Fréttablaðið - 29.07.2021, Side 8
Ekki kemur á óvart að þessara
tveggja dala sé getið í þessum sögum,
enda hömrum girtir og einkar til-
komumiklir.
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 29. júlí 2021 FIMMTUDAGUR
Við sunnanverðan Arnarfjörð eru stuttir en brattir
Ketil dalir sem teygja sig frá Bíldudal norðvestur að
Kópanesi. Stærstur og þekktastur er Selárdalur en síðan
eru nokkrir minni dalir eins og Hringsdalur og Aust-
mannsdalur sem báðir koma fyrir í aldagömlum munn-
mælasögum. Ekki kemur á óvart að þessara tveggja dala
sé getið í þessum sögum, enda hömrum girtir og einkar
tilkomumiklir. Í Hrings sögu segir frá Hring sem nam
land í Hringsdal en hann neyddist til að f lýja Noreg
vegna vígaferla. Elti hann Austmaður hingað til lands
en svo voru Norðmenn títt nefndir í fornsögum. Vildi
hann hefna frænda síns sem Hringur hafði vegið og nam
land í næsta dal við Hringsdal, sem síðar fékk nafnið
Austmannsdalur. Sendi hann flugumenn til að koma
Hring fyrir kattarnef en sá síðarnefndi varðist vel og ku
hafa hryggbrotið alla flugumennina á steini í Hringsdal
sem kallast Víghella. Austmaðurinn gafst þó ekki upp
og þegar húskarlar Hrings voru að heiman sendi hann
vígamenn að nýju í Hringsdal. Varðist Hringur vel og
náði að fella marga þeirra áður en hann féll sjálfur. Var
hann síðan heygður í kumli utarlega í Hringsdal. Aust-
maðurinn var hins vegar heygður að eigin ósk á fjalls-
núpi sem nefnist Haugshorn en ofan af því mátti sjá yfir
alla landareign hans.
Það er gaman að heimsækja Austmannsdal en þar var
búið fram á miðja síðustu öld. Ekinn er Ketildalavegur
frá Bíldudal í áttina að Selárdal. Frá veginum er stutt
ganga niður að uppistandandi rústum gamla bæjarins
en skammt frá þeim eru fallegar grjóthleðslur. Frá veg-
inum má einnig ganga upp á Haugshorn eftir grösugum
Austmannsdal. Fylgt er snoturri fossaröð og síðan bugð-
óttri ánni inn dalinn þar sem haldið er upp brekkurnar
á vinstri hönd. Leiðin er óstikuð en fylgja má misgreini-
legum kindagötum. Síðan tekur við fjallsrani sem fylgt
er í norður út á nef Haugshorns. Þarna býðst frábært
útsýni yfir mynni Ketildala og allan Austmannsdal
en handan Arnarfjarðar blasa síðan við Lokinhamrar,
hæsta fjall Vestfjarða, Kaldbakur (999 m), Tjaldanesfjöll
og innar í firðinum Hornatær. Þetta er þægileg 3 klukku-
stunda ganga sem er flestum fær. Gengin er sama leið til
baka en eftir gönguna er tilvalið að heimsækja listasafn
Samúels Jónssonar í Selárdal en þar eru útilistaverk sem
höfða bæði til barna og fullorðinna. n
Á slóðum
Austmanns
Í Austmanns-
dal er sérlega
falleg fossaröð
sem hægt er
að fylgja inn dal-
inn. Haugshorn
til er vinstri en
þar segir sagan
að Austmaður
sem dalurinn er
kenndur við sé
heygður.
MYND/TG
Af Haugshorni
er frábært út-
sýni yfir Arnar-
fjörð og mynni
Ketildala.
MYND/TG
Rústir gamla
bæjarins í
Austmannsdal
eru mikið fyrir
augað og frábær
mótíf.
MYND/ ÓMB