Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Grænlenski vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit (IA) fór með sigur af hólmi í þingkosningunum á Græn- landi, hlaut 36,6% atkvæða, en kosið var í fyrradag, þriðjudag. Umhverf- ismál voru helstu kosningamál hans, þar á meðal var IA andvígur um- deildri og umfangsmikilli náma- vinnslu syðst í landinu þar sem verð- mæt sjaldgæf jarðefni er að finna. Var IA vel á undan Sioumut í talning- unni, krataflokki sem verið hefur ráð- andi og ríkjandi í grænlenskum stjórnmálum allar götur frá því Grænlendingar fengu heimastjórn frá Dönum árið 1979. Kosningarnar voru í raun þjóðar- atkvæði um námavinnsluverkefnið í Kuannersuit-jarðlögunum sem sagt var að myndi leiða til fjölbreyttara at- hafnalífs í landinu og dreifðari tekju- stofna. Talsmenn vinnslunnar báru fyrir sig nauðsyn verkefnisins er landsmenn byggju sig undir breytta tíma samfara hlýnun andrúmslofts- ins. Skipti sköpum að treysta undir- stöður ríkissjóðsins í Nuuk ef Græn- lendingar ætluðu að öðlast fullt sjálfstæði frá Dönum. IA var í stjórnarandstöðu á nýliðnu kjörtímabili en atkvæðatölur benda til að flokkurinn fái 12 þingmenn af 31 á heimaþinginu (Inatsisartut). Eru það helmingi fleiri sæti en á fráfar- andi þingi er þeir voru átta. En án hreins meirihluta þykir líklegast að IA taki höndum saman við minni flokka um myndun samsteypu- stjórnar. „Þjóðin hefur sagt sitt,“ sagði hinn 34 ára gamli leiðtogi IA, Mute Egede, á fésbókarsíðu snemma í gærmorg- un. „Traustið sem þið berið til okkar skyldar okkur til að sýna mikla ábyrgð og munum við gera allt til að standa undir henni,“ bætti hann við. Egede hafði verið liðsmaður græn- flokksins Inatsisartut frá 2015 og tók við forystu hans fyrir röskum tveim- ur árum. „Kannski er ég ungur, en það er líka styrkur minn,“ sagði hann við grænlenska útvarpið KNR í gær. Þetta er í aðeins annað sinn sem flokkur hans hefur betur en Siumut í kosningum. Fyrra skiptið var árið 2009. Egede sagði útvarpinu að þegar í stað myndi hann hefja viðræður við flokkana og kanna „mismunandi sam- starfsform“ áður en gengið yrði til formlegra stjórnarmyndunar- viðræðna. Siumut fór fyrir stjórninni sem nú varð undir en flokkurinn hefur að hluta til skaðast af innanflokkserjum og átökum undanfarin ár. Hann fékk 29,4% atkvæða og 10 menn kjörna. Var það engu að síður stærri skerfur (2%) en í síðustu kosningum, árið 2018. Á kjörskrá nú voru 41.000 manns og greiddu 27.000 atkvæði, eða 65,8%. Það sem skildi stóru flokkana tvo fyrst og fremst af var hvort heimila bæri umdeilda risavinnslu fágætra jarðefna og úrans í hinu 56.000 manna landi. Eru áform þau í um- hverfismati sem stendur. Talið er að Kuannersuit-jarðlögin geymi einhver efnismestu steinefnalög sem vitað hefur verið um á jörðinni. Fágætu jarðlögin geyma 17 málma sem brúk- aðir eru í allt frá snjallsímum til raf- bíla og vopna. Hefur IA krafist þess að úranvinnslan verði stöðvuð með lögum en slíkt mundi í raun binda enda á verkefnið. Umhverfið framar hagkerfinu „Skilaboð kjósenda voru skýr; þeir vilja ekki fórna umhverfinu í þágu hagkerfisins,“ sagði Mikaa Mered, prófessor í fræðigrein sem snýst um samspil stjórnmálafræði og landa- fræði við Sciences Po-háskólann í París. IA hefur að auki heitið því að skrifa undir Parísarsamkomulagið frá 2015 en Grænland er eitt örfárra landa sem ekki hafa staðfest það. Skoðanakönnun sem birt var í blaðinu Sermitsiaq annan í páskum sýndi að 63% þjóðarinnar eru andvíg námavinnslunni fyrirhuguðu en að- eins 29% sögðust vera andvíg náma- greftri yfirhöfuð. Hefur vinnslan ver- ið hitamál. „Ég kýs flokk sem lýsir andstöðu við úraníum,“ sagði hinn fertugi Henrik Jensen við AFP er hann kom út úr kjörklefanum í Nuuk. „Heilbrigðismálin eru mikilvæg- ust. Það er vitað mál að námaverk- efnin munu hafa áhrif í umhverfinu,“ sagði Egede sl. mánudagskvöld, í síð- ustu kappræðum flokkanna vegna kosninganna í sjónvarpinu. Ágreiningur um Kuannersuit- vinnsluna leiddi til skyndikosninga á Grænlandi eftir að einn af smærri samstarfsflokkunum yfirgaf sam- steypustjórn Siumut. Flokksformaður Siumut, Erik Jen- sen, segir að náman skipti „gríðar- lega miklu máli fyrir efnahagslíf Grænlands og með henni myndu tekjustofnar ríkisins verða fjölbreytt- ari. Það væri lykilatriði ætluðu Græn- lendingar að heimta fullt sjálfstæði af Dönum. Andstæðingar vinnslunnar í Kuan- nersuit segja að hún feli í sér of margar umhverfislegar hættur, muni meðal annars skilja eftir sig geisla- virkan úrgang. Að námuvinnslunni á Grænlandi stendur ástralska málm- leitarfélagið Greenland Minerals sem er í eigu Kínverja. Frá 2009 hafa Grænlendingar farið alfarið sjálfir með yfirráð yfir auð- lindum sínum. Þurfa þeir engu að síð- ur að treysta á um 526 milljóna fjár- hagsaðstoð frá Kaupmannahöfn á ári til að fjármagna sem svarar þriðjungi útgjalda ríkissjóðs. Danir eru ekki andvígir sjálfstæði Grænlendinga en í þeirra höndum eru áfram utanríkis- og varnarmál landsins víðfeðma. Því leitar heimastjórnin í Nuuk leiða til að finna fjölbreyttari tekjustofna svo sem með auknum sjálfbærum fisk- veiðum, ferðaþjónustu og landbúnaði. Hefðbundnar fiskveiðar skila um 90% útflutningstekna Grænlands. Hern- aðarlega mikilvæg lega landsins og víðtækar og miklar auðlindir í jörðu hafa vakið alþjóðlega athygli. Í snjókomunni í Nuuk í fyrradag myndaðist biðröð við kjörstað. Deilt var út andlitsgrímum í sóttvarna- skyni en kórónuveiran hefur lítillega stungið sér niður á Grænlandi. Þeir hafa sloppið við manntjón af hennar völdum en staðfest hefur verið sýking í 31 manni. En það er ekki bara námavinnsla sem var undir í kosning- unum. Yngra fólk hefur ræktað ræt- ur sínar í auknum mæli og snúið um- ræðunni um arfinn af nýlendustefnu Dana, félagsmál og menningar- einkenni. Tekist á um fágæt jarðefni - Talið er að Kuannersuit-jarðlögin geymi einhver efnismestu steinefnalög sem vitað hefur verið um á jörðinni - Fágætu jarðefnin eru notuð í allt frá snjallsímum til rafbíla og vopna AFP Sigri fagnað Stuðningsmenn Inuit Ataqatigiit fagna fyrstu kosningatölum. AFP Talning Atkvæði talin í höfuðstaðnum Nuuk. Kjörsókn var tæplega 66%. X SKECHERS Uno - Loving love Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 / 2 Litir Uno - Spread the love Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 Poppy - Dripping love Verð: 7.995.- Stærðir: 36 - 41 Bobs - Down with love Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 / 2 Litir SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS SKECHERS Ráðamenn í Brussel kunnu ekki að meta diplómatíska lítilsvirðingu í garð Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, er hún hugðist setjast nið- ur til viðræðna við Erdogan Tyrk- landsforseta í Ankara. Erdogan bauð von der Leyen ekki til sætis í forsetahöllinni, aðeins voru þar stólar fyrir hann og Char- les Michel, formann ráðherraráðs ESB. Von der Leyen ræskti sig til að gera vart við sig og myndskeið frá móttökunni sýndi að hún var slegin út af laginu. Á endanum sett- ist hún í sófa lengra frá fyrirmenn- unum og gegnt tyrkneska utanríkis- ráðherranum sem er lægra settur í goggunarröð hins diplómatíska met- orðastiga. Gagnrýna Tyrki Axarskaft Tyrkja, sem áður en varði var nefnt „sófagate“ í netheim- um, átti sér stað þegar fulltrúar Brusselstjórnarinnar voru mættir til Ankara til að reyna að lappa upp á sambúðina við Tyrki, þrátt fyrir áhyggjur af réttindabrotum í Tyrk- landi, ekki síst gagnvart konum. ESB mislíkaði er Erdogan dró Tyrkja út úr alþjóðasáttmála um varnir gegn ofbeldi gagnvart konum og börnum. Eftir fundinn sagði von der Leyen að mannréttindi væru ekki samningsatriði. „Ég hef þungar áhyggjur af úr- sögn Tyrkja úr Istanbúlsáttmál- anum. Hann snýst um að vernda konur og vernda börn gegn ofbeldi. Því var þessi ákvörðun kolröng.“ agas@mbl.is AFP Beðið eftir sæti Ursula von der Leyen bíður eftir því að vera boðið til sætis, sem aldrei gerðist. Þeir Erdogan (t.h.) og Charles Michel eru sestir. Reiði vegna „sófagate“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.