Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 6
Persía mottur Parki býður upp á sérvaldar handhnýttar mottur og vandaðar vélofnar mottur úr hæsta gæðaflokki. Yfir 300 mottur til á lager og sérpantanir í boði. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!facebook.com/Parki.interiors thorgrimur@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur ógilt ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja manni um örorkulífeyri vegna þunglyndis og kvíða. Kærandinn í málinu hafði sótt um örorkulífeyri í nóvember árið 2020 en var synjað og hann aðeins talinn uppfylla skilyrði fyrir veit- ingu örorkustyrks. Samkvæmt læknisvottorði hafði maðurinn þjáðst af kvíða og þung- lyndi frá barnæsku sem hafði ágerst á síðari árum. Kvíði og félagsfælni mannsins hafði skert vinnufærni hans og læknir hafði úrskurðað hann óvinnufæran í ágúst 2020. Maðurinn hafði farið í sál- fræðitíma og sótt endurhæfingar- námskeið hjá Virk en undir lok námskeiðsins var talið að starfs- endurhæfing væri fullreynd og enn ekki raunhæft fyrir hann að fara aftur á almennan vinnumarkað. Eftir viðtal og skoðun hjá skoðun- arlækni hafnaði Tryggingastofnun umsókn mannsins um örorkulífeyri á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki skilyrði staðals um lífeyrinn, sem er að jafnaði aðeins veittur fólki með 75 prósent örorku. Til þess að teljast 75 prósent öryrki hefði maðurinn þurft að fá minnst tíu stig í örorkustaðli sem lýtur að andlegri færni en alls var andleg færnisskerðing hans metin til níu stiga. Úrskurðarnefndin ógilti ákvörð- un Tryggingastofnunar því hún taldi ósamræmi í mati skoðunar- læknis. Skoðunarlæknir hafði tekið fram að maðurinn væri snyrtilegur til fara í viðtalstíma og væri annt um útlit sitt. Hins vegar hafði komið fram í greinargerð að versnandi líðan mannsins hefði haft áhrif á umhirðu hans, meðal annars þann- ig að hann hætti að sinna hreyfingu og heimilisverkum. Þetta taldi úrskurðarnefnd benda til þess að manninum væri ekki annt um útlit sitt eða aðbúnað, sem gat skilað honum einu stigi í örorku- staðlinum um andlega færni. Úrskurðarnefnd vísaði málinu því aftur til nýrrar meðferðar hjá Tryggingastofnun. ■ Umhirða umsækjanda hafði úrslitaáhrif vegna örorkulífeyris Tryggingastofnun hafði synjað beiðni um örorkulífeyri þar sem skil- yrði örorkumats þóttu ekki uppfyllt. Aukinn fjöldi leitar lyfjameð- ferðar á Vogi vegna ópíóíða- fíknar. Dauðsföllum hefur ekki fjölgað vegna lyfjaeitr- unar þrátt fyrir aukna neyslu. birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Aukning var í inn- lögnum einstaklinga með greinda ópíóíðafíkn á Vog á síðasta ári miðað við árin á undan. Árið 2020 var hlutfall sjúklinga á Vogi sem notuðu ópíóíða 25,1 prósent miðað við rétt rúm tíu prósent árið 2010 og 17,6 prósent árið 2015. Hlutfall sjúklinga á Vogi í fyrra með greinda ópíóíðafíkn var tæp- lega 16 prósent sem er 2,5 prósenta aukning miðað við 2019 og sex pró- senta aukning miðað við árið 2010. Valgerður Rúnarsdóttir, yfir- læknir á Vogi, segir ópíóíðafíkn afar hættulega, ofskammtar af slíkum efnum geti valdið dauðsföllum. „Það eru miklu meiri líkur á að þú deyir af ofskammti af þessum lyfjum heldur en nokkrum öðrum lyfjum,“ segir Valgerður. Ópíóíðalyf eru til dæmis morfín- lyf, oxykontín og parkódín. Segir Valgerður þau hættulegust séu þau reykt eða sprautað í æð. Mest aukn- ing hafi verið á neyslu þeirra í æð. Á síðasta ári fjölgaði dauðsföllum vegna of stórra lyfjaskammta um 30 prósent í Bandaríkjunum og um sex prósent í Skotlandi. Þrátt fyrir aukna neyslu ópíóíðalyfja hérlendis virðist dauðsföllum af völdum þeirra ekki hafa fjölgað samkvæmt upplýsing- um af vef Embættis landlæknis. Á síðasta ári létust 37 einstakling- ar vegna lyfjaeitrunar hér á landi. Meðalfjöldi einstaklinga sem látast af þeim orsökum árlega síðustu fimm ár er 32,2 einstaklingar. Árið 2019 voru þeir 30 talsins og árið 2018 voru þeir 39. Valgerður segir góðar fréttir að dauðsföllum af völdum lyfjaeitrunar hafi ekki fjölgað hér ört líkt og gerst hafi í öðrum löndum, þessar tölur telji þó með allar lyfjaeitranir, ekki einungis af völdum ópíóíða. Valgerður segir gott aðgengi að meðferðum og velferðarkerfinu hér á landi geta verið skýringu á að dauðsföllin séu ekki f leiri en raun beri vitni. „Staðreyndin er sú að meðferð- irnar geta bjargað lífum og það hefur orðið aukning á því, það hefur orðið mikil fjölgun í lyfjameðferðinni við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ,“ segir hún. Meðferðir sem veittar eru við ópíóíðafíkn á Vogi eru viðhaldsmeð- ferðir. Þar fá sjúklingar lyfjameð- ferð við fíkninni. Notuð eru lyfin Suboxone, Buvidal og Methadon sem draga úr fíkn og hættulegum afleiðingum af neyslu ópíóíða. „Lyfin eru notuð til að meðhöndla fíknina en koma ekki í staðinn fyrir vímuefni,“ útskýrir Valgerður. „Þessi lyf hafa verið með okkur í áratugi og eru einnig notuð í öðrum löndum svo það er komin löng reynsla á þau,“ bætir Valgerður við. „Það eru ekki til svona lyf við ann- arri fíkn eins og til dæmis amfeta- míni, en fólk fær þessi lyf reglulega og við höldum utan um meðferðina hjá okkur,“ segir Valgerður Rúnars- dóttir. ■ Dauðsföllum hefur ekki fjölgað í takt við aukna neyslu ópíóíða hérlendis Árið 2020 var hlutfall sjúklinga á Vogi sem notuðu ópíóíða 25,1 prósent miðað við rétt rúm tíu prósent árið 2010 og 17,6 prósent árið 2015. Yfirlæknir á Vogi segir ópíóíðafíkn afar hættulega. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Það eru miklu meiri líkur á að þú deyir af ofskammti af þessum lyfjum heldur en nokkr- um öðrum lyfjum. Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi. hjorvaro@frettabladid.is SPÁNN Kólumbíska söngkonan Shakira hefur verið til rannsóknar hjá spænskum skattyfirvöldum síðustu þrjú árin en talið er að hún hafi vantalið fram 14,5 milljónir evra í skattframtölum sínum. Shakira gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm verði hún dæmd sek um ásakanir skattyfirvalda. Þessi vinsæla söngkona hefur verið í samningaviðræðum við skattyfirvöld á Spáni og gæti náð að semja sig frá réttarhöldum sam- kvæmt frétt El País um málið. Kæra skattyfirvalda er komin inn á borð saksóknara sem ákveður á næstu dögum hvort málið fari fyrir spænska dómstóla. Saksóknara- embættið telur að nægar sannanir séu fyrir hendi til þess að sýna fram á að Shakira hafi falið tekjur sínar í gegnum flókinn vef fyrirtækja í skattaparadísum. Þannig hafi Shakira hætt að borga skatta á Spáni á árunum 2012 til 2014 þrátt fyrir að henni hafi borið skylda til þess þar sem hún var með lögheimili á spænskri grundu. Shakira heldur því fram að á fyrrgreindu tímabili hafi hún verið búsett á Bahamaeyjum og af þeim sökum hafi hún ekki átt að borga skatta í spænskan ríkissjóð. ■ Mál Shakiru gæti farið fyrir dóm Söngkonan Shakira. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 6 Fréttir 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.