Fréttablaðið - 13.08.2021, Síða 4

Fréttablaðið - 13.08.2021, Síða 4
kristinnpall@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Enski boltinn fer aftur að rúlla í kvöld þegar nýliðar Brent- ford taka á móti Arsenal á nýlegum heimavelli Brentford í baráttu Lundúnaliðanna. Ljóst er að margir bíða spenntir eftir því að sjá stærstu stjörnur heims leika listir sínar og í fyrsta sinn í tæplega eitt og hálft ár verða áhorfendur í öllum sætum. Gerð verður krafa um að áhorfend- ur séu bólusettir eða geti sýnt fram á neikvætt PCR-vottorð sem má að hámarki vera 48 tíma gamalt. Líklegt er að það verði einn ef ekki tveir Íslendingar á leikskýrslu í kvöld en markverðirnir Patrik Sig- urður Gunnarsson og Rúnar Alex Rúnarsson eru á mála hjá Brentford og Arsenal. Jóhann Berg Guðmundsson verður í eldlínunni með Burnley á morgun gegn Brighton en Gylfi Þór Sigurðsson verður fjarverandi í liði Everton gegn Southampton á meðan mál hans er inni á borði lög- reglunnar í Manchester. ■ Enski boltinn hefst að nýju Alex var sagður á förum frá Arsenal en verður líklegast í þeim hóp í kvöld. arib@frettabladid.is REYKJANES Möguleg lokun Suður- standarvegar myndi hafa töluverð áhrif á starfsemi botnfisksvinnslu. Líkt og greint var frá í blaðinu í gær segir Þorvaldur Þórðarson, pró- fessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, að ef eldgosið í Geldinga- dölum haldi áfram sem horfi muni það ekki taka hrauntauminn nema fjórar til fimm vikur að renna úr Meradölum og yfir Suðurstrandar- veg. Berglind Kristinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitar- félaga á Suðurnesjum, segir veginn mikilvægan bæði með tilliti til öryggis og atvinnu. Áhrifin yrðu mest í Grindavík. „Varðandi atvinnulíf þá hefur þróun verið sú allt frá árinu 1993 að botnfisksvinnslur hafa leitað á suð- vesturhornið og árið 2013 voru 50 prósent allra botnfisksvinnsla stað- sett í 60 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Sem segir okkur það að stærsta breytingin í sjávar- útvegi á Íslandi hefur orðið sú að aukning hefur orðið í framleiðslu og útflutningi ferskra sjávarafurða,“ segir Berglind. Vinnslurnar eru í Vestmannaeyjum og í Þorlákshöfn. „Það hefði því töluverð áhrif á þessa starfsemi myndi koma til þess að Suðurstrandarvegurinn lokaðist. Auk þess er verið að aka með afla á milli hafna utan af landi, sem er unninn í Grindavík og Suðurnesja- bæ, og lokunin hefði klárlega áhrif á starfsemi.“ ■ Lokun hefði mikil áhrif á botnfisksvinnslu Berglind Kristinsdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum. Guðmundur Ingi Guðbrands- son, umhverfis-og auðlinda- ráðherra og varaformaður Vg, segir vinstri stjórn besta kostinn til að ná árangri í umhverfisvernd. Hann segir mikla losun hér á landi mega rekja til stóriðjunnar og stórra atvinnugreina. linda@frettabladid.is ALÞINGISKOSNINGAR Sjálfstæðis- f lokkurinn og Framsóknarf lokk- urinn studdu ekki mál Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis-og auðlindaráðherra í ríkisstjórn um stofnun hálendisþjóðgarðs, að sögn ráðherrans. „Það er alveg ljóst að ég mætti andstöðu innan ríkisstjórnarflokk- anna og víðar,“ sagði Guðmundur Ingi á Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöldi. Frumvarp hans var lagt fyrir Alþingi í nóvember í fyrra. Eins og þekkt er fékk það ekki afgreiðslu fyrir þinglok en stofnun hálendis- þjóðgarðs er að finna í stefnuyfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar. „Niðurstaðan var sú að við verð- um að gefa þessu meiri tíma.“ Hvort málið hafi ekki komið fram alltof seint miðað við umfangs þess, sagði Guðmundur Ingi það  mega vera. „Þetta hafði mátt eiga meiri tíma, þar spilar inn í Covid og f leira. Ég lagði það fram í ríkisstjórn í októ- ber, þannig að þetta var bara mjög þungt mál. Ég er hins vegar sann- færður um það að við getum náð meiri sátt um þetta,“ sagði hann. „Þetta er vissulega stórt mál fyrir Vg en líka stórt mál fyrir Ísland í heild sinni,“ sagði ráðherra og að meðbyr hafi verið með hálendis- þjóðgarði í öllum flokkum þingsins. „Það skiptir ekki bara Ísland máli að koma hér fram með eitt helsta framlag okkar til náttúruverndar í heiminum,“ sagði hann. Það sé þó líka stórt efnahagslegt mál til að efla byggðirnar í landinu. Aðspurður, miðað við andstöðu stjórnarf lokkanna tveggja, hvort ekki sé ljóst að eigi hálendisþjóð- garður að verða til þá þurfi öðruvísi samsetta ríkisstjórn en nú er, sagðist Guðmundur Ingi ekki vilja segja til um það. „Við bara leggjum fram okkar stefnumál í Vg fyrir kosning- ar og svo á borðið eftir kosningar hvað við leggjum áherslu á í stjórn- arsamstarfi ef við fáum tækifæri til þess, og hálendisþjóðgarður er eitt af því sem við munum að sjálfsögðu leggja þar á borðið,“ var svarið. „Auðvitað vilja vinstri menn alltaf vera í vinstri stjórn,“ segir Guðmundur Ingi um hvort æski- legra sé fyrir umhverfismálin að stjórn verði mynduð til vinstri með Vg. „Þá náum við meiri árangri í þeim málum sem við leggjum á borðið og leggjum áherslu á,“ segir Guðmundur Ingi og loftslagsmálin séu þar með talin. Á Íslandi er ein hæsta losun gróð- urhúsalofttegunda í heimi, eða um 14 til 20 tonn á hvern íbúa á ári. Til að ná markmiðum Parísarsáttmál- ans þarf losunin að minnka niður í fjögur tonn á mann en Ísland hefur auk þess sett sér hærra markmið um kolefnishlutlaust Ísland í síðasta lagi árið 2040. Rauð viðvörun var gefin út vegna losunar gróðurhúsalofttegunda í nýrri loftslagsskýrslu milliríkja- nefndar Sameinuðu þjóðanna. „Þetta meðal annars orsakast af því að hér eru stór álver sem losa mikið hlutfallslega, miðað við íbúafjölda,“ segir Guðmundur Ingi. Hann nefnir nauðsyn á meiri aðgerðum vegna losunar í landbún- aði og sjávarútvegi þótt tilraunir með umhverfisvænna eldsneyti gefi góð fyrirheit og einnig í f lug- samgöngum. ■ Segir vinstri stjórn besta kostinn til að ná árangri í umhverfisvernd Umhverfis- og auðlindaráð- herra segist ekki hafa fengið stuðning við frumvarp sitt um hálendis- þjóðgarð innan ríkisstjórnar- innar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Auðvitað vilja vinstri menn alltaf vera í vinstri stjórn. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vg og umhverfis- og auðlindaráð- herra. kristinnpall@frettabladid.is ÁRBORG Bæjarráð Árborgar sá enga ástæðu til að gera athugasemd eftir að Samgöngustofa óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins um beiðni til þess að fjölga atvinnuleyfum leigubifreiðastjóra í Árborg. Von er á tuttugu prósenta fjölgun leigubíla í sveitarfélaginu. Leigubifreiðastöð Suðurlands hafði óskað eftir því að hámarks- fjöldi atvinnuleyfa leigubifreiða- stjóra í sveitarfélaginu yrði hækk- aður um tvö leyfi, úr átta í tíu. Var óskað eftir því til þess að geta betur annað eftirspurn eftir leigubíla- þjónustu á svæðinu þar sem mikil fólksfjölgun hefur orðið þar undan- farin ár. ■ Ekki mótfallið fjölgun leigubíla  kristinnpall@frettabladid.is BORGARBYGGÐ „Það er mjög ánægju- legt að þessi lausn sé komin. Þetta er stór stund og fallegt fyrir staðinn og tryggði um leið framtíð safnsins á þessum fallega degi,“ segir Páll Guð- mundsson, eftir að samkomulag var undirritað sem tryggir framtíð leg- steinasafns hans í Húsafelli. Til stóð að hefja niðurrif safnhúss- ins í gær í samræmi við niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands frá í fyrra en ekkert varð af því þar sem sam- komulag náðist milli Borgarbyggðar, Páls og Sæmundar Ásgeirssonar, nágranna hans, á elleftu stundu. „Safnið fær að halda áfram og við getum haldið áfram að vinna að því að koma legsteinum þarna inn og gera það fallegt,“ segir Páll. Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitar- stjóri í Borgarbyggð, segist fegin að tekist hafi að semja í tæka tíð. „Málið hefur snúist um mjög afmarkaðan þátt undanfarin ár og í viðræðum á miðvikudag var komist að því að það væru forsendur til frek- ari sáttaumleitana sem sveitarfélagið hefur haft aðkomu að. Við hittumst á fundi og fórum yfir þau atriði sem stóðu út af. Þetta var erfiður fundur en að lokum tókst okkur að finna farsæla lausn til framtíðar sem allir aðilar málsins gátu sætt sig við,“ segir Þórdís, aðspurð hver aðkoma sveitar- félagsins var að málinu. „Það var enginn sem vildi að safn- ið yrði rifið, heldur að það yrði farsæl framtíðarlausn á þessu deilumáli,“ undirstrikar sveitarstjóri Borgar- byggðar. ■ Feginleiki er niðurrifinu var forðað Páll Guðmunds- son og Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri skrifa undir samkomulagið sem Sæmundur Ásgeirsson í Gamla Bæ hafði áður undirritað. FRÉTTABLAÐIÐ/ FRIÐÞJÓFUR 4 Fréttir 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.