Fréttablaðið - 31.07.2021, Síða 30
Eðalfiskur er ábyrgur framleiðandi á hágæða laxaafurðum sem seldar eru bæði á innanlandsmarkaði og til útflutnings á erlenda
markaði. Félagið leggur áherslu á langtímaviðskiptasambönd við sína viðskiptavini, bæði ytri sem innri og er starfsemin vottuð
með hinum alþjóðlega BRC staðli og starfar samkvæmt honum.
EÐALFISKUR · VALLARÁS 7-9 · 310 BORGARNES · SÍMI 437-1680 · EDALFISKUR@EDALFISKUR.IS
Eðalfiskur ehf. óskar eftir að ráða framleiðslustjóra yfir vinnslu félagsins í Borgarnesi.
Framleiðslustjóri mun starfa náið með framkvæmdastjóra að spennandi verkefnum
sem framundan eru hjá félaginu.
Framleiðslustjóri
Áhugasamir sendi ferilskrá á sigurjon@edalfiskur.is. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2021
Ábyrgðar og starfssvið
• Yfirumsjón framleiðsludeilda
félagsins og umsjón með mannauð
• Heildarskipulagning vinnslu í samræmi
við sölustarfsemi
• Innkaup á hráefni og aðföngum
• Kemur að samningagerð við innlenda
og erlenda viðskiptavini
• Umsjón með starfsháttum og vörugæðum
skv. BRC staðli í samstarfi við gæðastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og/eða reynsla í fiskvinnslu,
helst í laxavinnslu og áframvinnslu á laxi
• Reynsla af stjórnun
• Þekking á gæðakerfum svo sem BRC,
IFS, HACCP eða sambærilegu
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Færni í tungumálum (íslensku og ensku)
SÉRFRÆÐINGUR
Læknafélag Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í hagdeild félagsins
Læknafélagið leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf sérfræðings á skrifstofu félagsins. Um er að ræða
fjölbreytt og krefjandi starf sem annars vegar felur í sér gagnaöflun/gagnagreiningu á heilbrigðismálum og hins vegar rekstrar-
og bókhaldsvinnu.
Sérfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra og starfar náið með honum sem og formanni og starfsfólki félagsins.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á heilbrigðismálum og getu til að meta rekstur og umhverfi heilsbrigðisþjónustu.
Einnig þarf viðkomandi að eiga auðvelt með að koma þeim upplýsingum á framfæri á hnitmiðaðan hátt, bæði í rituðu og mæltu
máli.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir betur grein fyrir menntun sinni,
hæfni, þekkingu og reynslu. Einnig skal tilgreina að minnsta kosti tvo umsagnaraðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsýsla og umsjón launatölfræði.
• Gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni.
• Aðkoma að gerð kjarasamninga.
• Ráðgjöf og fræðsla tengd kjarasamningum.
• Yfirumsjón með bókhaldi félagsins.
• Gerð fjárhagsáætlana.
• Ráðgjöf til fyrirtækja lækna og hópa lækna á sama
starfsvettvangi.
• Aðkoma að stefnumótun LÍ varðandi mótun hins íslenska
heilbrigðiskerfis.
• Seta í nefndum og starfshópum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða skyldum
greinum.
• Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og fram-
setningu tölulegra upplýsinga.
• Þekking og reynsla af málefnum stéttarfélaga og vinnu-
markaðsmálum er kostur.
• Góð þekking á töflureikni og reynsla af vinnslu gagna-
grunna.
• Bókhaldsþekking, reynsla af DK viðskiptahugbúnaði
er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst nk. Ráðið verður í starfið frá 1. september nk. eða skv. samkomulagi.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal senda á netfangið solveig@lis.is.
Nánari upplýsingar veita Sólveig Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri (solveig@lis.is)
og Reynir Arngrímsson, formaður LÍ (reynir@lis.is ).
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Bændasamtök Íslands
leita að öflugum einstaklingi
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá auk kynningarbréfs. Upplýsingar
um starfið veitir Vigdís Häsler framkvæmdastjóri.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf sérfræðings
á markaðssviði, berist eigi síðar en 8. ágúst nk.
á netfangið vigdis@bondi.is
Bændasamtök Íslands leita að öflugum
einstaklingi í hópinn til að sinna fjölbreyttum
verkefnum á nýstofnuðu sviði markaðsmála.
Starfið felur í sér:
▶ Hugmyndavinnu og textagerð
▶ Framkvæmd markaðsáætlana
▶ Umsjón og efnisgerð fyrir vef og samfélagsmiðla
▶ Vefumsjón og leitarvélabestun
▶ Framkvæmd markaðsgreininga og skýrslugerð
▶ Verkefnastjórn
▶ Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
▶ Menntun sem nýtist í starfi
▶ Reynsla af markaðsstarfi
▶ Þekking og reynsla af vefumsjón, stafrænni
markaðssetningu og samfélagsmiðlum
▶ Hæfileiki til að vinna í teymi
og færni í samskiptum
▶ Hæfileiki til að vinna sjálfstætt
▶ Áhugi af landbúnaðarmálum
▶ Góð íslensku og enskukunnátta
í töluðu og rituðu máli
▶ Þekking á Google Ads auglýsingakerfinu
▶ Þekking á Google Analytics
▶ Þekking á Facebook Business Manager
▶ Þekking á Photoshop
▶ Þekking á Instagram Business Tools
▶ Þekkingu á öðrum nýsamfélagsmiðlum
Bændahöllin Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
6 ATVINNUBLAÐIÐ 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR