Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 15.09.1944, Síða 9
STARFSMANNABLAÐIÐ
7
Reykjavík föstudaginn 1. sept. 1944
gerir svofellda ályktun um launamái
starfsmanna ríkis og bæja.
Gildandi launalög í landinu eru úrelt
og ófullnægjandi og ósamræmi og órétt-
læti í launagreiðslum langt úr hófi.
Laun opinberra starfsmann hafa
verið uppbætt með 30% og 25% á sama
tíma og grunnkaup verkafólks og
iðnaðarmanna í Reykjavík hefir hækkað
um 42% til 120%.
Ríkisstarfsmenn hafa dregizt langt
aftur úr, vegna þess einkum, að setið er
á rétti þeirra í skjóli ránglátrar laga-
setningar, sama er um bæjastarfsmenn
þar eð bæjarstjórnir flestar haga launa-
greiðslum í samræmi við ríkið.
Fyrir því heitir fundurinn á Alþingi
og ríkisstjórn að koma fastri skipan
á launagreiðslur ríkis og ríkisstofnana
með því að setja launalög, er taki gildi
um næstu áramót og ákveði ríksstarfs-
mönnum réttlát laun innbyrðis og í
samanburði við aðra launþega.“
II. Um Lög nr. 33 frá 1915.
(Um lög þessi birtist á öðrum stað
hér í blaðinu grein eftir Lárus Sigur-
björnsson, rithöfund, formann Starfs-
mannafélags Reykjavíkurbæjar en það
félag er stærsta Bandalagsfélagið nú).
,,AImennur fundur haldinn að tilhlut-
un B. S. R. B. í Listamannaskálanum í
Reykjavík föstudaginn 1. sept. 1944
lýsir yfir vanþóknun sinni á ákvæðum
laga nr. 33 3. nóv. 1915 um verkfall op-
inberra starfsmanna og telur að opin-
berum starsfmönnum beri réttur til
að semja um launakjör sín til jafns við
aðrar vinnandi stéttir.
Fyrir því skorar fundurinn á Alþingi
að taka téð lög til endurskoðunar og
færa til samræmis við gildandi lög um
stéttarfélög og vinnudeilur, eftir því
sem við á“.
Báðar þessar tillögur voru samþykkt-
ar með öllum greiddum atkvæðum
gegn einu. Þareð blað þetta er nær
eingöngu helgað launamálum, viljum
vér birta hér útdrætti úr sumum ræðun-
um, sem fluttar voru. Þar má finna upp-
lýsingar um hvernig nú er háttað unl
kaup og kjör. En á þyí er hin mesta
þörf að þegnar þjóðfélagsins kynnist
högum hvers annars, svo' að þeir geti
vegið og metið óskir og þarfir náúng-
ans, og um fram allt beiti við það samúð
og skilningi, en ekki tortryggni og
fyrirfram ákveðnum kenningum og
hleypidómum.
Ekki eru tök á að birta allar ræðurn-
ar hvorki í heild né heldur í útdrætti,
meðal annars vegna þess, að sumir
ræðumanna fóru úr bænum, enda verð-
ur ekki unnt að taka sjónarmið allra í
einu blaði, né heldur að sýna myndir af
öllu því misrétti og ósamræmi sem nú
ríkir í launamálum ríkisins.
Viðhorf starfshópa.
Efalaust hefir fundur Bandalagsins
gefið mörgum kærkomið tækifæri til að
kynnast dálítið nánar, hvernig er um-
horfs hjá næsta félagi. Vér teljum
mikilsvert að slík kynningarstarfsemi
verði sem víðtækust og væntum þess, að
samtök vor finni til þess sem flestar
leiðir. Ætlast má til, að málgagn vort
verði verulegur þáttur í þessa átt, og
með það fyrir augum m. a. birtast hér
útdrættir úr ýmsum ræðum félaga
vorra á fundinum 1. þ. m.
Fulltrúi Læknafélags íslands,
Kristján Arinbjarnar, héraðslæknir í
Hafnarfirði, dró upp nokkrar myndir
af launakjörum og fólkseklu í kennara