Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Qupperneq 21
Skemmtanir á vegum félagsins í vetur
Velkomin í félagsheimilið
ykkar og okkar
Félagshús Þróttar er á góðri leið að
verða „félagsheimili" Þróttarhverfisins.
Þar hittast foreldrar ungra Þróttara og
gera sér glaðan dag við ýmis tilefni. Þor-
rablót Þróttar, sem haldið er annan laug-
ardag í þorra, er smám saman að vinna
sér sess sent Þorrablótið í hverfinu. I
vetur var vel mætt sem fyrr og ræðu-
maður kvöldsins gamall nágranni
Þróttar af Holtinu, Ögmundur Jónasson
alþingismaður, fór á kostum, þegar hann
ræddi um þessar æskuslóðir Þróttar.
Herrakvöld Þróttar var haldið
snemma nýju ári og tókst það með ólík-
indum vel, enda stjómaði þjálfari meist-
araflokks, Asgeir Elíasson, þar vaskri
sveit gamalla og nýrra Þróttara.
Afrakstur þessarar skemmtunar fór langt
með það að greiða fyrir æfingaferð
meistaraflokks karla til Watford.
Stelpurnar létu ekki sitt eftir liggja og
héldu sitt kvennakvöld
síðla vetrar og tókst það
ekki síður vel. Þar mættu
Þraukur í sínu fínasta
pússi ásamt vinkonum og
stuðningsfólki. Stelp-
urnar voru með þessu að
gera tvennt. Treysta and-
ann í Þraukunum, sameiginlegu liði
Þróttar og Hauka í kvennaboltanum, og
eins að safna peningum fyrir æfingaferð
til Danmerkur. Ekki er annað að sjá en
hvortveggja hafi tekist með prýði.
Félagshúsið okkar er nýtt dag hvern af
íþróttafólkinu og áhangendum félagsins.
Ennfremur hefur veislusalurinn verið afar
vinsæll fyrir veislur, fundi og samkomur
af ýmsu tagi. I hádeginu á hverjum föstu-
degi er slegið upp veislu sem er vinsæl
meðal Þróttara og vina þeirra. Þá er
„matur eins og hjá mömmu“ á boðstólum,
Það er staðarlegt heim að líta til
Félagshúss og félagssvæða Þróttar í
Laugardal. Skiltið góða sem Magnús
heitinn Óskarsson gaf félaginu minnir
örugglega á hvar við erum.
steikt læri og hryggur, ís og niðursoðnir
ávextir og kaffi á eftir. Allt fyrir þúsund
krónur. Þarna eru þjóðmálin og knatt-
spyrnan krufin til mergjar nokkuð
jöfnum höndum.
Sumarskóli í útivistarparadís
Sumarskóli Þróttar verður starfræktur í
útivistarparadís Reykjavíkur í Laugar-
dalnum þar sem ótrúlegir möguleikar hafa
skapast til fjölbreyttrar íþrótta- og leikja-
iðkunar. Skólinn er ætlaður börnum frá 5
ára aldri. Unnt er að velja um heilan eða
hálfan dag, kl. 9-16, kl. 9-12 eða kl. 13 -
16. Auk þess er unnt að fá gæslu frá kl.
07;45 á morgnana og til kl. 17; 15 á
kvöldin. Námskeiðin eru ein vika í senn,
en dagskrárhringurinn tekur þó tvær
vikur. Þannig gefst meiri fjölbreytni fyrir
þau böm sem eru lengur en eina viku.
Fjöldi íþróttagreina verður kynntur
fyrir börnunum auk ýmissa leikja, eftir
því sem best hentar hverjum aldurshópi.
Knattspyrnan skipar þó heiðursess,
einkum hjá þeim eldri. Ferðir í Húsdýra-
garðinn eru fastur liður en við heim-
sækjum einnig fleiri staði. Við skólann
starfar uppeldismenntað fólk með mikla
reynslu í barna og unglingastarfi innan
íþróttahreyfingarinnar. Hvert námskeið
stendur frá mánudegi til föstudags á tíma-
bilinu 10. júní til 15. ágúst.
Námskeið Tímabil
01 10. - 13. júní*
02 16. - 20. júní*
03 23. - 27. júní
04 30. júní - 4. júlí
05 07. - ll.júlí
06 14.-18. júlí
lýsingar er að finna á heimasíðu Þróttar
www.trottur.is og þar er líka að finna
skráningareyðublað. Fyrirspurnir má
senda á skoli@trottur.is
Námskeið fellur niður 21. - 25. júlí
vegna alþjóðamótsins VISA-REY CUP.
08 28. júlí - 01. ágúst
09 05. - 08. ágúst*
10 11.-15. ágúst
* Fjögurra daga námskeið og lægra
verð.
Skráning er þegar hafin. Best er
fylla út í skráningarform á heima-
síðunni en einnig er tekið við
skráningum í síma 580 5900. Unnt
er skrá böm í Sumarskólann allt frá
hálfum degi í eina viku upp í allan
daginn allt tímabilið sem skólinn
starfar. Greiða þarf fyrir upphaf
námskeiðs. 1 Félagshúsi Þróttar má
greiða með korti eða reiðufé, en
einnig er unnt að greiða með milli-
færslu í heimabanka, en þá þarf að
senda afrit af færslunni í tölvupósti
til skoli@trottur.is Verð námskeið-
anna er allt frá kr. 2.800,- til 9.500
enda valmöguleikarnir fjölbreyttir.
Matur í hádeginu er innifalinn í
verði heilsdagsnámskeiðs. Systk-
inaafsláttur er veittur systkinum
sem sækja skólann samtímis og
böm sem æfa hjá Þrótti fá iðkenda-
afslátt. ítarlega umfjöllun um
Sumarskóla Þróttar, fullkomna
verðskrá og allar nánari upp-
21