Morgunblaðið - 08.04.2021, Side 10

Morgunblaðið - 08.04.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vegna heimsfaraldurs kórónuveir- unnar er alls óvíst hve mörg skemmtiferðaskip koma til Íslands í sumar. Mikið er bókað en vænt- anlega munu margar afbókanir berast áður en sumarið er á enda. Núna í byrjun apríl komu hins vegar góðar fréttir frá tveimur skipafélögum, Viking Ocean Crui- ses og Crystal Cruises, segir Erna Kristjánsdóttir, markaðsstjóri Faxaflóahafna. Báðar þessar út- gerðir hafa hug á að bjóða upp á hringferðir kringum Ísland með farþegaskipum hér á landi. Heima- höfn verður í Reykjavík. Farþegar fara í sýnatöku „Þetta þýðir að farþegar koma með flugi í gegnum Leifsstöð og fara í sýnatöku. Sýnataka verður síðan einnig gerð um borð í skip- inu. Um er að ræða hringsiglingu í kringum Ísland, engir aðrir við- komustaðir verða,“ segir Erna. Skipafélögin Viking og Crystal Cruises hafa látið almannavarnir og ferðamálaráðherra vita af þess- um áformum sínum. Viking hyggst byrja siglingar í júní nk. Hingað kemur skip félags- ins, Viking Sky, og í boði verða átta daga hringferðir, þar sem stoppað verður á nokkrum stöðum. Viking Sky er tæplega 48 þúsund brúttótonn, smíðað 2016. Það tek- ur 930 farþega og í áhöfn eru 550 manns. Crystal Cruises ætlar að byrja siglingar frá Reykjavík 17. júlí og bjóða upp á 10 daga hringferð um Ísland, þar sem stoppað verður á fjölmörgum stöðum. Hingað kem- ur splunkunýtt skip, Crystal En- deavor, en smíði þess lauk fyrr á þessu ári. Það er tæplega 20 þús- und brúttótonn, tekur 200 farþega og í áhöfn verða 200 manns. Í gær voru bókaðar 138 skipa- komur hjá Faxaflóahöfnum í sum- ar með 149.184 farþega. Útgerðir farþegaskipa bóka komur sínar til landsins með eins til tveggja ára fyrirvara, segir Erna. Þetta gera þær meðal annars til þess að tryggja sér bryggjupláss. Misjafnt er hvernig staðið er að afbókunum og geta þær verið allt frá nokkrum mánuðum til nokkurra daga fyrir áætlaða komu. Bókunarstaðan er mjög svipuð og á sama tíma í fyrra. Rauntölur í fyrra (2020) voru hins vegar sjö skipakomur og 1.346 farþegar. Skipafélagið Ponant stóð fyrir þessum ferðum. Bókunarstaðan byggist á vænt- ingum skipafélaga sem hafa hug á því að hefja siglingar til Íslands, segir Erna. Útgerðir eru áhuga- samar að koma til landsins en í ljósi aðstæðna í heiminum er erfitt að sigla með ferðamenn á þessum tíma, ef öryggi á að vera tryggt. „Flestar útgerðir hafa gefið það út að verði á annað borð haldið úti siglingum til landsins verði það einungis með bólusetta farþega,“ segir Erna. Tvö skip boða siglingar við Ísland - Skipafélögin Viking Ocean Cruises og Crystal Cruises hyggjast bjóða upp á hringferðir í sumar Ljósmynd/Viking Ocean Cruises Viking Sky Er tæplega 48 þúsund brúttótonn að stærð og tekur 930 farþega. Ljósmynd/Crystal Cruises Crystal Endeavor Er tæplega 20 þúsund brúttótonn og tekur 200 farþega. Ekki blasir við að hægt verði að stunda beinar, arðbærar veiðar á krossfiski við landið, að því er fram kemur í skýrslu sem Aurora Sea- food og Matís hafa tekið saman. Au- rora Seafood hefur flutt út frosinn krossfisk til Bandaríkjanna, en það skilar varla kostnaðarverði við pökkun, frystingu og flutning og því er engin verðmætasköpun við fram- leiðsluna, að því er kemur fram í skýrslunni. Við mælingar olli það vonbrigð- um hversu hátt magn kadmíns mældist í krossfiski, sem veiddur var við austur- og vesturströnd landsins. Leyfilegt magn kadmíns fyrir manneldisafurðir er 0,5 mg í grammi en mælt magn var 6,3 fyrir austan og 2,5 fyrir vestan. Þá brotnaði krossfiskurinn hratt niður og voru sýni orðin maukuð vegna ensímvirkni á einum til tveimur dögum. Forgangsverkefni ef stunda á krossfiskveiðar hér við land er að finna leið til að stöðva þetta niðurbrot og viðhalda gæðum fram að vinnslu. Í framhaldi þarf að þróa vinnslu og finna markað fyrir afurðina, segir í skýrslunni. Krossfiskur veiðist aðallega hér við land sem meðafli við veiðar með plóg. Mest veiðist af honum við veið- ar á sæbjúgum við austanvert landið og eins á miðum við Norðvesturland og á Breiðafirði. aij@mbl.is Hagnaður af beinum veiðum blasir ekki við - Mikið af kadmíni í krossfiski Morgunblaðið/Alfons Krossfiskur Ýmis vandamál fylgja veiðum, vinnslu og sölu til útlanda. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessi bið hlýtur að hafa einhver áhrif en ég tel þó ekki að hann sé af baki dottinn,“ segir Haraldur Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingafulltrúi Rangárþings ytra, spurður um stöðu mála á upp- byggingaráform- um Malasíu- mannsins Loo Eng Wah í sveit- arfélaginu. Loo hyggst koma á fót ferðaþjónustu í landi Leynis 2 og 3 í Landsveit en áformin hafa verið umdeild. Nýverið felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála úr gildi ákvörðun Skipu- lagsstofnunar um að framkvæmdir þar skuli ekki háðar mati á umhverf- isáhrifum. Skipulagsstofnun mun því ákvarða á ný hvort þörf sé á um- hverfismati á svæðinu og segir Har- aldur Birgir aðspurður að Loo sé nú að taka saman gögn fyrir Skipulags- stofnun sem verði metin. Hefur meðal annars verið ráðist í rann- sóknir á jarðvegi að Leyni af þessum sökum. Þá hefur hópur landeigenda í ná- grenni Leynis 2 og 3 nýverið kært þá ákvörðun sveitarfélagsins að samþykkja deiliskipulag fyrir svæð- ið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Er þess krafist að sú ákvörðun verði felld úr gildi. „Að mati kærenda fela skipu- lagsáformin í sér að verið er að fórna ríkum hagsmunum landeigenda og íbúa á svæðinu í þágu eigenda á þeim skika sem er undir í málinu. Þá hefur að mati kærenda að engu leyti verið hugað að hagsmunum um- hverfisins við meðferð þessa máls og ekki gætt að stöðu svæðisins sem vatnsverndarsvæðis,“ segir meðal annars í kærunni. Haraldur Birgir segir í samtali við Morgunblaðið að Rangárþing ytra hafi lagt fram and- svör við kærunni og niðurstöðu úr- skurðarnefndar sé beðið. Eins og komið hefur fram í Morg- unblaðinu hefur Loo uppi frekari áform um uppbyggingu ferðaþjón- ustu í sveitarfélaginu. Hefur hann fengið úthlutað tveimur lóðum í miðbæ Hellu og kynnt hugmyndir um hótelrekstur og fleira. Haraldur Birgir upplýsir aðspurður að Loo hafi einnig fengið vilyrði fyrir þriðju lóðinni. Sú er sunnan Suðurlands- vegar á Hellu, skammt frá hinu kunna Stracta-hóteli. „Þetta er stórt svæði og hann mun leggja fram til- lögu um uppbyggingu þar. Það voru aðilar sem féllu frá áformum um uppbyggingu þarna. Loo tók við og heldur áfram með gildandi skipulag þar. Það er fullt í gangi hjá kall- inum,“ segir Haraldur Birgir. Nágrannar lögðu fram kæru vegna áforma Loo - Óvíst með umhverfismat - Loo með lóð við Stracta-hótelið Loo Eng Wah Heimir Bergmann Löggiltur fasteigna- og skipasali og löggiltur leigumiðlari. Sími 630 9000 heimir@logheimili.is Inga María Ottósdóttir Löggiltur fasteignasali og Mbl viðskiptalögfræðingur Sími 620 4040 inga@logheimili.is Ásgeir þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur Sími 772 0102 asgeir@logheimili.is Guðmundur Ólafs Kristjánsson Löggiltur fasteigna- og skipasali Sími 847 0306 gudmundur@logheimili.is Unnur Alexandra Nemi til löggildingar fasteignasala og viðskiptalögfræðingur Sími 788 8438 unnur@logheimili.is Sólrún Aspar Hefur lokið námi til fasteignasala. Sími 862 2531 solrun@logheimili.is Jónas H. Jónasson Nemi til löggildingar fasteignasala Sími 842 1520 jonas@logheimili.is Egill Ragnar Sigurðsson Viðskiptafræðingur Nemi til löggildingar fasteignasala Sími 835 0860 egill@logheimili.is Skipholti 50d, 105 Reykjavík Skólabraut 26, 300 Akranesi 530 9000 • www.logheimili.is Ertu í sölu- hugleiðingum? Getum bætt við eignum á söluskrá Fagmennska og traust í meira en áratug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.