Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Heilbrigðis-
ráðherra hefur
falið Halldóri S.
Guðmundssyni,
framkvæmda-
stjóra Öldrunar-
heimila Akureyr-
ar, að vinna drög
að stefnu um
heilbrigðisþjón-
ustu við aldraða
til ársins 2030.
Stefnumótun á þessu sviði verður
umfjöllunarefni heilbrigðisþings
ársins 2021 sem heilbrigðis-
ráðherra efnir til þann 20. ágúst
næstkomandi.
Er Halldóri m.a. ætlað að horfa
til heildarskipulags þjónustu við
aldraðra, samþættingar milli heil-
brigðisþjónustu og félagslegrar
þjónustu og þverfaglegs samstarfs
á milli þessara þjónustustiga. Hafa
á samráð við stjórnendur sem og
notendur öldrunarþjónustu og að-
standendur þeirra.
Stefna um þjónustu
við aldraða kynnt
á heilbrigðisþingi
Halldór S.
Guðmundsson
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra, hefur undir-
ritað samning við sveitarfélög og
atvinnuþróunarfélög um stofnun
áfangastaðastofu á Norðurlandi.
Með undirritun samningsins eru
orðnar til áfangastaðastofur í öllum
landshlutum að undanskildu höf-
uðborgarsvæðinu en stofnun slíkr-
ar stofu þar er í undirbúningi. Þar
með er leidd til lykta vinna við upp-
byggingu stoðkerfis ferðaþjónustu
á landsbyggðinni, segir í frétta-
tilkynningu frá ráðuneyti Þórdísar
Kolbrúnar.
Samið um áfanga-
staðastofu nyrðra
Norðurland Frá undirritun samningsins,
sem fór fram með fjarfundabúnaði.
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
TRAUST
Í 80 ÁR
Úrval af fallegum yfirhöfnum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Vesti nokkrir litir
Bolir • Blússur • Kjólar • Tunikur
Peysur • Jakkar
Verið velkomin
Nýjar
töskur
Ný sending
Bonito ehf. • Praxis• Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870
www.praxis.is • Opiðmán. og mið. 13-17, fim. 11-13 • Síminn alltaf opinn
Hjá Praxis
er einungis seldur
fallegur hágæða fatnaður,
gæða sandalar og skór.
Kíkið á Praxis.is og skoðið
úrvalið hjá Praxis og 7days
Höldum verslun og þjónustu
í landinu og verslum á Íslandi
Erum með mikið úrval fyrir
Vorið í nánd?
...Þegar þú vilt þægindi
fagfólkið
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
PEYSUR
Kr. 5.900.-
TÚNIKUR
Kr. 4.990.-
Str. S-XXL
Ný ROBELL
buxnasending
Hjólreiðakeppnin Síminn cyclo-
thon, sem til ársins 2019 var kennd
við flugfélagið WOW air, verður
haldin dagana 22. til 25. júní í sum-
ar. Í keppninni er bæði keppt í ein-
staklings- og liðakeppni með boð-
sveitarformi hringinn í kringum
landið, samtals 1.358 kílómetra á
undir 72 klukkustundum.
Skráning í keppnina er opin
næstu fjórar vikurnar og mun
henni ljúka mánudaginn 3. maí.
Fjöldi liða er nú þegar búinn að
skrá sig til keppni og sem fyrr er
mikið um lið sem mæta til leiks ár
eftir ár, segir í tilkynningu frá Sím-
anum.
„Allt bendir til þess að bæði
keppni og æfingar geti farið fram
þrátt fyrir að núverandi sam-
komutakmarkanir verði áfram í
gildi í lok júní. Skipuleggjendur
hafa gert ráðstafanir sem gera ræs-
ingu mögulega í fjöldatakmörkun,“
segir m.a. í tilkynningunni.
Hjólreiðakeppni Símans fer fram í sumar
Morgunblaðið/Þórður
Hjólreiðar Keppni verður haldin í sumar.