Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Blaðsíða 22
Þróttur/Haukar í efstu deild
Mikill metnaður í hópnum
- segir Gunninga fyrirliði og hvatakona
í sumar keppir lið frá Þrótti í fyrsta sinn í
efstu deild Islandsmótsins í meistara-
flokki kvenna. Saga meistaraflokksknatt-
spymu í kvenna flokki í :Þrótti er ekki
löng þótt yngri flokkar hafi verið starf-
ræktir í mörg ár. Guðrún Inga Sívertsen,
Gunninga, helsta hvatakona kvenna-
flokksins féllst á að segja lesendum
Þróttarblaðsins örlítið frá þessari sögu.
„Þetta hófst fyrir fjórum árum“ sagði
Gunninga „en þá hitti ég stjóm Þróttar og
bað um að fá að stofna meistaraflokk
kvenna í félaginu ásamt nokkrum hópi
stelpna sem höfðu spilað í hinum ýmsu
félögum en höfðu hætt langt fyrir aldur
fram. Við ætluðum sjálfar að standa
straum af öllum kostnaði við rekstur
flokksins, því við vorum bara á höttunum
eftir aðstöðunni. Þetta var Þrótti svo sem
að meinalausu og meistaraflokkur kvenna
varð til“.
Það varð snemma ljóst að stelpurnar
voru ekki bara að þessu að gamni sínu.
Gunninga segir að metnaðurinn hafi
snemma borið þær ofurliði. „Fyrsta sum-
arið okkar í Þrótti rétt töpuðum við af sæti
í efstu deild, en næstu tvö unnum við
okkur sæti þar“.
„Það var fullur skilningur allra á því að
við afþökkuðum sætið í fyrra skiptið"
segir Gunninga, „en við gátum ekki verið
þekktar fyrir að gera það aftur þó aðstæð-
urnar væru í raun þær sömu. Við vorum
bestar í 1. deild en það voru bara ekki
nógu margar okkar sem voru til í að keppa
í efstu deildinni". I dag erum við 3 eftir af
þeim hópi sem stofnaði meistaraflokk
kvenna í Þrótti haustið 1999.
„Bæði í fyrra og árið þar á undan
kepptum við til úrslita við Hauka um sæti
í efstu deild. Þær voru með góðan hóp,
fullt af ungum stelpum og vel að öllu
staðið í kringum kvennaknattspyrnuna
þar. Okkur þótti því tilvalið að leita sam-
starfs við Hauka um lið í 1. og efstu
deild“. „Hugmyndin var sú“ segir
Gunninga, „að tefla fram liði í báðum
deildum sem mannað væri stelpum úr
báðum félögunum“. „Með þessu ynnist
tvennt; lið sem keppt gæti við þær bestu
og verkefni fyrir allan hópinn"
„Þetta samstarf hefur í raun gengið
ævintýralega vel, hópurinn er stór, 25
stelpur á æfingum, enginn rígur á milli
félaganna og alltaf æft við bestu aðstæður.
I vetur æfðum við mikið á gervigrasinu á
Asvöllum og í vor æfum við á grasinu í
Laugardalnum. Iris Björk Eysteinsdóttir
sem þjálfaði í fyrsta sinn í fyrra í meistar-
aflokki með glæstum árangri stjórnar lið-
unum ásamt því að spila og nýtur dyggrar
aðstoðar Daða Rafnssonar. Það má heldur
ekki gleyma því að vel er staðið að starf-
inu hjá bæði Haukum og Þrótti. Kvenna-
ráð var stofnað í kringum sameininguna
og því stýrir enginn annar en Gunni Bald,
uppalinn Þróttari sem hefur alið upp fullt
af Haukafólki“.
Hvar verða heimaleikir Þróttar/Hauka,
eða á ég að segja Hauka/Þróttar í sumar?
„Þraukarar, eru nafnið sem við höfum
fundið á liðið, svona okkar á milli”, segir
Gunninga, „bæði liðin okkar leika sína
heimaleiki til skiptis á Þróttarvelli og í
Hafnarfirði“
Að lokum Gunninga: Hverju spáir þú
um sumarið? „metnaðurinn er gífurlegur í
hópnum og þjálfararnir Iris og Daði hafa
náð upp mjög góðri stemmingu fyrir kom-
andi verkefni. Ég hef fulla trú á okkur
stelpunum, frábærir leikmenn undir stjóm
metnaðarfullra þjálfara. Við föllum ekki
úr úrvalsdeildinni, því get ég lofað“ segir
Gunninga sigurviss.
Kæru nágrannar
Allt frá því að Knattspyrnufélagið Þróttur flutti úr Sæviðarsundinu niður í Laugardal hefur félagið
unnið þrotlaust að því að koma sér fyrir á nýjum stað. Sú vinna er nú að skila félaginu og ykkur sem
búið í nágrenni Laugardalsins miklu. Aldrei fyrr í sögu Þróttar hefur verið önnur eins aukning í iðkenda-
fjölda og undanfarin 1-2 ár og áhugi og starf foreldranna í félaginu er ótrúleg staðreynd sem önnur félög
eru farin að öfunda okkur af. Áherslan í starfi félagsins hefur enda verið á bömin og unglingana þó
árangur meistaraflokkanna sé alltaf mikilvægur mælikvarði á styrk og ímynd félagsins.
Þið sem lesið þessar línur ættuð að hafa í huga gildi þess fyrir mannlífið að hafa Þróttmikið íþrótta-
félag í hverfinu. Ekki þarf að fara mörum orðum um forvarnargildi æskulýðs- og íþróttastarfs, eins
mikið og um það hefur verið rætt og ritað á undanförnum árum. Það er óhrekjanleg staðreynd að þeir
krakkar sem eru virkastir í íþróttum og tengdri starfsemi eru einnig að standa sig vel annars staðar.
Þróttur hefur markað sér þá stefnu að þjóna öllum íbúum í nágrenni Laugardalarins af bestu getu
og kallar eftir góðu samstarfi við ykkur íbúana, bæði unga og aldna. Sú magnaða aðstaða sem félagið
býr við í dag býður uppá frábæra möguleika til margvíslegs íþrótta- og tómstundastarfs sem Þróttur mun
hafa forgöngu um.
Kristinn Einarsson, formaður Þróttar
22