Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Frá og með deginum í dag bjóðast
viðskiptavinum verslana S4S gjafa-
kort og inneignir sem verða virk og
aðgengileg á snjallsímum. Kortin eru
sniðin að stýrikerfum símanna svo
auðvelt er að hlaða þeim niður bæði í
Android og Apple. Þá eru kortin
tengd tölvukerfi S4S og þannig geta
viðskiptavinir – líkt og fyrirtækið –
séð hver innistæða þeirra er í raun-
tíma.
„Gjafakort úr plasti og inneignar-
nótur á pappír, sem fólk fær til dæm-
is við vöruskil, eru barn síns tíma.
Þetta eru gögn sem fólk týnir eða
gleymir auk þess sem þau renna úr
gildi. Þar með glatast peningur við-
skiptavina. Þarna viljum við koma
betur til móts við viðskiptavini og er-
um því ekki með fyrningarfrest á
gjafakortum og inneignarnótum. Þá
verður alltaf hægt að nota gjafakort-
in okkar, hvort sem er afsláttur í
verslunum eða ekki,“ segir Pétur Þór
Halldórsson, forstjóri S4S, í samtali
við Morgunblaðið.
Vildarklúbbur og áminningar
S4S ehf. er umsvifamikið versl-
unarfyrirtæki. Undir hatti þessu eru
reknar skóbúðirnar Steinar Waage,
Kaupfélagið, Ecco, Skechers og
Toppskórinn, ásamt Air, sem eru sér-
hæfðar í íþróttavörum frá Nike. Allar
þessar verslanir eru á höfuðborgar-
svæðinu. Þá starfrækir fyrirtækið
Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri.
Jafnframt eru í samstæðunni net-
verslanirnar skor.is, ellingsen.is, air-
.is og rafhjolasetur.is. Alls eru þetta
17 verslanir, hver á sínu sviði, en
áberandi í vöruframboði samstæð-
unnar eru skór fyrir alla fjölskyld-
una, alhliða íþrótta- og útivistarfatn-
aður og í Ellingsen er svo fjölbreytt
úrval af útivistarbúnaði, rafhjólum og
ferðatækjum.
„Okkur er mikið í mun að við-
skiptavinir okkar geti nýtt allar inn-
eignir og gjafakort sem þeir eiga hjá
okkur,“ segir Pétur. „Þess vegna er-
um við að þróa vildarklúbb sem held-
ur utan um vildarviðskiptavini með
sértilboðum og inneignarsöfnun sem
mun jafnframt vera tengt við hug-
búnað í farsímum. Í nýrri verslun
Steinars Waage sem opnuð verður í
Smáralind í haust verður tæknin nýtt
til hins ýtrasta. Til að mynda verður
þetta svo að þegar viðskiptavinur í
vildarklúbbi kemur inn í verslun fær
hann í símann sinn áminningu um
inneignina sína, hvort sem það er í
gegnum gjafakort, inneignarnótu eða
vildarklúbb.“
Flýtir afgreiðslu
pantana á netinu
Í áðurnefndri og væntanlegri nýrri
verslun Steinars Waage verða einnig
höfuðstöðvar netverslunar S4S sem
mun flýta allri afgreiðslu netpantana.
Þá er verið að taka í gagnið nýtt
birgðakerfi, en netverslanir S4S leita
sjálfvirkt í 17 vörulagerum eftir
ákveðnu ferli.
„Verslunarhættir breytast hratt
og netsala verður æ stærri þáttur í
okkar rekstri,“ segir Freyja Leó-
poldsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
S4S. Hún segir breyttar aðstæður
vegna kórónuveirunnar hafa skapað
svigrúm og gefið tilefni til endurskoð-
unar á ýmsum áherslum fyrir-
tækisins. Verið sé að uppfæra heima-
síður, nýtt birgðakerfi hafi verið
tekið í notkun, skerpt hafi verið á sér-
stöðu einstakra verslana og meiri
kraftur settur í netsölu. Fyrrgreind
breyting á inneignarkortunum sé
sömuleiðis hluti þessara breytinga.
„S4S hefur stækkað mikið að
undanförnu. Netverslanir okkar efld-
ust mikið í fyrra, í hörðum samkomu-
takmörkunum. Við byggjum á góðum
grunni netverslunar þegar verslanir
lokuðu tímabundið en þurftum að
endurskipuleggja öll markaðsmál
okkar miðað við aðstæður. Við sett-
um í fimmta gír, settum alla áherslu á
netverslanir sem skilaði sér vel í sölu-
aukningu. Velta netverslunar hjá
samstæðunni næstum þrefaldaðist
miðað við árið á undan og starfsfólki
sem sinnir netverslun var fjölgað.
Markmið okkar er að viðskiptavinir á
höfuðborgarsvæðinu geti ávallt feng-
ið pantanirnar sínar afhentar sam-
dægurs. Með öllum þeim breytingum
sem við erum búin að gera og erum
að vinna að mun þessi þjónusta
aukast enn frekar,“ segir Freyja enn
fremur.
Með aukinni netverslun ætlast við-
skipavinurinn til þess að fá vörurnar
samdægurs og óskar eftir að fá þær
sendar, að sögn Péturs Þórs.
Verslanir uppfærðar
„Póstbox og eða að fá vörur sendar
á vinnustað eða á afgreiðslustaði nær
heimili er vinsæl þjónusta, því bjóð-
um við upp á allmarga valkosti til að
fá vörurnar afhentar. Sækja í versl-
un, fá sent með Póstinum, heimsent
upp að dyrum eða afhent með Dropp
á næsta afhendingarstað er allt í boði
hjá okkur,“ segir Pétur Þór og bætir
við að framtíðarsýnin sé að afhenda
vörur á 2-3 klukkustundum eftir
pöntun á hefðbundnum vinnutíma.
Samhliða þróun á rafrænu gjafa-
kortunum og að koma þeim í snjall-
tækin hafa fleiri breytingar verið
gerðar hjá S4S.
„Við erum að uppfæra allar net-
verslanir okkar og erum að vinna
þær frá grunni. Síðurnar verða
notendavænni og byggjast á nýjustu
tækni en það var kominn tími til að
uppfæra bæði útlit og tækni, sem og
auka hraða,“ segir Pétur Þór. „Þá var
Ellingsen í Reykjavík tekin í gegn í
byrjun síðasta árs, Rafhjólasetrið
byggt upp og endurraðað, málað og
sett ný lýsing í allt rýmið. Ný verslun
Ellingsen á Akureyri er einnig í
vinnslu og verður opnuð á nýjum
framtíðarstað í haust. Þá fórum við í
breytingu á Steinari Waage í Kringl-
unni á dögunum.“
Selt úr kössunum
Eldgosið í Geldingadölum hefur
aukið útivistaráhuga landans svo um
munar og margir hafa fyrir göngu að
gosinu þurft að kaupa sér útbúnað
sem þarf.
„Áður en lagt hefur verið upp í
gönguferðir í Geldingadali hafa
margir komið við til að kaupa til
dæmis gönguskó, skjólfatnað, höf-
uðljós, mannbrodda, stafi og fleira
slíkt sem þarf. Salan að undanförnu
hefur verið slík að vörur hafa verið
seldar beint upp úr kössunum og
margt að verða uppselt á landinu,“
segir Pétur Þór sem undirstrikar að
Ellingsen sé alhliða útivistarverslun
fjölskyldunnar.
Inneignir og gjafakort í símann
- Nýmæli hjá S4S - 17 verslanir - Hröð þróun - Skór og útivistarvörur - Viðskipti á netinu eru í
hröðum vexti - Dropp heim að dyrum - Áherslur í endurskoðun - Eldgosið aukið útivistaráhuga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tækni Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S, og Freyja Leópoldsdóttir markaðsstjóri hér stödd í verslun Ellingsen við Fiskislóð í Reykjavík og með snjall-
símana á lofti. Nýr hugbúnaður gerir viðskiptavinum mögulegt að sjá inneign sína hjá fyrirtækinu, sem rekur á annan tug skó- og útvistarbúða.
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
Bílaríkið
Akureyri
Lónsbakka
Sími: 461 3636
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
t
e
x
t
a
-
o
g
m
y
n
d
a
b
re
n
g
l.
Elskar íslenskar aðstæður
Komdu og sjáðu Korando. Hér er á ferðinni
ótrúlega vel heppnaður sportjeppi sem er
eins og sérhannaður fyrir Ísland.
+ 163 hestöfl / 280 Nm
+ 2WD eða 4WD
+ Hægt að læsa millikassa í 4WD
Verð frá: 4.390.000 kr.
Fimm ára
ábyrgð