Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 15.09.1944, Qupperneq 13

Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 15.09.1944, Qupperneq 13
STARFSMANNABLAÐIÐ 1 hinu opinbera, — og raunar að sumu leyti almenningi líka, — gengur erfið- lega að skilja stöðu hjúkrunarkonunnar öðruvísi en þannig, að hún eigi að fórna æfi sinni í þágu sjúkra og volaðra, og af ýmsum er jafnvel talin vansæmd í að þiggja bærileg laun fyrir slík störf, eða telja sig hafa rétt til frístunda á borð við aðrar vinnandi stéttir. M. ö. o. hugtakið góð lijúkrunarkona hefir jafn- an verið bundið við einhverja hugsjóna- veru, sem af einskærum náunganskær- leika vinni nótt með degi og liorfi ekki til launa fyrir störf sín. Þetta álit á rót sína að rekja til uppruna hjúkrunarstarfsins, en það var fyrr á tímum mestmegnis innt af hendi af reglusystrum trúarfélaga. Þegar far- ið var að reka spítala og heilbrigðis- stofnanir af opinberu fé, var jafnan lit- ið svo á, að til sjúkrahjúkrunar veldust aðallega konur, sem á einhvern hátt hefðu beðið skipbrot í lífi sínu, og væri því umönnun sjúkra þrautalendingin, og létu þær sig því litlu skipta um tím- anlegan hagnað, tómstundir eða laun fyrir starf sitt. Vandi starfans. Á síðari áratugum hefir aðstaða hjúkrunarkonunnar í öllum þjóðfélög- um breytzt mjög, enda hefir þeim kon- um fjölgað óðfluga, sem hafa gert hjúkrunarstörf að lífsstarfi sínu, um leið og allur aðbúnaður sjúkra’ hefir farið batnandi og heilsuverndarstarf- semi öll hefir aukizt á meðal siðaðra þjóða. Nú fer því fjarri að ég telji fórn- fýsina óþarft atriði í starfi hjúkrunar- kvenna. Ég tel þvert á móti óhugsandi að hjúkrunarkona geti innt starf sitt af hendi svo vel sé, nema saman fari hjá henni mannúð og köllun til þess að hlynna að þeim veiku og bæta kjör þeirra, sem eiga við erfiðastar lífsað- stæður að búa. Ég tel það óhugsandi, að nokkur hjúkrunarkona, hversu vel menntuð sem hún er, geti innt starf sitt réttilega af hendi, ef hún stundar það eingöngu í atvinnuskyni. Því er það, að við, sem höfum forráð hjúkrunar- kvennastéttarinnar með höndum og vinnum að heill hennar, teljum lífs- nauðsyn að í hana veljist úrvalskonur að mannkostum, menntun og líkamsat- gerfi. Svo andlega og líkamlega lýjandi og vandasamt teljum við lífsstarf þeirr- ar konu, sem sífellt er yfir veikum eða vinnur heilsuverndarstarf,sem er í því fólgið að auka þekkingu almennings á heilsusamlegu líferni, og útrýma sjúk- dómum og margskonar þjóðfélagsböli. En jafnframt lítum við svo á, að þeim konum, sem veljast til þessa erfiða og áhættusama starfs (t. d. vegna smit- hættu) beri að tryggja sæmileg lífs- kjör, þannig að þær hafi hvíldartíma, húsnæði og laun í samræmi við hið erfiða og ábyrgðarmikla starf. Kjör og aðbúð. Á þetta allt þykir mikið skorta, og skal drepa á hið helzta. Auk launa eiga spítalahjúkrunarkonur að fá fæði og húsnæði. Fæði mun víðast vera sæmi- legt og sumsstaðar ágætt. Um húsnæði gegnir nokkuð öðru máli. I flestum sjúkrahúsum landsins búa hjúkrunar- konurnar uppi yfir sjúklingunum, sums- staðar á sömu hæðum og sjúkrastof- urnar. Er þetta mjög ófrjálst, og híbýlin verða ekki annað en svefnstofur, því að nauðsynlegt er að hafa hljótt um sig á kvöldin vegna sjúklinga. Hjúkrun- arkona, sem býr í spítala getur t. d.

x

Starfsmannablaðið (B.S.R.B.)

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablaðið (B.S.R.B.)
https://timarit.is/publication/1580

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.