Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 2

Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 2
Yfir svífur mökkur úr Geldingadölum WWW.PLUSFERDIR.IS | INFO@PLUSFERDIR.IS Keflavík - Tenerife, báðar leiðir Keflavík - Tenerife, báðar leiðir Keflavík - Malaga, báðar leiðir Keflavík - Alicante, báðar leiðir 30. júlí - 04. ágúst Verð frá 39.900 kr. 04. - 11. ágúst Verð frá 49.900 kr. 06. - 17. ágúst Verð frá 39.900 kr. 05. - 12. ágúst Verð frá 39.900 kr. Birt með fyrirvara um prentvillur, stafabrengl og önnnur „úps“ Innifalið: Flug, skattar og 8 kg. handfarangur. BÓKAÐ U Á PL USFERD IR.ISFlugPlús! Aðeins fjórðungur lands- manna hefur hvorki verið bitinn né þekkir fólk sem hefur verið bitið af lúsmýi. Skordýrafræðingur segir við- brögð við biti virðast minnka ef fólk er bitið oftar. adalheidur@frettabladid.is thorgrimur@frettabladid.is SKORDÝR Þrír af hverjum tíu Íslend- ingum hafa verið bitnir af lúsmýi hér á landi á síðustu tólf mánuðum samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið. Fimmtíu og sjö prósent svarenda sögðust þekkja einhvern sem hefur verið bitinn. Aðeins fjórðungur hefur hvorki verið bitinn né þekkir einstakling sem hefur verið bitinn. Konur eru ívið líklegri en karlar til að verða fyrir mýinu og bit verða helst hjá ungu fólki og heldur dregur úr líkum á biti eftir því sem fólk eldist. Þannig hafa 35 prósent fólks á aldrinum 18 til 24 ára verið bitin af lúsmýi en aðeins átján prósent yfir 65 ára aldri. Ekki er mikill munur á íbúum höfuðborgarsvæðis og landsbyggð- ar og fólk af öllum stigum þjóð- félagsins verður jafnt fyrir þessari plágu. Þá leggst lúsmý jafnt á starfsmenn hins opinbera og þá sem starfa í einkageiranum. Hins vegar benda niðurstöðurnar til að fólk sem starfar í þriðja geiranum verði frek- ar fyrir lúsmýinu en 45 prósent þess sögðust hafa verið bitin af lúsmýi á undanförnum 12 mánuðum. Til samanburðar höfðu innan við þrjátíu prósent starfsmanna hins opinbera og einkageirans orðið fyrir biti. „Líkurnar á biti eru nú alltaf jafn- miklar hvernig sem staðan er,“ segir skordýrafræðingurinn Gísli Már Gíslason. „Mér sýnist þó á sjálfum mér að viðbrögðin fari minnkandi. Ég hef verið bitinn frá því að menn átt- uðu sig á því hvaða padda þetta var sem var að bíta fólk á gróðursælum sumarbústaðareitum og hef fundið að því oftar sem ég er bitinn, þeim mun minni viðbrögð sýnir líkam- inn. En ég er bitinn eftir sem áður.“ Gísli segir þetta í takt við ein- kenni annarra mýflugnabita. „Þetta er eins með aðrar mýteg- undir eins og moskítóættina, bitmýið eða mývarginn um allt land. Þegar fólk er bitið aftur af því virðast viðbrögðin verða minni. Í nágrannalöndunum fær fólk heldur yfirleitt ekki þessi geysilegu útbrot sem fólk hér fær þegar það kynnist lúsmýinu í fyrsta sinn. En þetta er auðvitað einstaklingsbundið.“ Könnunin var send á könnunar- hóp Prósents og svartími var frá 15. til 23. júlí. Í hópnum voru 2.600 einstaklingar á Íslandi, átján ára og eldri, og voru svör þeirra vegin eftir kyni, aldri og búsetu. Svarhlutfall var 52 prósent. n Þrír af hverjum tíu á Íslandi hafa verið bitnir af lúsmýi Gísli Már Gíslason skor- dýrafræðingur. ✿ Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, verið bit- inn af lúsmýi á Íslandi á síðustu tólf mánuðum? n Já, þekki einstakling sem hefur verið bitinn n Já, hef sjálf/ur verið bitinn n Nei 57% 29,6% 25,6% hjorvaro@frettabladid.is VEÐUR Þrátt fyrir að öllum stórum útihátíðum sem halda átti um komandi verslunarmannahelgi hafi verið aflýst er samt sem áður ferða- hugur í landsmönnum. Vilji fólk komast í sól er best að heita förinni norður í land. „Það verður sólríkast fyrir norðan um komandi helgi en það verður ekki mikill hitamunur á milli lands- hluta. Heilt yfir landið erum við að spá um 10 til 15 gráða hita um helgina og að það verði milt og gott veður á flestum landsvæðum. Það er ekki mikil úrkoma í kort- unum en það gæti þó verið að það verði væta einhverja dagana. Úrkoman ætti hins vegar að verða minnst fyrir norðan,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, um veðurspána fyrir verslunarmannahelgina. „Það er helst við suðurströndina þar sem veðurspáin sker sig úr frá öðrum landshlutum en þar verður þokuloft ef spá okkar gengur upp. Annars staðar á landinu ætti fólk að geta notið góðs veðurs í úti- legum eða á þeim tjaldsvæðum þar sem það kýs að vera,“ segir veður- fræðingurinn enn fremur. n Sólríkast á Norðurlandi Lúsmýið byrjaði að herja hressilega á Íslendinga með bitum sínum sumarið 2015 og hefur unnt sér lítillar hvíldar síðan. MYND/AÐSEND Tjaldsvæðið á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Mökkurinn úr gosinu í Geldingadölum var vel sjáanlegur frá höfuðborgarsvæðinu í gær. Óróinn í gosinu hefur rénað og aukist að nýju á víxl undanfarna viku en spár um endalok gossins hafa hingað til ekki ræst. Í gær spjó eldstöðin enn úr sér hrauni með tilheyrandi gösum sem stigu til himins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI gar@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Dagsektum sem lagðar voru á Vöku vegna starf- semi á Leirvogstungumelum verður ekki haggað, segir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Sumarið 2018 kom í ljós að á svæði Vöku á Leirvogstungumelum væri fjöldi númerslausra bíla og að þar væri óþrifalegt. Ekki hefði verið sótt um starfsleyfi og engar meng- unarvarnir til staðar. Gefinn var eins mánaðar frestur til hreinsunar. Umsókn fyrirtækisins um starfs- leyfi var hafnað í júni 2020 og því enn veittur frestur til að hreinsunar Þrátt fyrir nokkra tiltekt hreinsaði Vaka ekki svæðið að fullu og ákvað heilbrigðisnefnd í apríl 2021 að leggja á 20 þúsund króna dagsektir þar til allur úrgangur væri á braut. Vaka sagðist stöðugt vera að losa efni af svæðinu og mótmælti. Úrskurðarnefndin sagði Vöku hafa „verið veittir þrír frestir til að ljúka hreinsun svæðisins og enginn þeirra staðist“, eins og segir í niður- stöðu nefndarinnar. n Dagsektir á Vöku standa óhaggaðar Hjá Vöku í Laugarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR 2 Fréttir 29. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.