Fréttablaðið - 13.08.2021, Qupperneq 12
„Ég fæ hvolp í afmælisgjöf! Það
er draumagjöfin,“ segir Guðrún
Tinna Thorlacius, markþjálfi og
hómópati, ávallt kölluð Tinna.
Tinna stendur á fimmtugu í dag
og fékk einnig hvolp þegar hún
varð fertug.
„Þá fékk ég Jack, enskan cocker
spaniel, sem er ömmubróðir
hvolpsins sem fæddist í síðustu
viku hjá Leirdalsræktun. Þetta eru
yndislegir fjölskylduhundar og
miklir félagar manns. Við finnum
að Jack er farinn að eldast svo það
er gott að hann geti hjálpað okkur
við uppeldið á ungviðinu. Með því
tryggjum við að hvolpurinn alist
upp við sömu venjur og reglur sem
við settum Jack,“ segir Tinna.
Ól barn á brúðkaupsafmælinu
Tinna er uppalin á Seltjarnar
nesinu en lítur þó fyrst og fremst á
sig sem Akureyring. Þar bjó hún frá
unglingsaldri og þar býr stórfjöl
skyldan enn, en nú er hún aftur
komin á Nesið með eiginmann,
þrjú börn, hund og kött.
„Maðurinn minn, Paul Allen,
er Breti og flugstjóri hjá Atlanta.
Sonur okkar Oliver fæddist fyrst,
orðinn 22 ára, svo fæddist Emma
sem verður 16 ára nú í ágúst og
Lilja er yngst, 11 ára. Emma fæddist
á brúðkaupsafmælinu okkar árið
2005, tæpum mánuði fyrir tímann.
Það var óvænt og skemmtileg gjöf.
Paul var nýfarinn í Ameríkuflug
þegar ég fór út til að hafa ofan af
fyrir Oliver og hugsaði með mér
hvort ég væri búin að pissa í bux
urnar. Þá hafði ég misst vatnið og
hluta þess tveimur dögum áður
í hláturskasti yfir símtölum vin
kvenna sem voru á skralli heima á
Íslandi,“ segir Tinna, sællar minn
ingar.
Fimmtíu afmælismarkmið
Í tilefni fimmtugasta afmælis
ársins setti Tinna sér fimmtíu
markmið og mörg sem fela í sér
töluna 50.
„Ég er afskaplega markmiða
sækin og fæ mikið út úr því að
skora sjálfa mig á hólm og prófa
nýja hluti. Ég held auðvitað bók
hald yfir afmælismarkmiðin og
tikka við þegar þau nást, eins og í
fyrradag þegar ég gekk í fyrsta sinn
á Úlfarsfell. Markmiðin tengjast
heilsu og útiveru, nýjum upplif
unum og reynslu. Þannig keypti
ég kajak í sumar og gaf manninum
mínum í afmælisgjöf, því mér
fannst spennandi að fara á kajak
námskeið og hef nú þegar tékkað
við það. Þá hef ég einsett mér að
ganga 50 kílómetra með Jack í
hverjum mánuði, synda Fossvogs
og Sæunnarsundið, fara til Ítalíu
á árinu, standa á höndum, ég tók
sumarfrí frá sjónvarpi og Netflix
allan júlí og fleira og fleira,“ segir
Tinna kát og kappsfull.
Tinna á sér
marga hatta
og það kveikir í
henni að upplifa
nýja hluti, ekki
síst óþægilega.
Hún hefur þá trú
að ástæða sé
fyrir öllu og að
allt hafi tilgang.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Eitt markmiða afmælisársins
var að prófa að búa í bæjarfélagi á
landsbyggðinni í heilan mánuð.
„Því fluttum við fjölskyldan til
Seyðisfjarðar í sumar, þar sem ég
reddaði mér aukavinnu og fékk
húsnæði á móti. Mér fannst nauð
synlegt að stunda vinnu til að
kynnast bæjarbúum og hvunn
dagslífinu eystra, elda fiskbollur á
nýjum stað og vera með í samfélag
inu. Okkur fannst öllum æðislegt
á Seyðisfirði og ekki spillti góða
veðrið fyrir,“ segir Tinna og ætlar
aftur að ári.
„Yfirmarkmið fimmtugasta
ársins er að upplifa og rannsaka
lífið utan þægindarammans sem
ég hef búið til í daglegu lífi. Að
horfa í kringum mig í stað þess að
vera með blöðkur fyrir augum og
föst í rútínu við að gera bara það
sem maður kann og veit og er alltaf
að gera. Ég veit að það er eitthvað
meira og mig langar að sjá hvað ég
get gert annað í lífinu. Það kveikir
í mér að framkvæma og upplifa
nýja hluti og ekki síst þetta óþægi
lega; eins og á Seyðisfirði, að vera í
öðru húsi þar sem ég er ekki með
kaffibollann minn og kaffivélina í
vanabundna þægindarammanum
mínum. Það er virkilega frískandi
að stíga út úr þeim ramma og
storka daglega lífinu. Svo þegar við
dettum aftur inn í rammann sem
við þekkjum svo vel, þá nærir hann
okkur betur og okkur hættir að
finnast hann sjálfsagður.“
Synti sjósund 100 daga í röð
Þúsundþjalasmiðurinn Tinna er
líka sjósundskennari og heldur
úti vinsælum námskeiðum í sjó
böðum. Eitt markmiðanna var að
synda sjósund fimmtíu daga í röð.
„Ég er búin að ná því. Við Maja,
æskuvinkona mín, byrjuðum að
synda 2. apríl og fórum í öllum
veðrum, en vorum þá ekki búnar
að fá nóg og syntum aðra fimmtíu
daga í röð en hundraðasta daginn
synti ég í sjónum á Seyðisfirði,“
segir Tinna, sem fer oftast í sjóinn
við Gróttu og í Nauthólsvík.
„Stundum dýfi ég mér í öldu
gang og læt mig bara dúa með, aðra
daga syndi ég úr Nauthólsvík út á
flugbrautarenda og til baka, allt frá
700 metrum upp í tvo kílómetra á
sumrin.“
Lærði hómópatíu eftir draum
Tinna er með sjötta skilningarvitið
opið, en segist þó ekki sjá fram
liðna.
„Ég er næm og með sterkt inn
sæi, fæ iðulega fyrirboða og skynja
vel líðan og tilfinningar,“ útskýrir
hún. „Mín fyrsta sterka minning
um slíkt tengist því sem ég fæst við
í lífinu í dag. Ég er nefnilega hómó
pati vegna þess að mig dreymdi
það og var eins og vakin. Það var í
fyrsta sinn sem ég hlustaði á það
sem kom til mín í draumi, en þá
vissi ég nákvæmlega ekkert um
hómópatíu.“
Tinna segir sérkennilegt að
taka ákvörðun um að fara í nám
byggða á draumi, en hún fór strax
að kynna sér nám um hómópatíu
og komst að raun um mjög góðan
skóla í næsta bæjarfélagi þar sem
hún bjó á Bretlandi.
„Ég dreif mig í heimsókn og áður
en ég vissi af var ég búin að skrá
mig í nám. Ég varð yfir mig hissa
á því að þessi fræði væru til. Þau
töluðu beint inn í hjarta mitt, um
hvernig ég vildi hugsa um líf mitt,
heilsu og fjölskyldu,“ segir Tinna,
sem er menntaður þroskaþjálfi en
lauk B.Scnámi í hómópatíu við
Purton House/The University of
West London árið 2010.
Hún segir Íslendinga opna
fyrir hómópatíu, ekki síst eftir að
heimsfaraldurinn skall á.
„Almenningur hugsar nú meira
um hvað hægt er að gera til af efla
heilsuna og ýmislegt er að opnast
í sambandi við náttúrulækningar
og óhefðbundnar aðferðir. Hómó
patía er ekki töfralausn. Hún er
hönnuð á þann hátt að gefa gott
tækifæri til að vinna að forvörnum
og kenna fólki að hugsa betur
um eigin heilsu. Svo notum við
remedíur til að styðja við líkama
og líðan, sem er frábær valkostur
samhliða vestrænum lækningum.“
Í dálæti hjá Tinnu eru remedíur
unnar úr fuglum.
„Mér þykja fuglaremedíur
heillandi því fuglar eru spenn
andi dýr og táknmynd þeirra talar
til mín. Ein af þeim er remedían
Cygnus Cygnus, búin til úr fjöður
og blóði svans sem var fangaður.
Þessi tiltekni svanur hafði misst
maka sinn, en í fjöður hans og
blóði eru leifar af líkamlegri og
tilfinningalegri orku fuglsins.
Remedían er því til dæmis talin
vinna vel með sorg og veitir frelsi
frá sorginni, en kjarnaþema í
fuglaremedíum er frelsi, hvort
sem það er gagnvart veikindum,
hugarfari eða hvers kyns þján
ingu. Þær mæta þörf fyrir aukið
frelsi þegar fólk upplifir að það
sé fangið, hvað sem það er sem
bindur það niður.“
Spil segja ekki alltaf satt
Tinna er mikill tarotspekúlant og
heldur úti vinsælum námskeiðum í
lestri tarotspila.
„Ég er lítið í því að spá fyrir um
ástir og ævintýri, en sem mark
þjálfi vil ég hjálpa fólki að setja sér
markmið og rannsaka líf sitt, hvar
það er statt og hvað það vill upplifa
og gera. Ég kenni fólki að hlusta
betur á sjálft sig og hvað það getur
gert með hjálp tarotspila og talna
speki,“ greinir Tinna frá.
Spurð hvort spilin segi satt,
svarar Tinna:
„Nei, það er ekki alltaf þann
ig. Spilin endurspegla á hvaða
stað þú ert nú. Ertu í sannleika og
heiðarlegur við sjálfan þig og sérðu
hlutina í réttu ljósi? Spilin geta
gefið okkur vísbendingar um þetta
og einnig tækifæri til að rannsaka
hvað býr að baki þess sem við
teljum okkur trú um. Ég hef þá trú
að það sé ástæða fyrir öllu og að
allt hafi tilgang; líka hvaða spil við
drögum. Það er mín lífssýn, það
er hluti þess að lifa í f læði lífsins
og treysta því að svona á þetta að
vera. Ég vil lifa í meðvitund og í
samtali við alheiminn.“
Spágáfuna erfði Tinna trúlega
frá langalangömmu sinni, Ástrós
Sumarliðadóttur, sem bjó á Vestur
götu 40 og var þekkt í hverfinu
fyrir að taka fólk í spjall með spil
og bolla.
„Ég er líka í nornahóp sem hittist
árvisst í janúar og gerir spá fyrir
árið, en við hittumst líka á norna
kvöldum og grúskum í alls konar.
Allt er það leikur og hluti af því að
rannsaka lífið og tilveruna. Við
erum góðar nornir.“
Pikknikk í skottinu
Á stórafmælinu stendur Tinna á
tímamótum.
„Það er óneitanlega fullorðins
að verða fimmtug þótt mér líði
enn eins og stelpu,“ segir Tinna og
þótt hún viti lengra en nefið nær
er enginn beygur í henni að eiga
afmæli á föstudaginn þrettánda,
sem oft fylgir hjátrú um óhöpp.
„Nei, mér finnst alltaf jafn
spennandi þegar afmælisdaginn
ber upp á föstudaginn þrettánda.
Ég fæddist föstudaginn 13. ágúst
1971 og þrettán er uppáhalds
talan mín. Í tarotspilum er 13
tala dauðans. Hún gefur skýra
vísbendingu um umbreytingu og
þroska; maður kveður eitthvað en
heilsar líka nýju og það tek ég til
mín á afmælisdaginn. Í vestrænum
heimi er dauðinn túlkaður á annan
veg. Hann er erfiður því hann er
afgerandi en í dauðanum felst líka
nýtt ástand og ný orka, og þar geta
verið tækifæri.“
Fimmtugasti afmælisdagurinn
verður viðburðaríkur.
„Ég byrja daginn á að fara í
afmælisræktina með Siggu æsku
vinkonu minni, því ég æfi kraft
lyftingar og ætla að taka 50 kíló í
bekkpressu. Svo fer ég í sjóinn og
snæði því næst hádegismat með
fólkinu mínu. Seinni partinn ætla
ég í Sky Lagoon og svo út að borða
með fjölskyldunni. Í næstu viku
býð ég svo vinkonum á útihátíð
og í fargufu úti á Nesi, fer með
þeim í sjóinn og verð með æðis
legt pikknikk í skottinu. Ég fæ líka
shaman til að vera með hugleiðslu
og náttúrugaldur til að setja okkur
ásetning. Næsta hálfa öldin verður
svo áfram í flæði þar sem ég verð
opin fyrir því hvert lífið ætlar með
mig og ég hlakka geggjað til fram
haldsins.“ ■
Ég vil lifa í
meðvitund
og í sam-
tali við
alheiminn.
Tinna Thorlacius
2 kynningarblað A L LT 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR