Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mælingar á loftgæðum á Hvaleyrar-
holti í fyrra í tengslum við
umhverfisvöktun á vegum Rio Tinto
á Íslandi sýndu lægri styrk á nokkr-
um mæliþáttum en verið hefur.
Þetta kemur fram í skýrslu Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands sem unnin
var fyrir Rio Tinto sem hluti af um-
hverfisrannsóknum sem kveðið er á
um í starfsleyfi álversins í Straums-
vík. Skýrslan var lögð fram á fundi
heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og
Kópavogssvæðis fyrir páska.
„Helstu niðurstöður voru að
styrkur svifryks, brennisteinsvetnis
og nituroxíða lækkaði frá fyrra ári
en styrkur flúors og brennisteins-
tvíoxíðs var áþekkur. Mælingar
sýndu að styrkur ofangreindra efna
fór aldrei yfir umhverfismörk og var
allvel undir slíkum mörkum í mörg-
um tilvikum.
Ástæður lækkunar eru að mestu
raktar til minni umferðar á árinu
2020 og til veðurfars en árið 2020
var frekar illviðrasamt og
suðvestanáttir voru meira einkenn-
andi en undangengin ár,“ segir í
fundargerð.
Þar er einnig greint frá flúormæl-
ingum í gróðri í umhverfi álversins
sem kynntar voru í skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar fyrir Rio Tinto
á Íslandi. „Niðurstöður sýna flúor-
innihald í lægra meðaltali í öllum
mælihólfum ef mið er haft við árin
frá 1992. Að öll mæligildi utan svæð-
is takmarkaðrar ábyrgðar eru undir
viðmiðunargildum um þolmörk
grasbíta,“ segir í fundargerð heil-
brigðiseftirlitsins sem brýnir fyrir-
tækið til að breyta starfsháttum:
„Nefndin telur nauðsynlegt að við
þessi tímamót, þ.e. eftir hálfrar ald-
ar samfelldan rekstur og við endur-
skoðun á starfsleyfi fyrirtækisins að
áætlun þess um umhverfisvöktun fái
rýni óháðra sérfræðinga. Það á við
staðsetningu og fjölda mælistöðva
fyrir loftmengandi efni en ekki síður
með vísan til nýlegrar rannsóknar
um framkvæmd rannsókna á flúor-
magni í gróðri.“
Greindu minni mengun í fyrra
- Styrkur brennisteinsvetnis og svif-
ryks lækkaði - Minna flúor í gróðri nú
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Straumsvík Mælingar á loftgæðum á Hvaleyrarholti árið 2020 sýndu að
styrkur svifryks, brennisteinsvetnis og nituroxíða lækkaði frá fyrra ári.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fulltrúi Bændahallarinnar ehf. og
Hótel Sögu ehf. lagði fram í héraðs-
dómi í gær ósk um frekari fram-
lengingu á greiðsluskjóli fyrirtækj-
anna. Verði dómurinn við óskinni
mun tíminn verða notaður til að
láta reyna á samninga við ríkið um
sölu húseignarinnar til nota fyrir
Háskóla Íslands.
Beiðni um framlengingu var ekki
mótmælt og kveðst Sigurður Kári
Kristjánsson lögmaður, umsjónar-
maður með fjárhagslegri endur-
skipulagningu Hótel Sögu, vongóð-
ur um að framlenging fáist.
Héraðsdómur úrskurðar um það en
að hámarki er hægt að veita fyrir-
tækinu þriggja mánaða frest til við-
bótar því 7. júlí verður liðið ár frá
því fyrirtækin nýttu sér þetta úr-
ræði. Samkvæmt lögum getur
greiðsluskjól ekki varað nema í ár.
Bændasamtök Íslands, sem eiga
bæði fyrirtækin, hafa átt í við-
ræðum við ýmsa aðila um sölu eða
leigu á húsnæði hótelsins og raunar
Bændahallarinnar allrar. Fjöldi
ferðaþjónustufyrirtækja, erlendra
og innlendra, hefur sýnt eigninni
áhuga með það að markmiði að
hefja aftur hótelrekstur. Mikil
óvissa er hins vegar enn í ferða-
þjónustunni vegna kórónuveiru-
faraldursins. Þá hafa verið við-
ræður við tvö fyrirtæki á
heilbrigðissviði um að breyta hót-
elinu í hjúkrunarheimili.
Viðræður við ríkið vegna Háskól-
ans virðast þó vera mest í deiglunni
nú, fyrst þær eru nefndar sér-
staklega í umsókn um framleng-
ingu.
Fram hefur komið að Háskóli Ís-
lands hefur áhuga á að flytja
menntavísindasvið sitt úr húsi
Kennaraháskólans við Stakkahlíð á
háskólasvæðið og telur að húsið
muni geta nýst fyrir ýmsa aðra
starfsemi skólans. Húsið er alls um
18 þúsund fermetrar að stærð og
því fylgir réttur til að byggja við.
Þar eru salir sem nýta má sem
kennslustofur og aðstaða fyrir
skrifstofur. Þá hafa samtök stúd-
enta óskað eftir að hluti hússins
verði gerður að stúdentagörðum.
„Viðræður standa yfir og og tím-
inn verður að leiða í ljós hvort þær
leiða til niðurstöðu sem báðir sætta
sig við,“ segir Sigurður Kári.
Láta reyna á við-
ræður við ríkið
- Sótt um þriggja mánaða framleng-
ingu á greiðsluskjóli Hótel Sögu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bændahöllin Hótel Saga er stór
bygging á háskólasvæðinu.
Guðrún Hálfdánardóttir
Oddur Þórðarson
Alls greindust ellefu með kórónu-
veirusmit innanlands á þriðjudag.
Sex þeirra sem greindust innan-
lands voru utan sóttkvíar. Fimm af
þeim smitum greindust í Mýrdals-
hreppi. Hópsmitið er talið mega
rekja til ferðalangs, sem búsettur er
á Íslandi. Viðkomandi er með mót-
efni fyrir veirunni og þarf því ekki
að sæta sóttkví.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir í samtali við blaðamann
að smittölurnar séu til marks um að
enn sé smit í samfélaginu. „Við höf-
um ekki náð að koma í veg fyrir það.
Meðan svo er þá geta hópsmit bloss-
að upp og því er hætta ef við förum
að slaka of mikið á og leyfa stærri
hópamyndanir,“ segir Þórólfur.
Varar fólk við ferðalögum
Í tilkynningu á vef embættis land-
læknis ítrekaði Þórólfur í gær ráð-
leggingar sínar gegn ónauðsynleg-
um ferðalögum Íslendinga út í heim.
Sem stendur eru öll lönd heims,
nema Grænland, skilgreind sem
áhættusvæði vegna heimsfaraldurs
kórónuveiru og varar Þórólfur því
við ferðalögum til þeirra svæða.
Á því rúma ári sem kórónuveiru-
faraldurinn hefur geisað hafa um
130 milljónir smitast af veirunni og
tæplega þrjár milljónir hafa látist
vegna hennar. Innan Evrópu hafa
um 900 þúsund manns látist. Þór-
ólfur segir áhættumat sitt, sem
hann segir að sé í takt við áhættu-
mat Sóttvarnastofnunar Evrópu,
kveða á um að nýgengi smita úti í
heimi sé víða mjög mikið og mikil
hætta sé á smiti af hinum ýmsu af-
brigðum veirunnar, sér í lagi
B.1.1.7.-afbrigðinu sem kennt er við
Bretland.
Tveir greindust með Covid-19 á
landamærum á þriðjudag og bíða
þeir báðir mótefnamælingar. 132
virk smit eru á landinu. Í sóttkví eru
127 en í skimunarsóttkví 904.
Nýgengi smita innanlands á
hverja 100 þúsund íbúa er nú 22 síð-
ustu tvær vikur og 6,5 á landamær-
unum. Alls eru 39 börn með Covid á
Íslandi í dag og hefur fjölgað um eitt
á milli daga. Flest smitin eru í ald-
urshópnum 30-39 ára eða 41. Fjögur
smit eru meðal barna á aldrinum 1-5
ára, 29 smit eru á meðal barna á
aldrinum 6-12 ára og sex í aldurs-
hópnum 13-17 ára. Í aldurshópnum
18-29 ára eru 19 smit. 23 smit eru í
aldurshópnum 40-49 ára. Átta smit
eru í aldurshópnum 50-59 ára, eitt
virkt smit er á meðal fólks á sjötugs-
aldri og einn á áttræðisaldri er með
Covid-19.
Alls voru 1.863 skimaðir innan-
lands á þriðjudag. Á landamærunum
voru 550 einstaklingar skimaðir.
Hópsmit talið tengjast
ferðamanni með mótefni
- Sex greindust utan sóttkvíar, þar af fimm í Mýrdalshreppi
11 ný innanlandssmitgreindust sl. sólarhring
127 einstaklingareru í sóttkví
904 einstaklingareru í skimunarsóttkví
132 eru meðvirkt smit
og í einangrun
Fjöldi
smita
Heimild:
covid.is
Fjöldi smita
innanlands
Fjöldi smita á
landamærum
júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars
Fullbólusettir:
24.344 einstak-lingar