Fréttablaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 26
Styrktarfélagið Gleym mér
ei styður við fjölskyldur sem
missa barn á meðgöngu, í
eða fljótlega eftir fæðingu.
Án áheitasöfnunar hlaupara
í Reykjavíkurmaraþoni væri
ekki hægt að halda starfinu úti.
„Þriðja barnið mitt, Guðrún
Júlía, kom andvana í heiminn 7.
desember árið 2015. Það er erfitt að
lýsa þeim tilfinningum sem fylgdu
þessum degi, en þegar ég hugsa til
baka finn ég fyrst og fremst fyrir
ást og þakklæti. Þetta litla barn
breytti öllu.“
Þetta segir Ingunn Sif Höskulds-
dóttir, fimm barna móðir, stjórnar-
kona í styrktarfélaginu Gleym mér
ei og tannlæknir.
„Ég fékk strax á spítalanum svo
sterka tilfinningu fyrir þeim for-
eldrum sem á undan komu og bar-
áttu þeirra fyrir bættri umgjörð.
Baráttunni fyrir því að þessi djúpa
sorg fái pláss í samfélaginu okkar.
Fyrir því að við fáum að eyða tíma
með börnunum okkar, elska þau,
nefna, kveðja og syrgja. Tala um
þau og varðveita minningu þeirra.
Þarna heyrði ég í fyrsta skipti um
Gleym mér ei.“
Dýrmætur stuðningur
Gleym mér ei var stofnað árið 2013
af Önnu Lísu Björnsdóttur, Hrafn-
hildi Hafsteinsdóttur og Þórunni
Pálsdóttur. Reynsla af missi á með-
göngu leiddi þær saman með það
að markmiði að styðja fjölskyldur
sem missa barn á meðgöngu, í eða
fljótlega eftir fæðingu.
Helstu verkefni félagsins hafa
verið endurgerð duftreits fyrir
fóstur í Fossvogskirkjugarði, minn-
ingarstund 15. október ár hvert,
gerð fræðslubæklinga, kaup á kæli-
vöggum og minningarkassar sem
allir foreldrar fá afhentan við missi
eftir 12 vikna meðgöngu.
Árið 2019 stóð Gleym mér ei að
stofnun Sorgarmiðstöðvar ásamt
öðrum grasrótarfélögum í sorg-
arúrvinnslu. Þar er meðal annars
boðið upp á stuðningshópa undir
handleiðslu fagfólks og regluleg
fræðsluerindi.
Englahópur á hlaupum
Velvild og stuðningur við félagið
hefur verið mikill frá fyrsta degi,
enda um að ræða málefni sem
snertir marga djúpt. Áheitasöfnun
hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni
er langstærsta fjáröflun félagsins
og án hennar væri ekki hægt að
halda úti þessu öfluga starfi.
„Mikilvægi hlaupsins liggur þó
ekki bara í þeim peningum sem
safnast. Hlaupahópur Gleym mér
ei samanstendur að mestu leyti af
foreldrum sem hafa misst barn,
fjölskyldum þeirra og vinum.
Þennan dag fáum við að vera
englamömmur, englapabbar,
englasystkini og englavinir. Sam-
staðan er áþreifanleg og heilandi,“
segir Ingunn Sif og bætir við að
áheitasöfnun og hlaup gefi líka
tækifæri til að vekja athygli á mál-
efninu og opna umræðuna.
„Rúmu ári eftir að Júlía fædd-
ist skráðum við hjónin okkur í
Reykjavíkurmaraþon til þess að
safna áheitum. Ég í mína fyrstu 10
kílómetra og hann í sína fyrstu 21
kílómetra. Við þurftum bæði að
leggjast í töluverðan undirbúning
og hann var bæði uppbyggjandi
og sameinandi. Hlaupadagurinn
var fullkominn. Þarna vorum við
allt í einu ekkert annað en mamma
og pabbi Júlíu og það var töfrum
líkast. Síðan þá höfum við verið
skráð í hlaupið og töfrarnir hafa
ekkert minnkað. Í fyrra nutum við
þess að hlaupa saman fjölskyldan í
okkar eigin Covid-maraþoni. Þessi
dagur er og verður einn af okkar
uppáhalds á hverju ári.“
Varðveita minningu barna
Langstærsti kostnaður styrktar-
sjóðsins fer í þá rúmlega hundrað
minningarkassa sem félagið gefur
á hverju ári.
„Í kassanum er armband fyrir
barn og foreldra frá Aurum,
bangsar, gipsmót fyrir hendur og
fætur, kertastjaki, föt á barnið og
fleira, og er kassanum ætlað að
styðja foreldra í að varðveita minn-
ingu barnsins. Maraþonið tryggir
áframhald kassanna, en auk þess
höfum við reynt að standa að
átaksverkefni á hverju ári,“ upp-
lýsir Ingunn Sif.
Í ár vinnur Gleym mér ei að
auknum stuðningi við foreldra
sem missa á fyrsta þriðjungi með-
göngu með gerð fræðsluefnis.
„Í ár hlaupum við líka í Gleym
mér ei-bolum í þriðja sinn. Bergrún
Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og
teiknari, hannaði og gaf félaginu
yndislegan nýjan bol í byrjun
sumars og við getum ekki beðið
eftir því að sjá fólkið okkar í honum
í hlaupinu í september. Hlaupurum
stendur til boða að láta merkja
bolinn sínu barni og hefur það
vakið mikla lukku.“ n
Hlaupastyrkur: rmi.is/hlaup-
astyrkur/godgerdamal/370-
gleym-mer-ei-styrktarfelag
Vefsíða: gleymmerei-styrktar-
felag.is
Instagram: gleymmereistyrktar-
felag
Facebook: Gleymmérei Styrktar-
félag
Þessi dagur er og verður okkar uppáhalds
Ingunn Sif
Höskuldsdóttir
er tannlæknir
og fimm barna
móðir. Þegar
þriðja barn
hennar, Guðrún
Júlía, kom and-
vana í heiminn
fékk hún löngun
til að leggja
baráttu Gleym
mér ei lið því
það skiptir máli
að foreldrar
sem missa börn
sín fái tíma til
að elska þau,
nefna,kveðja og
syrgja. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/EYÞÓR
Ingunn Sif og Björgvin, maður hennar, klædd bolum merktum Júlíu þeirra.
Í minningarkassa Gleym mér ei eru gipsmót fyrir hendur
og fætur barnsins. Þessar smáu hendur átti Guðrún Júlía.
Hlaupabolir Gleym mér ei eru fallegir og má merkja nöfnum barna.
Minningarkassa Gleym mér ei er ætlað að styðja foreldra
í að varðveita minningu barnsins með fallegum hlutum.
Hlaupahópur
Gleym mér ei
samanstendur að mestu
af foreldrum sem hafa
misst barn, fjölskyldum
þeirra og vinum. Þennan
dag fáum við að vera
englamömmur, engla-
pabbar, englasystkini og
englavinir.
14 kynningarblað 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR MAR AÞON