Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Í Miðholti á Þórshöfn er fallegt garðhús þar sem aldrei er setið auðum höndum þótt eig- andinn sé á níræðisaldri, hag- leiksmaðurinn Björn Trausti Ragn- arsson. Hann situr daglangt við smíðar, umkringdur handverki og listilega útskornum gripum í litla ríkinu sínu, sem ber nafnið Brú, eins og æskuheimili hans á Eskifirði. „Já, ég verð bara brjálaður ef ég hef ekkert að gera, ég get ekki legið í leti alla daga, mín kynslóð er ekki alin upp við það,“ sagði hinn at- hafnasami Trausti, iðjuleysi er eitur í hans beinum. Þarna í smíðahúsinu eru ýmsir smíðisgripir; klukkur, myndarammar, lyklahengi, skurð- arbretti og fleira en Trausti grípur líka í útsaum og hefur saumað marg- ar myndir, sumar nokkuð stórar. „Mér finnst gaman að sauma út, aðallega góbelínmyndir og ég hef saumað þó nokkrar. Ég saumaði til dæmis tvær eins myndir af fallegu pari og gaf dóttur minni aðra en Abba mín fékk hina, hún er hér í svefnherberginu okkar,“ sagði Trausti en þar er líka spegill í út- skornum ramma og vegleg klukka, unnið af Trausta. Fleiri útsaumsmyndir eftir Trausta prýða heimili þeirra hjóna og listfengið er honum í blóð borið eins og handverk hans ber vitni um. Semur ljóð til konu sinnar Trausti lætur ekki við það sitja að smíða, sauma og skera út, heldur semur hann einnig vísukorn og ljóð, einkum til Öbbu sinnar, eiginkon- unnar Aðalbjargar Jónu Sigfúsdótt- ur. Hann er ágætur söngmaður og var áður vinsæll skemmtikraftur á þorrablótum á Þórshöfn, þar sem allur salurinn tók undir með honum af hjartans lyst í færeyska laginu um Rasmus í Görðum en hann lék sjálfur undir á gítar. Trausti er frá Eskifirði en Aðal- björg, eða Abba eins hún er jafnan kölluð, er frá Hvammi í Þistilfirði. Þau bjuggu í rúm 20 ár á Eskifirði, þar sem Trausti vann við fiskvinnslu og smíðar en Aðalbjörg var mat- ráðskona á öldrunarheimilinu Hulduhlíð. Þau fluttu aftur til Þórs- hafnar þegar þau voru bæði komin á eftirlaunaaldur og keyptu notalega íbúð í Miðholtinu þar sem gott pláss er í garðinum fyrir handverkshús Trausta. Á heimili þeirra hjóna eru margir smíðisgripir Trausta og út- saumsmyndir en Abba lumar líka á ýmsu. Hún er mikil prjónakona, eins og staflar af lopapeysum, húfum og vettlingum sýna. „Jú jú, ég prjóna bæði á fjölskylduna og fyrir aðra, ég á til ýmislegt prjónles,“ sagði Abba brosmild. Lopapeysurnar hennar eru dæmi um rammíslenskt hand- verk eins og það gerist best. 130 súkkulaðikönnur Abba og Trausti eru höfðingjar heim að sækja og gamla íslenska gestrisnin er í öndvegi. Á gljáandi tekkborði með blúndudúk var brennheitt kaffi í rósóttum bollum, rúsínujólakaka og hjónabandssæla, dýrindis heimabakkelsi. Einnig örl- aði á eðalborinni brjóstbirtu í glitr- andi kristalstaupum. Könnusafnið hennar Öbbu vakti athygli blaðamanns, heilu raðirnar af rennilegum súkkulaðikönnum, hver annarri fallegri. „Ég byrjaði að safna könnum þegar við Trausti minn fluttum til Eskifjarðar og er búin að dunda við það í rúm þrjátíu ár. Ég á núna 130 könnur en er samt búin að gefa þó nokkrar,“ sagði Abba kankvís og bætir við: „Trausti minn brosir stundum að þessari könnusöfnun en hann samdi vísukorn og lét letra á eina könnu sem hann gaf mér: Abba mín er létt í lund leikur hún við hvern sinn fingur er hún marga styttir stund strýkur og baðar könnuglingur. Afbrýðisemi með orði sönnu upp nú kom í huga minn, er nokkuð betra að baða könnu en bústna eiginmanninn sinn?“ Þessi samhentu hjón í Miðholt- inu kunna að njóta lífsins og ald- urinn segir ekki allt. „Það er bara best að hafa alltaf eitthvað fyrir stafni, þá leiðist manni aldrei. Okkur Öbbu minni líður óskaplega vel hér í Miðholtinu, hingað koma oft gestir og það finnst okkur gaman, maður er manns gaman,“ sagði Trausti sem er ungur í anda þótt árin verði átta- tíu og fimm í sumar og eflaust eru vandfundin hamingjusamari hjón en unglingarnir Abba og Trausti á Þórshöfn. Smíðar, saumar, semur og sker út Hagleiksmaðurinn Björn Trausti á Þórshöfn segist ekki vilja liggja í leti alla daga. Útsaumsmyndir og fleiri munir prýða heim- ili hans og Öbbu. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Í smíðahúsinu Brú unir Trausti sér daglangt við smíðar og útskurð. Baðar könnuglingur Aðalbjörg Sigfúsdóttir með eina súkku- laðikönnuna með áletruðum vísum frá Trausta. Glóbelín Íslenskir sjómenn. Húsprýði Súkkulaðikönnusafnið. Exostride Stærðir: 40-46 Verð: 19.995.- Exostride Stærðir: 40-46 Verð: 19.995.- VATNSHELDIR ECCO GÖTUSKÓR Exostride Stærðir: 36-42 Verð: 19.995.- Exostride Stærðir: 36-42 Verð: 19.995.- KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE Dagskrá: Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins Önnur mál Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Stjórn Gildis–lífeyrissjóðs. Ársfundur Gildis verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl klukkan 17:00. Vegna sóttvarnarráðstafana verður fundurinn að fullu rafrænn. Nánari upplýsingar á www.gildi.is. Gildi–lífeyrissjóður Rafrænn ársfundur 2021 ▪ ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.