Fréttablaðið - 31.07.2021, Síða 22

Fréttablaðið - 31.07.2021, Síða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „CEP sokkarnir hafa verið vin- sælir fyrir íþrótta- og gönguiðkun, einnig hafa golfarar verið að koma sterkir inn, en svo eru líka sífellt fleiri farnir að nota þrýstingssokk- ana daglega í stað hefðbundinna sokka,“ segir Ragnheiður Ásta Einarsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Stoð, sem hefur unnið að göngu- greiningum um langt skeið. Þrýstingurinn bætir blóðflæði og vinnur gegn bólgum „Stoð býður upp á hágæða þrýstingssokka frá þýska fyrir- tækinu CEP, sem er dótturfyrirtæki MEDI, en það er þekkt fyrirtæki í þrýstingsfatnaði sem býr yfir 70 ára reynslu. Fyrirtækið byrjaði að framleiða föt í læknisfræðilegum tilgangi og nýtir nú þá þekkingu og reynslu í að framleiða einnig íþróttaföt og sokka,“ segir Ragn- heiður. „Það sem er sérstakt við sokkana frá CEP er að það er þrepaþrýstingur í þeim, sem þýðir að þrýstingurinn er mestur um ökklann og minnkar svo eftir því sem ofar dregur og varnar þá því að blóðflæði fari í ranga átt. Þrýstingurinn sem sokkarnir veita örvar blóðflæði og súrefnis- upptöku og vinnur gegn þreytu,“ útskýrir Ragnheiður. „Fyrir vikið finna margir fyrir því að þeir eru léttari á sér í hlaupum og þreytast síður, auk þess að endurheimt verður hraðari. Þrýstingurinn sem sokkarnir veita auka líka stöðug- leika og örva liðskin, sem minnkar þreytu í fótunum. Einstök framleiðsluaðferð og efni sokkanna hjálpar til við að halda hámarkshita og á sama tíma raka- stjórn og þeir falla vel að fætinum,“ segir Ragnheiður. „Þeir eru líka þykkari við táberg og hæla, sem gefur aukna dempun, sem hentar mjög vel við ákveðnar íþróttir.“ Recovery sokkar „Allir geta notað CEP sokkana, hvort sem það er fyrir íþróttirnar, gönguna, í flugi, við vinnu eða í daglegu lífi. Yfirleitt þegar fólk hefur kynnst þessum sokkum fer það ekki í aðra sokka,“ segir Ragnheiður. „CEP sokkarnir fást í mörgum stærðum og gerðum, lágir, rétt upp fyrir ökkla, kálfahlífar og hnéháir sokkar, en einnig er hægt að fá þrýstingsermar. Sokkarnir koma líka í mismunandi þykkt, allt frá ultra light yfir í hefðbundna og svo göngusokka með merino ullar- þræði, sem eru hlýrri. Við erum einnig nýkomin með sokka sem eru hannaðir sérstak- lega fyrir endurheimt, svokallaða recovery sokka, sem tryggja að þú náir endurheimt hraðar en nokkru sinnum fyrr. Ásamt þrýstingseigin- leikum sokkanna er innrauður þráður í þeim sem örvar líkamann til að nýta eigin hita til að hraða endurheimt. Sameiginlega vinna þessir tveir eiginleikar að því að auka blóðflæði og skila súrefni til vöðva. Sokkana er mjög gott að nota til dæmis eftir strangar æfingar, langar göngur eða í flugið,“ segir Ragnheiður. Fyrirtækið Stoð Stoð er fyrirtæki á heilbrigðissviði og þar starfar fjöldi sérfræðinga. Fyrirtækið er í nánu samstarfi við fagfólk á heilbrigðissviði og rekur tvær verslanir. Fyrirtækið selur, þjónustar og framleiðir stoðtæki eins og spelkur, gervilimi, sérsmíð- aða skó, ásamt því að þjónusta og selja hjálpartæki eins og hjólastóla, sjúkrarúm, göngugrindur og aðrar stoðvörur. Stoð selur líka hlífar, innlegg, spelkur og íþróttavörur ásamt göngugreiningum og ferða- kæfisvefnsvélum. Verslun á Bíldshöfða í Reykjavík og í Trönuhrauni í Hafnarfirði „Hlutverk okkar er að bæta lífsgæði fólks og viðskiptavinahópurinn er breiður,“ segir Bryndís Ragna Hákonardóttir, deildarstjóri hjá Stoð. „Við veitum lausnir bæði fyrir fólk sem er á fullu í hreyfingu og fólk sem þarf á hjálpar- eða stoð- tækjum að halda vegna öldrunar, fötlunar eða annarra orsaka, með það að markmiði að bæta lífsgæði þess. Stoð er með tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Bryn- dís. „Annars vegar í Trönuhrauni 8 í Hafnarfirði, þar sem er meðal annars boðið upp á sérhæfða hjálpar- og stoðtækjaþjónustu, og hins vegar á Bíldshöfða 9 í Reykja- vík, þar sem göngugreiningar fara að mestu fram og hægt er að fá sérfræðiaðstoð frá sjúkraþjálfurum og íþróttafræðingum við val á vörum.“ n Stoð býður alla velkomna í versl- anir sínar á Bíldshöfðann eða í Trönuhraunið, þar sem hægt er að fá ráðgjöf við val á CEP sokkum eða öðrum vörum og býður Stoð 20% afslátt af CEP sokkunum út ágústmánuð. Tilvalið tækifæri fyrir alla þá sem eru að hlaupa, í göngum eða spila golf til að prófa þessa einstöku sokka. Ragnheiður Ásta Einars- dóttir, sjúkra- þjálfari hjá Stoð, Bryndís Ragna Hákonardóttir deildarstjóri og Snorri Bergþórs- son íþrótta- fræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR CEP sokkarnir fást í alls kyns stærðum og gerðum og þeir koma líka í mis- munandi þykkt, allt frá ultra light yfir í hefðbundna og svo göngusokka með merino ullarþræði, sem eru hlýrri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Margir finna fyrir því að þeir eru léttari á sér á hlaupum og þreytast síður, auk þess að endurheimt verður hraðari. 20% afsláttur í ágúst 2 kynningarblað A L LT 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.