Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 23

Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aðeins níu bændur voru tilbúnir að selja mjólkurkvóta á nýloknum til- boðsmarkaði fyrir greiðslumark í mjólk en 188 vildu bæta við sig kvóta. Eftirspurn var eftir samtals rúmlega níu milljónum lítra. Fram- boðið réð og skiptu aðeins 664 þús- und lítrar um hendur og því kom lítið í hlut hvers kaupanda. Tilboðsmarkaður með greiðslu- mark í mjólk var settur á fót til þess að skapa grundvöll fyrir bændur til að selja eða kaupa framleiðslurétt. Engin viðskipti mega fara fram utan markaðarins. Landbúnaðarráðherra hefur sett hámarksverð, þrefalt af- urðastöðvaverð á mjólkurlítra, 294 kr. Er það verðið sem flestir miða við í tilboðum sínum, jafnt áhugasamir kaupendur sem seljendur. Reglan um að þrefalt verð mjólkurlítrans til bænda verði hámarkið gildir út árið 2023. Vilja halda áfram að framleiða Margrét Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúa- bænda, telur ekki að tilboðsmarkað- urinn hafi misheppnast þótt lítið framboð sé af kvóta. Bendir hún á að á síðasta markaðsdegi, 1. nóvember, hafi tæplega tvær milljónir lítra selst sem sé næstmesta sala á einum markaði frá upphafi. Hún bendir á að framboð á greiðslumarki velti á því hvort einhverjir bændur séu að draga úr framleiðslu. Ekki megi líta á það sem neikvæðar fréttir ef menn vilji halda áfram framleiðslu. Það geti verið til marks um ágætt gengi í greininni. Eins og sést á meðfylgjandi grafi hefur eftirspurn eftir mjólkurkvóta verið margfalt meiri en framboðið frá því tilboðsmarkaður með greiðslumark var fyrst settur upp árið 2010. Viðskipti sem hafa orðið eru aðeins tæplega 8% af eftirspurn- inni. Þess verður þó að geta að hol- skefla kauptilboða á nóvembermark- aði árið 2018 hefur mikil áhrif á meðaltöl. Sáralítið boðið fram af mjólkurkvóta - Níu vildu selja en 188 gerðu kauptilboð á tilboðsmarkaði Viðskipti með greiðslumark mjólkur Eftirspurn Framboð Viðskipti 1. des. 2010 til 1. apríl 2021 2.289.445 27.040 17.898 Meðaltal 73.853 872 577 1. apríl 2021 9.157 664 664 Eftirspurn: 9.157.000 lítrar Framboð: 664.000 lítrar Þúsundir lítra Morgunblaðið/Eggert Tvær eins Kýrnar mjólka alla daga, hvað sem líður stöðu kvóta búsins. Aðstandendur sýningarinnar Fugla hugans, sem nú stendur yfir í versl- unarmiðstöðinni Kringlunni, af- hentu Parkinsonsamtökunum 6 milljóna króna styrk í gær. Verður fénu varið í uppbyggingu Parkinsonseturs, sem á að opna í lok ársins í nýju húsnæði samtak- anna í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafn- arfirði. Að sýningunni Fuglar hugans standa Bjarni Hafþór Helgason tón- listarmaður og Ingvar Þór Gylfason listmálari. Á sýningunni er að finna 12 málverk sem Ingvar málaði við tónlist af Fuglum hugans sem Bjarni Hafþór samdi en auk þess voru myndbönd gerð við öll verkin. Egill Ásdísarson og Vilborg Jóns- dóttir veittu ávísuninni viðtöku. Eg- ill greindist með parkinsonsjúkdóm- inn fyrir 8 árum þegar hann var 22 ára gamall en Egill er með þeim yngstu sem hafa greinst með sjúk- dóminn á Íslandi. Kostnaður við sýninguna er greiddur af Bjarna Hafþóri og Ingv- ar Þór gefur andvirði málverkanna. Síðasti sýningardagurinn í Kringl- unni verður sunnudaginn 11. apríl en nú er einnig hægt að skoða Fugla hugans í sýndarveruleika á veraldarvefnum. Gestir fá heyrnar- tól og geta hlustað á lögin, fylgst með sköpun málverkanna og horft á sérhannaðan dans Kötu Vignis. Morgunblaðið/Árni Sæberg Styrkur afhentur Bjarni Dagur Jónsson, Ingvar Þór Gylfason, Egill Ásdís- arson og Vilborg Jónsdóttir þegar styrkurinn var afhentur í gær. Parkinsonsamtök- in fengu styrk - Fénu varið til Parkinsonseturs Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. Áratug a reynsl a

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.