farið inn á sérstaka póstlista, sem upp-
færðir eru regiubundið, og sent tölvupóst
til allra iðkenda sinna, svo sem ef breyta
þarf æfingatíma með litlum fyrirvara.
Og eigi t.d. foreldrar erindi við þjálfara
bama sinna, geta þeir flett upp GSM-síma
hans á heimasíðunni eða smellt þar á
tengil til að senda honum tölvubréf. En
sjón er sögu ríkari. Smelltu þér á
www.trottur.is og skoðaðu þig um. Og þú
getur að sjálfsögðu tekið þar þátt í spjalli
áhugasamra Þróttara um gengi liðanna
okkar á leiktíðinni sem nú er að hefjast.
16