Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 22

Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Ágúst Ingi Jónsson Sigurður Bogi Sævarsson Eldgosið í grennd við Fagradalsfjall er í landi Hrauns við Grindavík, en mikla sögu er að finna á þessum slóð- um. Á árum síðari heimsstyrjald- arinnar fórust nokkrar flugvélar bandamanna í fjöllum Reykjanes- skagans, ekki langt frá þar sem nú gýs. Við ströndina hafa orðið mörg sorgleg sjóslys, en mikil björgunar- afrek líka verið unnin. Þá má nefna að Magnús Hafliðason, útvegsbóndi á Hrauni, fann þar bjarghring úr danska Grænlandsfarinu Hans Hed- toft í október 1959, rúmum átta mán- uðum eftir að skipið fórst með allri áhöfn undan Hvarfi, suðurodda Grænlands. Varð frægur á einum degi Mynd Ólafs K. Magnússonar ljós- myndara af Magnúsi bónda með bjarghringinn var á forsíðu Morg- unblaðsins 9. október 1959 og önnur mynd á baksíðunni ásamt frétt Elínar Pálmadóttur blaðamanns um fund- inn. Hringurinn er hið eina úr skipinu sem hefur fundist svo óyggjandi sé og vakti fréttin mikla athygli, bæði hér heima en einkum þó í Danmörku. Þar birtist myndin á forsíðum helstu blaða, svo sem yfir þvera forsíðu Berlingske Tidende. Aðrir fjölmiðlar, víða um lönd fylgdu í kjölfarið og Magnús „varð frægur á öllum Norðurlöndum á ein- um degi,“ eins og sagði í Morgun- blaðinu nokkrum árum síðar. Bjarg- hringurinn er varðveittur í kirkjunni í Qaqortoq eða Julianehåb, en þar var síðasti viðkomustaður skipsins. Glampaði á eitthvað hvítt Í frétt Morgunblaðsins segir svo meðal annars: „Er Magnús Hafliða- son bóndi á Hrauni, sem er austasti bær í Þórkötlustaðahverfi í Grinda- vík, kom út á miðvikudagsmorgun og niður á tún, sá hann hvar glampaði á eitthvað hvítt úti í fjörunni. Um nótt- ina hafði verið mikið rok á suðaustan og brim, en um morguninn var komið logn. Gekk hann út með fjörunni og fann óskemmdan bjarghring uppi í malarkambinum. Tók hann hringinn heim með sér og um kvöldið hafði hann orð á því við Árna Eiríksson, bílstjóra á áætlunarbíl Grindvíkinga, að hann hefði fundið hring merktan Köbenhavn. Árni athugaði hringinn nánar og sá að hann var af Hans Hed- toft. Er hann kom til Reykjavíkur í gær gerði hann Henry Hálfdánarsyni, framkvæmdastjóra Slysavarna- félagsins, aðvart. Hringdi Henry til Magnúsar bónda og bað hann um að halda á hringnum með sér er hann kæmi næst í bæinn.“ Konunglega grænlenska versl- unarfélagið hafði látið smíða Hans Hedtoft og var skipið í jómfrúarferð sinni. Um borð í Hans Hedtoft voru 95 manns; 55 farþegar auk áhafnar, fiskafurðir og póstur. Einnig mikið af skjölum úr grænlenska þjóðskjala- safninu, gögn og heimildir um sögu lands og þjóðar. Ljót aðkoma Magnús Hafliðason var fæddur á Hrauni 21. nóvember 1891 og lést 17. desember 1983, 92 ára að aldri. Sjó- inn sótti hann allt fram á efri ár, en Magnús var meðal annars þekktur fyrir sjómennsku og björgunarstörf. Magnús var vel kunnugur svæðinu í nágrenni við Hraun. Í Morgunblað- inu í desember 1963 er að finna sam- tal Matthíasar Johannessen ritstjóra og Magnúsar sem þeir áttu er þeir fóru saman til rjúpna. Fyrirsögn greinarinnar er: „Í stríði á Fagra- dalsfjalli“ og þar segir meðal annars: „Ég var hættur að spyrja um rjúp- una, hún skipti ekki lengur máli. „Þessi fjöll eru banaþúfa margra vaskra drengja,“ sagði hann þegar upp var komið. „Nú hvers vegna?“ spurði ég. „Í vesturslakka Kastsins fórst flug- vél Andrews, yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Evrópu, í stríðinu. Ég kom ekki að flakinu fyrr en nokkru síðar. Í norðausturhorni Fagradalsfjalls, þar sem heitir Langhóll, fórst enskur flugbátur í stríðinu. Þangað hef ég síðar komið og skotið rjúpur í flakinu. Ekki hef ég orðið var við annað kvikt á þessum slysastöðum. Og hérna suðuraf heitir Langi- hryggur og gengur út úr Borgarfjalli, þar fórst enn ein flugvélin í stríðinu. Ég var með þeim fyrstu sem komu á staðinn. Það var ljót aðkoma. Það var eins og fjöllin hefðu gengið í lið með Þjóðverjunum og líkast því að þau hafi gert gyllingar til að ná sem flest- um flugvélum bandamanna. En nú er farið að fyrnast yfir þessa atburði.“ Katlar á hverju strái Fleiri örnefni bar á góma í samtali þeirra Magnúsar og Matthíasar; Borgarhraun, Húsafell, Fiskidals- fjall, Tryppalágar, Þorbjörn, Fagra- dalsfjall og eldsumbrot fyrri tíma voru ekki langt undan: „Leiðin yfir hraunið er sæmilega greiðfær — og þó. Magnús stanzar, litast um og segir: „Þetta er nú heldur tuðrótt leið, hér hafa goðin einhvern tíma reiðzt.“ Pikkaði svo með prikinu í grænan mosann og leitaði að sprungu. „Þær liggja allar frá útsuðri í landnorður,“ sagði hann, „það eru meiri katlarnir, sem hér eru á hverju strái. Allt hefur þetta land logað á sinni tíð. Sagnir eru meira að segja til um eldsumbrot á þessum slóðum eftir landnámsöld. Þegar snjór liggur yfir hrauninu, er víðast hvar autt yfir hol- unum af trekki og hlýju sem kemur neðan frá. Undir Reykjanesinu er ekkert nema holrúm og eldur, og þar hafa kyndararnir líklega nóg að gera. Þið ættuð að sjá eldgígina við Tófu- brunna og Latshóla, ef þar er ekki eitthvað óhreint undir veit ég ekki hvar það ætti að vera. Og ég hef oft séð hvernig húðar yfir holurnar hér í hrauninu af þunnum vatnsklaka. Fyr- ir norðan Þorbjörn rýkur úr jörð, þar eru hverir. Hér rýkur þó ekki. Bezt gæti ég trúað því, að Surtur kæmi ekki að sunnan, heldur héðan að ofan. Hann hefur bara haft sig upp þarna suður frá í þetta sinn,“ segir m.a. í samtali Magnúsar og Matthíasar. „Banaþúfa margra vaskra drengja“ - Mikil saga í landi Hrauns við Grindavík - Flugvél Andrews yfirhershöfðingja fórst í Kastinu - Björgunarhringur af Hans Hedtoft - Eldsumbrot og „þar hafa kyndararnir líklega nóg að gera“ Morgunblaðið/Ól. K. M. Það eina sem fannst Magnús Hafliðason með bjarghringinn af Hans Hedtoft, sem rak á Hrauni 7. október 1959. Rúmum átta mánuðum áður sigldi skipið á ísjaka í jómfrúarferðinni og sökk undan Hvarfi, 95 manns fórust. Húsafell GRINDAVÍK Þorbjörn Fiskidalsfjall Fagradalsfjall Eldgos í Geldingadölum og ofan Meradala Langhóll Borgarfjall Langihryggur Hraun Kastið Latshólar Tófubruni Þórkötlu- staðahverfi Fagradalsfjall og nágrenni Keilir Borgarhraun Ljósmynd/Svavar Hjaltested Á slysstað Bandaríska sprengjuflugvélin „Hot Stuff“ fórst 3. maí 1943 á Kasti við Fagradalsfjalli. 14 menn fórust, en stélskytta vélarinnar komst ein lífs af. Meðal þeirra sem týndu lífi var hershöfðinginn Frank M. Andrews, sem á þeim tíma var yfirmaður alls herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Kíktu til okkar í góðan mat og notalegt andrúmsloft Borðapantanir á www.matarkjallarinn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.