Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 12
DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á næstu 13 árum hyggjast ríkis- sjóður og sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu verja 120 milljörðum króna í uppbygg- ingu samgöngu- kerfisins á svæð- inu. Af þeirri fjárhæð munu um 50 milljarðar króna fara í upp- byggingu svokall- aðrar borgarlínu eða BRT-kerfis (BRT: e. Bus Ra- pid Transit.). Þá er stefnt að 52,2 milljarða fjárfestingu í stofnvegum, 8,2 milljarða í hjólastígum, göngu- brúm og undirgöngum og 7,2 millj- arða fjárfestingu í umferðarstýr- ingu og öryggisaðgerðir. Ekki fara í bútasaum Davíð Þorláksson er fram- kvæmdastjóri Betri samgangna ohf. sem halda mun utan um uppbygg- inguna á komandi árum. Hann er gestur Dagmála og segir aðspurður að hugmyndir sem viðr- aðar hafa verið um „léttútgáfu“ af BRT-kerfi séu ekki fýsilegar fyrir uppbygginguna framundan. Í þeim hugmyndum er gengið út frá því að byggja á grunni þeirra innviða sem nú þegar eru til staðar í leiðakerfi strætó, sem m.a. veitir vögnum auk- ið sérrými á stofnæðum. „Lykillinn er að í stað þess að reyna að laga það sem er til staðar er að koma með nýtt kerfi. Það er það sem hefur gefist vel víða. Hug- myndir um væga útgáfu af BRT- kerfi eru líkari því sem hefur verið gert, laga það sem fyrir er. Við verðum að brjótast út úr því. Það hefur ekki skilað nægilega miklum árangri. Þetta myndi skila okkur meiri árangri,“ segir Davíð. Á síðustu árum hefur stórauknu fé verið varið til að efla strætis- vagnaþjónustu á höfuðborgarsvæð- inu. Átti milljarða innspýting að auka hlutdeild almennings- samgangna úr 4% í 8% en hlutfallið hefur lítið sem ekkert breyst. Davíð segir þá reynslu ekki eiga að hræða samfélagið frá fjárfestingu í borgar- línu, þvert á móti bendi fengin reynsla til þess að stíga þurfi mun markvissari skref í uppbyggingunni til þess að gera almennings- samgöngur að svo hentugum ferða- máta að fólk velji þær umfram einkabílinn. Davíð bendir á að félagið Betri samgöngur ohf. muni ekki koma með beinum hætti að framkvæmd- unum framundan. Þær verði m.a. í höndum Vegagerðarinnar. Hins vegar sé það meginhlutverk félags- ins að hafa umsjón og eftirlit með því að verkefnið nái fram að ganga og fjármögnunarhlutinn er á herð- um þess. Sem stendur eru starfs- menn félagsins aðeins þrír og segir Davíð ekki í pípunum að þenja yfir- bygginguna út með fleira starfs- fólki. Hann segir að eitt af megin- verkefnum félagsins sé að tryggja að uppbyggingin muni ekki fara fram úr kostnaðaráætlunum. Segir hann hlutverkið að einhverju marki vera það að þjóna sem „varðhundar skattgreiðenda.“ Forðast mistök með meiri fjárfestingu - Framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf. telur heillavænlegra að ganga lengra en skemur þegar kemur að fjárfestingu í borgarlínu - Segir félagið gegna hlutverki varðhunds fyrir skattgreiðendur Umferðartafir Markmið með uppbyggingunni er að stytta ferðatíma fólks og efla hlut almenningssamgangna.Davíð Þorláksson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir að til standi að lagfæra listaverkið Salt- fiskstöflun eftir Sigurjón Ólafsson, sem stendur við Sjómannaskólann, í samhengi við framkvæmdir á svæð- inu. Fram hefur komið að listaverkið hefur látið verulega á sjá. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í seinustu viku skoraði Birgitta Spur, handhafi höfundar- og sæmdarréttar lista- verka Sigurjóns Ólafssonar, á stjórn- völd að bjarga þessu sögulega og mikilvæga listaverki. Hefur hún lýst áhyggjum sínum við borgaryfirvöld vegna þeirra skemmda sem lág- myndin gæti orðið fyrir vegna þeirra viðamiklu framkvæmda sem fyrir- hugaðar eru á svæðinu. Ólöf segir spurð um þetta að lista- safnið sem sér um listaverk í eigu Reykjavíkurborgar muni sinna verk- inu áfram samkvæmt þeim áætlunum sem koma fram í grein Birgittu. „Verkið fer vel á þeim stað þar sem það stendur og er mikilvægur minnisvarði um sögu svæðisins auk þess sem hér er um mikilvægt lista- verk að ræða,“ segir hún í svari til Morgunblaðsins. „Eins og fram hef- ur komið í greinargerðum safnsins um verkið verður ekki unnið að við- gerðum á því fyrr en framkvæmdir fara af stað þar sem augljóst er að um rask verður að ræða á svæðinu. Nokkur athygli hefur beinst að verkinu í samhengi nýs skipulags og baráttu manna gegn því en eins og ég nefndi er hugmyndin sú að verkið verði áfram þar sem því var upp- haflega komið fyrir og ekkert óljóst við þau svör sem gefin hafa verið,“ segir Ólöf. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjómannaskólinn Listaverkið er á lóðinni og hefur látið verulega á sjá. Listasafnið mun sinna verkinu áfram N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533 SUMARLEYFISFERÐIR FÍ • skráðu þig inn og drífðu þig út! Sjáumst á fjöllum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.