Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 18
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
María Oddný Sigurðar-
dóttir er nýlega útskrifuð úr
diplómanámi hjá Makeup
Studio Hörpu Kára og eins
og hjá mörgum kviknaði
áhuginn á unglingsárunum.
„Ég byrjaði að hafa meiri og
meiri áhuga á förðun þegar ég
var unglingur og elskaði að skoða
kennslumyndbönd á netinu og
prufa mismunandi „lúkk“. Síðan
þá hefur áhuginn bara aukist,“
segir María.
María Oddný er enginn nýgræð-
ingur í förðun heldur er hún
einnig áberandi í tónlistarsen-
unni og kemur fram með fjölda
hljómsveita. „Ég lærði í skapandi
tónlistarmiðlun hjá Listahá-
skólanum en svo er ég líka lærður
klassískur píanisti. Núna er ég að
læra klassískan söng. Ég syng með
kabaretthópnum Túttífrúttunum
og svo syng ég bakraddir hjá
hljómsveitinni Flott.
Hljómsveitin átti að koma fram
á Menningarnótt en viðburð-
inum var af lýst út af faraldrinum.
Einnig eigum við að koma fram á
Airwaves og ég vona svo sannar-
lega að það verði af hátíðinni í ár.
Þá hef ég verið að koma fram með
konsept-gjörningahljómsveitinni
Holdgervlum og svo er ég að vinna
að sólóefni með Friðriki Mar-
grétar-Guðmundssyni. Eins og er
höfum við ekki gefið neitt út.“
Þeim sem vilja fylgjast með tón-
listarferli Maríu er bent á að hún
er með Instagramsíðuna @ maria-
oddny.
„Sem tónlistarmaður kem ég
mikið fram og þá farða ég mig sjálf
fyrir sviðið. Reyndar hef ég ekki
verið að koma mikið fram síðasta
árið út af faraldrinum, en mér
finnst mjög gaman að farða fyrir
svið. Svona dagsdaglega fer það
pínu eftir stuðinu hvernig ég farða
mig. Oftast er ég með frekar létta
förðun yfir daginn og stundum
finnst mér líka bara gott að vera
ekki með neitt framan í mér.“
En hvað er það sem heillar þig
við förðun?
„Mér finnst svo áhugavert að
skoða hvernig förðun er notuð á
mismunandi hátt. Upprunalega
var það kannski meira tengt því
að fela eitthvað sem ég var ekki
sátt við, unglingabólur og þannig.
Síðan þá hef ég meira hugsað þetta
sem ákveðið listform. Það er hægt
að nota förðun á svo fjölbreyttan
hátt, bæði til að draga fram allt það
fallega við okkur sem við viljum
kannski ýkja og síðan er hægt
að gera eitthvað allt öðruvísi og
abstrakt.“
Íslendingar með puttann á förðunarpúlsinum
María Oddný
hefur lengi haft
áhuga á förðun
og sem tón-
listarkona hefur
hún gaman af
því að farða sig
fyrir sviðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓTTAR
Krefjandi og skemmtilegt nám
María útskrifaðist úr náminu í
júní síðastliðnum og var farið
mjög ítarlega í ýmiss konar
förðunartegundir. „Það var kennt
fjórum sinnum í viku í fjóra tíma
á dag. Þetta var krefjandi tímabil
þar sem ég var líka að vinna og
er einstæð móðir, en það var svo
ótrúlega gaman að ég fann varla
fyrir því. Við fórum í grunnatriði
húðumhirðu og förðunar. Síðan
var farið út í meira af ákveðnum
gerðum af förðunum. Að lokum
voru þrjú mismunandi lokaverk-
efni sem voru tískuförðun, „bjútí“
förðun og „no makeup makeup“
förðun.“
Glóandi húð er lykilatriði
María segist hafa mestan áhuga
á að farða fyrir myndatökur í
tískutímarit og tískusýningar.
„Mér þykir líka skemmtilegt
að gera hefðbundnari „beauty“
farðanir. Svo finnst mér spenn-
andi að hafa eitthvert „konsept“
í förðun, til dæmis að hafa sterka
liti, hafa sömu liti í förðuninni
og í fötunum eða eitthvað sem er
í umhverfinu. Þetta er kannski
meira í tískuförðunum, en mér
finnst almennt mjög gaman að
pæla í litasamsetningum og fók-
usera oft á augun og reyni að velja
augnskugga sem draga fram augn-
litinn. Svo finnst mér förðun með
fallegri húðvinnu algjört lykilat-
riði og er ég mjög hrifin af svona
„dewy“ húð með fallegum roða í
kinnunum. Mér finnst líka mjög
falleg förðun þar sem fókuserað
er á eitthvað eitt, til dæmis sterk
augu, sterkar varir eða bara til
dæmis mikinn lit í kinnunum.“
En hvernig er förðunartískan í
sumar?
„Almennt finnst mér förðunin
léttari en hún hefur verið, ekki
jafn mikið af þungum skyggingum
og meira um að húðin sé „dewy“,
glóandi og fersk. Síðan eru graf-
ískir og óhefðbundnir eyelinerar í
skærum litum mjög vinsælir núna.
En mér finnst fókusinn almennt
vera annaðhvort á augun eða
varirnar; svona „minna er meira“
fílingur. Ég hugsa líka alltaf um
tilefnið þegar ég er að farða. Ef þú
ert að fara í brúðarförðun, þá er
kannski betri ákvörðun að hafa
eitthvað meira látlaust og hefð-
bundið heldur en að fara út í eitt-
hvað sem er í tísku sem gæti svo
mögulega elst illa á myndum.“
En haustið, hvernig lítur það út?
„Það er mjög mikið alls konar í
gangi núna og stundum er frekar
erfitt að setja alveg fingurinn
á það sem er í tísku. Ég skoða
nokkrar Instagram-síður reglu-
lega og sé mikið af mjög skapandi
augnförðun með sterkum litum.
En svo eru þessar klassísku
farðanir ennþá á sínum stað eins
og „cat eye-liner“ og rauðar varir.
Augabrúnirnar eru yfirleitt frekar
náttúrulegar en það er líka vinsælt
að greiða þær upp með geli eða
sápu. Svo finnst mér mjög gaman
að skoða hvað tískuhúsin eru að
gera, en það er mjög fjölbreytt
eftir því hvernig fatalínurnar eru
hjá hverjum og einum. Ég sótti til
dæmis innblástur til Dior fyrir
lokaverkefnið mitt í tískuförðun.“
Amma með grafískan eyeliner
María segir að Íslendingar séu með
puttann á púlsinum í því sem er
að gerast úti í heimi í förðun. „Mér
finnst Íslendingar vera yfirleitt
frekar framarlega hvað varðar
Instagram og aðra samfélagsmiðla.
Mér finnst til dæmis ótrúlega
gaman að fylgjast með Emblu
Wigum á Instagram og TikTok.
Hún gerir ótrúlega skapandi
farðanir og er með mjög marga
fylgjendur. Þar sem vörumerki
Íslendinga er náttúran hefur nátt-
úruleg förðun verið mjög vinsæl í
auglýsingaherferðum. En það sem
ég sé til dæmis frá kennurunum
mínum á Instagram er bara svipað
og maður sér annars staðar.
Það er líka mismunandi hversu
hugrakkir Íslendingar eru með
förðunina og það fer bara eftir því
hvaða hóp þú ert að horfa á. Þú
ert kannski ekki að fara sjá ömmu
þína með grafískan eyeliner eða
skærappelsínugulan varalit. En til
dæmis í tónlistar- og listasenunni
eru margir að gera mjög skemmti-
lega hluti. Mér finnst ég almennt
sjá mikið af alls konar förðun hér
heima en það fer mest eftir því
hvar maður er staddur hvers konar
förðun maður sér.“ Hægt er að
fylgjast með förðunarferli Maríu
á Instagramsíðunni @bymaria-
oddny. ■
Glóandi förðun er vinsæl í sumar. MYND/ANNA KRISTÍN María vinnur gjarnan með liti í förðun. MYND/SARA BJÖRK
Mér finnst
fókusinn
almennt
vera ann-
aðhvort á
augun eða
varirnar;
svona
„minna er
meira“
fílingur.
6 kynningarblað A L LT 29. júlí 2021 FIMMTUDAGUR