Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 4

Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 4
Ef við ætlum að bólu- setja heilbrigð börn þá verður þetta að vera öruggt. Valtýr Stefáns- son Thors, barnasmitsjúk- dómalæknir. svavamarin@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Ekki hefur verið tekin formleg skýrsla af unglings- stúlkum sem gistu í Laugardalshöll um helgina meðan fótboltamótið Rey Cup stóð yfir. Stúlkurnar komust sjálfar á snoðir um að eftirlitsmyndavélar tóku stöðugt upp í svefnsal þeirra er þær sáu svefnsal sinn á tölvuskjá sem stóð á vinnuborði í afgreiðslu. Að sögn móður einnar þeirra var stúlkunum brugðið enda höfðu þær oft haft fataskipti og verið fáklædd- ar og jafnvel naktar í salnum. „Við töluðum aðeins við þær í upphafi, en það virðist ekkert sak- næmt hafa átt sér stað og bara um mannleg mistök að ræða,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglu- fulltrúi hjá Lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, þar sem málið er til rannsóknar. Aðspurður um upptökurnar og hve margir hafi aðgang að þeim segir Guðmundur að þær séu ekki aðgengilegar í gegnum netið. „Við ætlum að eyða öllum upptökunum en eiga afrit ef eitthvað kemur upp,“ segir hann. Rannsókn málsins er enn ólokið. Persónuvernd hefur ekki borist formleg kvörtun vegna Laugardals- hallarmálsins að sögn Helgu Sig- ríðar Þórhallsdóttur, staðgengils forstjóra. Stofnunin getur hins vegar tekið mál til skoðunar að eigin frumkvæði. „Við erum ekki búin að setja neitt af stað ennþá og erum svona aðeins að hinkra og sjá hvað kemur út úr rannsókn lögreglu,“ segir Helga Sig- ríður. Persónuvernd tekur alla jafna ekki mál til skoðunar á sama tíma og þau eru til opinberrar rann- sóknar annars staðar. ■ Lögregla eyðir upptökum úr svefnsal stúlkna í Laugardalshöll Stúlkurnar afjhúpuðu kerfi með eftirlitsmyndavélum. MYND/AÐSEND K Y N N U M N ÝJ A N J E E P® A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI FRÁ 6.399.000 KR.* N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S • STÆRRI VÉL 240 HÖ • 360° MYNDAVÉL • LÁGT DRIF • LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ • SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA • FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR N Ý H Ö N N U N N Ý I N N R É T T I N G N Ý TÆ K N I N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R * S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 5 6 2 . 0 0 0 ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ ÁDRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID NÚ FÁANLEGUR Í TRAILHA WK ÚTFÆRSLU Börn smitast síður af Covid- 19 en fullorðnir og verða sjaldnar alvarlega veik. Lítið er vitað um langvarandi áhrif Covid-sýkinga á börn sem stendur. Barnasmit- sjúkdómalæknir telur full- snemmt að byrja að bólusetja hraust börn áður en meiri rannsóknir liggja fyrir. urduryrr@frettabladid.is COVID-19 Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir telur ekki liggja á að bólusetja yngri börn gegn Covid-19 sem stendur. Hann segir börn almennt veikjast minna en fullorðnir og smitast síður. „Ef við horfum á faraldurinn hér á Íslandi þá hafa núna um og yfir átta hundruð börn smitast af Covid og ekkert þeirra veikst alvarlega,“ segir Valtýr og bendir á að þeim sé veitt mikil eftirfylgni á Covid- göngudeild Barnaspítala Hringsins. Þá virðist Covid-sýking hafa lítil áhrif á ungbörn og almennt koma þau mjög vel út úr svoleiðis. Ein- hver dæmi eru erlendis um ung- börn sem smitast við fæðingu eða jafnvel í móðurkviði og vegnar vel eftir sýkingu. Búið er að bólusetja börn niður í fimmtán ára aldur en samkvæmt Valtý er það í þeim aldurshópi sem einkenni líkjast helst því sem full- orðnir glíma við. Einhver börn sem hafa undirliggjandi sjúkdóma eða eru í sérstökum áhættuhóp hafa verið bólusett niður í tólf ára aldur. Ekki er til markaðsleyfi fyrir bóluefni barna yngri en tólf ára en einhver fyrirtæki hafa byrjað að sækjast eftir því og eru að gera rannsóknir með bóluefni fyrir börn niður í tveggja ára aldur og jafnvel yngri. „Persónulega og út frá þeim gögnum sem við höfum finnst mér ekkert liggja á að bólusetja yngri börn,“ segir Valtýr. Hins vegar segir hann að það væri gagnlegt að geta bólusett öll börn til að hjálpa til við að halda faraldrinum fjarri. Þrátt fyrir að ekkert gefi til kynna hingað til að bóluefni virki illa á börn eða valdi aukaverkunum sem ekki hafa sést hjá fullorðnum telur Valtýr farsælla að bíða nokkra mán- uði eftir meiri gögnum. „Ef við ætlum að bólusetja heil- brigð börn þá verður þetta að vera öruggt,“ segir Valtýr. Barnalæknar hjá Barnaspítala Hringsins eru nú að vinna að rann- sókn um það hvort Covid-sýkingar hafi langvarandi áhrif á börn. Val- týr segir það ekki enn vera vel kort- lagt hjá börnum þó að það hafi eitt- hvað verið skoðað. „Ef það kemur í ljós að umtals- verður hluti barna sem hafa greinst með Covid er með langvarandi einkenni þá væri það lóð á vogar- skálar þess að hefja bólusetningu hjá hraustum börnum,“ segir hann en vonast er til þess að búið verði að safna öllum gögnum í lok ágúst. Stærra lýðheilsuvandamálið er að mati Valtýs andleg og sálræn áhrif á börn og unglinga eftir mikla röskun á eðlilegu skóla- og frístundastarfi síðasta eina og hálfa árið. Hann segir að börn og unglingar hafi mörg átt erfiðara með að sinna námi sínu og að einhverjir hafi þurft að hætta í menntaskóla. „Ég held það ætti að vera eitt af helstu markmiðunum að halda skólunum opnum og halda líf i barna og unglinga eins eðlilegu og hægt er til að tryggja velferð þeirra. Allir geta verið sammála um að það sé eitt það mikilvægasta sem við getum gert,“ segir Valtýr. ■ Telur óþarft að bólusetja börn í flýti Yfir átta hundruð börn á Íslandi hafa smitast af Covid en ekkert þeirra hefur veikst alvarlega, FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR kristinnpall@frettabladid.is COVID-19 Íþróttabandalag Reykja- víkur sem sér um Reykjavíkurmara- þonið fundar nú daglega um mögu- legar sviðsmyndir maraþonsins sem er á dagskrá 21. ágúst næstkomandi. „Þessu hefur alltaf verið hólfaskipt eftir vegalengdum, núna erum við með öðruvísi sviðsmynd,“ segir Silja Úlfarsdóttir, upplýsingafulltrúi ÍBR. Hlaupið er á dagskrá eftir að núverandi reglugerð um hertar samkomutakmarkanir rennur út en þar sem nýjasta bylgja kóróna veiru- faraldursins sýnist í veldisvexti er erfitt að sjá að samkomutakmörk- unum verði aflétt í tæka tíð. Svo gæti farið að það þurfi annað árið í röð að aflýsa hlaupinu vegna heimsfaraldursins. Undanfarin ár hafa á bilinu fjórtán til fimmtán þúsund hlauparar tekið þátt í hlaup- inu á ári hverju en metfjöldi tók þátt árið 2014 þegar 15.552 hlupu. „Það eru stöðug fundahöld um að skoða möguleikana sem eru til staðar eins og í fyrra þegar við sett- um af stað átak um að hlaupa eigin leið. Um leið skiptir góðgerðarsöfn- unin sem á sér stað í hlaupinu okkur miklu máli, að hún gangi eftir,“ segir Silja um áheitasöfnunina sem hefur vaxið ár frá ári frá því hún byrjaði 2007. Síðast er hlaupið fór fram söfnuðust 167,4 milljónir króna sem dreifðust á 181 góðgerðarfélag. ■ Stíf fundahöld um maraþonið í ágúst Þétt hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 4 Fréttir 29. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.