Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 6
AÐEINS 3.990 KR./MÁN. Tryggðu þér áskrift á stod2.is Vegir liggja til allra átta um verslunarmannahelgina hjá landanum þrátt fyrir hertar sóttvarnaaðgerðir. svavamarin@frettabladid.is SAMFÉLAG Áætlanir margra lands­ manna sem ætluðu sér á útihátíð um verslunarmannahelgina eru í uppnámi eftir að samkomutak­ markanir voru hertar. Öllum úti­ hátíðum hefur verið af lýst eða frestað og fjöldatakmarkanir eru á tjaldsvæðum landsins. En hvað tekur fólk þá til bragðs? Blaðamaður og ljósmyndari Frétta­ blaðsins hittu fólk á förnum vegi og spurðu hvernig verja ætti versl­ unarmannahelginni, sem segja má að hafi verið aflýst í hefðbubndinni mynd annað árið í röð. n Stefna út og suður Gabríela Helgudóttir Gabríela ver helginni með átta mánaða syni sínum. „Við ætlum að hafa það rólegt í góða veðrinu. Pabbi hans er erlendis og við verðum bara tvö í bænum.“ Birna Blöndal og Kári Týr „Nei, ekkert plan, við eigum ekkert líf, mæðginin.“ Sirrý og Birna Sirrý og Birna segjast aðspurðar ekki hafa átt miða á Þjóð- hátíð. „Nei, við getum orðið fullar hvar sem er,“ segja þær. Önnur þeirra ætlar norður í Ásbyrgi um helgina en hin þarf að vera í bænum á laugardaginn vegna vinnu. Haukur og Svandís „Við erum með lítið barn og ætlum upp í sveit með fjöl- skyldunni. Við ætlum annað hvort í Vík í Mýrdal eða Ástungu rétt hjá Árnesi, eða bara bæði.“ Guðmundur Hilmarsson „Við förum tvenn hjón að gista á hótelinu á Flúðum, njóta þess að vera til og spila golf, fá gott að drekka og borða. Vonandi verður svona gott veður áfram.“ HELGIN FRAM UNDAN FRÉTTABLAÐIÐ hjorvaro@frettabladid.is FERÐALÖG Þar sem stóru útihátíð­ um landsins er aflýst um komandi helgi má búast við að aðsókn verði töluverð á tjaldsvæðum. Rakel Anna Boulter, landvörður í Ásbyrgi, segir að gildandi sótt­ varnareglur takmarki það hversu mörgum gestum mögulegt verður að taka við á svæðinu. Kippur hafi verið í bókunum á svæðinu í gær og útlit sé fyrir að fullt verði um helgina líkt og hefur raun­ ar verið um flestar helgar í sumar. „Aðsóknin hefur verið góð hjá okkur í allt sumar en við höfum fundið fyrir því þegar nær dregur helginni að bókunum hefur fjölgað. Þar sem gildandi sóttvarnareglur takmarka þann fjölda sem við getum tekið á móti þá býst ég við því að það verði fullt hjá okkur um komandi helgi,“ segir Rakel Anna. Af þessum sökum segist Rakel Anna gera ráð fyrir að þurfa að vísa fólki frá svæðinu vegna plássleysis. Það hafi þurft að gera reglulega í sumar. „Það er alltaf jafn leiðinlegt. Það er hins vegar ekki orðið fullt eins og sakir standa. Þá hefur vegurinn um Vesturdal verið opnaður eftir fram­ kvæmdir það sem af er sumri en ein­ ungis er opið fyrir fólk sem hyggst tjalda hjá okkur,“ segir Rakel Anna. Hildur Þóra Magnúsdóttir, sem sér um tjaldsvæðið í Varmahlíð, tekur í sama streng. „Bókunum hefur fjölgað hægt og rólega eftir því sem liðið hefur á vikuna og ég býst við að það verði fjölmennt á svæðinu um helgina. Það eru hins vegar enn laus pláss og allir velkomnir,“ segir Hildur Þóra. „Lögreglan hafði samband við mig í gær og minnti mig á mikilvægi þess að virða gildandi sóttvarna­ reglur og það munum við að sjálf­ sögðu gera. Við erum bara spennt að taka á móti þeim sem eiga leið um svæðið,“ segir Hildur. n Búast við að tjaldsvæði verði full í sólinni sem verður nyrðra Rakel Anna Boulter, land- vörður í Ásbyrgi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.