Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 18

Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrirtækið ÞG íbúðir ehf., sem sel- ur íbúðir í hinu nýja hverfi Voga- byggð, hefur ritað skipulagsfulltrúa Reykjavíkur bréf með ósk um að felld verði niður kvöð í skipulagi um gróðurþekjur og berjarunna innan sérafnotareita/einkagarða íbúða. ÞG íbúðir eru lóðarhafi að Kuggavogi 2-14, Arkarvogi 2-15 og Skektuvogi 2-8 í Vogabyggð og seljandi íbúða á þessum lóðum. ÞG verktakar byggja íbúðar- húsin. Í bréfi forstjór- ans, Þorvaldar Gissurarsonar, til skipulagfulltrúa kemur fram að í deiliskipulagi sé þess krafist að sérnotafletir skuli að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna. „Það er mat lóðarhafa og byggingaraðila að hér sé um óeðli- legar kröfur að ræða sem eru hindr- andi og til óþurftar fyrir íbúða- eigendur og rýri auk þess gæði íbúða og möguleika íbúðaeigenda til að hámarka nýtingu sinna eigna,“ segir Þorvaldur m.a. í bréfinu. Hann segir að sérnotafletir/einka- garðar séu almennt á bilinu 5-10 fer- metrar og gróðurþekjan væri því á bilinu 2,5-5 fermetrar. Sérnotafletir sem þessir séu almennt útbúnir með timburpalli, svokölluðum sólpöllum eða verönd, og þar séu oftast útigrill og fleira. Fólk sé almennt ekki með „garða“ sem séu minni en fimm fer- metrar að stærð. „Deiliskipulagið virðist ganga of langt í einhvers konar forræðis- hyggju varðandi frágang sérnota- rýma,“ segir Þorvaldur. Fjölmargir viðskiptavinir hafi lýst yfir van- þóknun á þessum kröfum. Óskar Þorvaldur eftir því að kvöð um 50% gróðurþekju verði felld nið- ur og vonast eftir skjótum viðbrögð- um Reykjavíkurborgar, enda sé um minni háttar breytingu á deiliskipu- laginu að ræða. Skipulagsfulltrúi vísaði málinu til afgreiðslu hjá skipulags- og samgönguráði, sam hafnaði beiðninni á fundi í gær. Ákvæði um gróðurþekju í einka- görðum í Vogabyggð séu ekki íþyngjandi og garðarnir séu hluti af heildarmynd hverfisins. „Berjarunnamálið“ komst fyrst í fréttirnar í janúar síðastliðnum þeg- ar mbl.is birti frétt um Facebook- færslu Guðmundar Heiðars Helga- sonar, upplýsingafulltrúa Strætó, þar sem hann furðaði sig á ströng- um reglum Reykjavíkurborgar. Guðmundur hafði keypt íbúð í Vogahverfi og fékk fjölskyldan sér- afnotareit og hugðist byggja sólpall. En verktakarnir stöðvuðu fram- kvæmdir þegar lokið var við helm- ing pallsins því samkvæmt skilmál- unum þurfti nefnilega að vera gras yfir helmingi séreignarflatarins og í það minnsta einn berjarunni í hverj- um reit. „Mér fannst þetta svo steikt að ég þurfti að hafa samband við borgina og það var ekkert auðvelt,“ sagði Guðmundur í samtali við mbl.is. Mannvænna og grænna Mbl.is hafði í framhaldinu sam- band við Pawel Bartozek, borgar- fulltrúa og staðgengil formanns skipulags- og samgönguráðs. Sagði Pawel að berjarunni á séreignar- svæði í nýrri Vogabyggð væri hluti af stefnu borgarinnar um að fjölga grænum svæðum. Það væri ákveðin tilhneiging hjá skipulagsyfirvöldum að reyna að gera umhverfið mann- vænna og grænna. Guðmundur Heiðar bendir hins vegar á að vegna girðingar muni engir sjá væntanleg- an runna aðrir en eigendur garðs- ins. „Við deilum áhyggjum okkar við- skiptavina og framtíðaríbúa í hverf- inu,“ segir Þorvaldur Gissurarson í bréfinu til skipulagsfulltrúa. Kvöð um berjarunna mun standa - Forstjóri ÞG íbúða segir kröfur um að 50% einkagarða í Vogabyggð séu með gróðurþekju óeðlilegar - Íbúðakaupendur séu óánægðir enda vilji þeir byggja sólpalla - Borgin hafnaði ósk um niðurfellingu Morgunblaðið/Ómar Vogabyggð „Sérnotafletir skulu að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna,“ segir í skilmálum. Þorvaldur Gissurarson SPORTÍSNÁNARI UPPLÝSINGAR:spor t i s . i s - s :893-7911 - skul i@spor t i s . i s CARETTA FERÐAVAGNAR FYRIR ÚTIVISTINA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.