Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 31

Morgunblaðið - 08.04.2021, Page 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Hafnarfjörður Kvöldsólin getur verið falleg, ekki bara yfir eldgosinu heldur einnig yfir Hafnarfjarðarhöfn og skipunum þar. Eggert Í stjórnarskrá okk- ar er kveðið svo á að engan megi svipta frelsi nema sam- kvæmt heimild í lög- um. Þar er síðan að finna frekari ákvæði um réttarstöðu manna gagnvart frelsisskerð- ingum, m.a. um rétt til að leita til dómstóla vegna hennar. Fyrir liggur að ís- lensk stjórnvöld hafa að undanförnu beitt íslenska ríkisborgara því valdi að meina þeim að fara heim til sín til að „afplána“ sóttkví þar, en skipa þeim þess í stað að vistast í „sóttvarna- húsi“ þann tíma sem sóttkví varir. Nokkrir borgarar hafa ekki viljað una þessu möglunarlaust og hafa þeir því borið þessa valdbeitingu undir dómstóla. Þar hafa fengist þær niðurstöður að þetta ofbeldi standist ekki fyrrgreinda meginreglu. Aðrir Íslendingar ættu að fagna því að einstakir samborgarar þeirra skuli ekki sitja þegjandi undir þessari valdbeitingu og kalla eftir dómsúrlausnum um að hún standist ekki. Við ættum síðan einnig að fagna niðurstöðunum, því þær byggjast á því að hér séu að minnsta kosti að einhverju leyti í gildi raunveruleg borgaraleg frelsisréttindi sem snerta grundvöll stjórnskipunar okkar. Ekki geri ég lítið úr því að gera þurfi ráðstaf- anir til að hemja veiruskrattann. En menn mega ekki missa stjórn á hugsunum sínum af því tilefni. Svo hefur nú brugðið við að hávaðasamar raddir hafa ekki bara veist að þeim einstaklingum sem hafa staðið vaktina í þessu heldur einnig að lög- mönnum þeirra persónulega. Í hópi þeirra sem svona hafa talað er að finna ýmsa sem fram til þessa hafa viljað láta líta á sig sem frjálshuga borgara, sem vilji andæfa ofríki stjórnvalda, þegar við á. Það er eins og veiran hafi heltekið þá. Hvað ætla þeir að gera við prinsippið um frelsi þegar á að beita þá frelsissviptingum vegna stjórnmála- skoðana eins og gert er um víða veröldina? Kannski þeir telji að skoðanafrelsi sé bundið við „réttar“ skoðanir. Stundum er þessi blinda kölluð „að sjá ekki skóginn fyrir trjánum“. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Hvað ætla þeir að gera við prinsippið um frelsi þegar á að beita þá frelsissvipt- ingum vegna stjórnmálaskoð- ana eins og gert er um víða veröldina? Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Að sjá ekki skóginn fyrir trjánum Gervigreind er sú teg- und greindar sem léð er vélum og er ólík mann- legri greind að því leyti að hún sýnir hvorki til- finningar né vitund. Hún er notuð til að fela vélum að leysa ýmiss konar verkefni með sjálf- stæðum hætti. Þegar fjallað er um gervigreind skal forðast að draga áætlanir um getu hennar út frá getu mannlegrar greindar. Ný- lega tilkynntu stjórnvöld að móta ætti opinbera stefnu um gervigreind á Íslandi. Þeir sem til þekkja vita að það er bæði mikilvægt og tímabært. Óskað var eftir umsögnum í sam- ráðsgátt stjórnvalda. Um málefnið segir þar: „Nú er í vinnslu stefna Ís- lands um gervigreind. Lýðræðislegar reglur verða að ráða því hvernig gervigreind er notuð og tryggja verð- ur öllum jafnan rétt til að móta þjóð- félag framtíðarinnar. Með það að leið- arljósi eru hér settar fram til samráðs þær grundvallarspurn- ingar sem stefna Ís- lands um gervigreind mun fást við og jafn- framt fyrstu hug- myndir um upplegg og áherslu stefnunnar.“ Álitamál sem tengj- ast gervigreind Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) fagnar því að fá tækifæri til að koma ábendingum á framfæri varðandi þetta mikilvæga mál- efni. Í uppleggi að stefnunni er komið inn á samfélags- og siðferðisleg álita- mál sem tengjast gervigreind. VFÍ telur að aðgæta þurfi sérstaklega eft- irfarandi atriði: - Leggja verður áherslu á að per- sónuverndar sé gætt á öllum stigum við þróun gervigreindarlausna. - Mikilvægt er að huga vel að menntun og fræðslu um gervigreind. - Meta þarf áhrif gervigreindar á íslenskt atvinnulíf, m.a. þær breyt- ingar á störfum fólks sem munu fylgja gervigreind. Upplegg stefnunnar ber þess merki að lítið samráð hefur enn verið haft við atvinnulífið og aðila sem vinna að þróun gervigreindarlausna. Mikilvægt er að greina hlutverk gervigreindar til framtíðar og skýra hvaða gildi (t.d. um persónuvernd) skuli höfð að leiðarljósi. Erfitt getur reynst að tryggja að þau gildi, sem ákveðið verður að halda eigi í heiðri, verði höfð í háveg- um þegar kemur að innleiðingu er- lendra tæknilausna. Þar má t.d. nefna samfélagsmiðla, vefverslanir, streymisveitur og fréttamiðla. Um hlutverk gervigreindar í íslensku samfélagi er m.a. hvatt til þess að Ís- land setji sér markmið um að vera í fremstu röð þegar kemur að sérþekk- ingu á sviði gervigreindar. Einnig að gervigreind verði notuð til að bæta kennslu á öllum skólastigum. Sér í lagi til að veita nemendum betri og hraðari endurgjöf. Markmiðið með þessu er að auðveldara verði að þróa einstaklingsmiðaðra nám. Hvað varðar atvinnulífið og hvað þurfi til svo það geti að fullu nýtt gervigreind er í umsögn VFÍ bent á mörg atriði. Má t.d. nefna að auka verði framboð af námskeiðum fyrir tæknimenntað fólk og efla verulega rannsóknir á þessu sviði. Styðja þurfi við sprotafyrirtæki með auknu fjár- magni í Tækniþróunarsjóð sem verði eyrnamerkt gervigreindarlausnum. Með skattaafslætti megi laða til landsins erlenda sérfræðinga sem eru ein forsenda þess að hægt verði að byggja upp þekkingu á þessu sviði á skömmum tíma. Þá er uppbygging rannsóknarinnviða nauðsynleg en kostnaður rannsóknarhópa og sprotafyrirtækja við að þjálfa gervi- greindarlíkön er umtalsverður. Setja mætti fjármagn í að opna gögn sem nota má við þróun gervigreindar- lausna. Dæmi um slíkt eru sérsmíð- aðar málheildir fyrir íslensku. Skort- ur á málheildum er ein af ástæðum þess að ekki er hægt að þróa gervi- greindarlausnir fyrir íslensku með sama hraða og fyrir t.d. ensku. Gagnrýnin hugsun er mikilvæg Hér hefur verið stiklað á stóru í umsögn VFÍ um málefni sem varðar okkur öll. Við megum ekki líta fram hjá því að við notum tækni æ meira í daglegu lífi. Við stöndum frammi fyr- ir fjórðu iðnbyltingunni þar sem sjálf- virkni og gervigreind mun hafa af- gerandi áhrif á allt okkar líf. Þetta sjáum við nú þegar í því hvernig gervigreind er notuð til að dreifa fals- fréttum á samfélagsmiðlum. Skiln- ingur á tækninni er orðinn horn- steinn í upplýstri lýðræðisþátttöku borgaranna. Einnig má nefna notkun gervigreindar í heilbrigðiskerfinu hvort sem það er við greiningu sjúk- dóma eða gerð spálíkana um líkam- lega og andlega sjúkdóma. Það verð- ur því sífellt mikilvægara að geta tekið á móti upplýsingum með gagn- rýninni hugsun sem byggir á grund- vallarþekkingu á náttúruvísindum og tækni. VFÍ á aðild að norrænum sam- tökum verkfræðinga, ANE (Associa- tion of Nordic Engineers). Samtökin hafa innan sinna vébanda 500 þúsund verk- og tæknifræðinga. Á sl. árum hefur ANE lagt mikla vinnu í að móta stefnu og gera tillögur sem varða sið- ferði og gervigreind. Í umsögn VFÍ er vísað til þessara tillagna. Þeim sem vilja kynna sér umsagnir Verkfræð- ingafélags Íslands og ítarefni frá ANE er bent á vef félagsins: www.vfi.is Eftir Svönu Helen Björnsdóttur » Skilningur á gervi- greind er orðinn horn- steinn í upplýstri lýðræð- isþátttöku borgaranna. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er formaður Verkfræðingafélags Íslands. Mótun stefnu um gervigreind Margir héldu eflaust að um snemmbúið aprílgabb væri að ræða þegar greint var frá því á síðasta degi marsmánaðar að þingflokkur Viðreisnar hefði lagt fram til- lögu til þingsályktunar um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Ein helsta hindrunin í vegi þeirra sem ekkert þrá heitar en inngöngu Íslands í tolla- bandalag Evrópusambands- ins með fullri aðild að sambandinu er samn- ingurinn um evrópska efnahagssvæðið sem þjónað hefur hagsmunum Íslands ákaflega vel í ríflega aldarfjórðung. Kostur EES- samningsins fyrir okkur Íslendinga felst ekki síst í því að hann tekur til þess kjarna í sam- starfi Evrópusambandsríkjanna sem lýtur að frjálsum viðskiptum með vörur, þjónustu og fjármagn, sem og frjálsri för fólks, en bindur ekki hendur okkar þegar kemur að öðrum samstarfssviðum ESB. Ef EES-samningsins nyti ekki við ættu sjónarmið þeirra sem ólmir vilja inn í tollabandalagið greiðari leið að ís- lensku þjóðinni. Og það er einmitt ástæðan fyrir því að ESB-sinnar hér á landi hafa með þaulskipulögðum hætti reynt að grafa undan EES-samningnum á undanförnum árum. Aðeins um aukaaðildina Skýrasta dæmið um rangfærslur í þessu skyni eru linnulausar fullyrðingar um að við Íslendingar innleiðum 80-90 prósent af löggjöf Evrópusambandsins og því gætum við allt eins verið í Evrópusambandinu og haft þá „bein áhrif“ á mótun löggjafarinnar. Nýjasta útfærslan af þessari röksemd er kölluð „auka- aðild að Evrópusambandinu“ í greinargerð sem fylgir aprílgabbi Viðreisnar. Það vill þannig til að á fyrsta ári mínu sem utanríkis- ráðherra létum við gera úttekt á þessu. Hún leiddi svart á hvítu í ljós að frá gildistöku samningsins árið 1994 og til ársloka 2016 þurftum við Íslendingar að innleiða 13,4% þess sem Evrópusambandið samþykkti á sama tímabili. Þetta hlutfall hefur lítið breyst á síðustu fimm árum. Því hefur einnig verið haldið fram að undir EES-samninginn falli öll helstu málefnasvið ESB og við séum því eins og áhrifalaust aðildarríki að sambandinu. Þetta er líka full- komlega rangt. Mestu skiptir fyrir okkur að við erum ekki hluti af sam- eiginlegu sjávarútvegsstefnunni sem enginn getur lengur mælt bót. Þar fyrir utan erum við laus við stefnu ESB þegar kemur að land- búnaði/dreifbýlisþróun, skattamálum, gjald- miðilssamstarfi, byggðastefnu, réttarvörslu, dóms- og innanríkismálum, tollabandalagi, ut- anríkistengslum, öryggis- og varnarmálum, fjárhagslegu eftirliti, framlagsmálum og stofnunum. Af 34 köflum ESB-löggjafarinnar eru tíu kaflar að fullu hluti af EES-samn- ingnum en þrettán kaflar standa alfarið fyrir utan. Linnulausar rangfærslur ESB-sinna víkja ekki staðreyndum til hliðar. Innganga í ESB myndi þýða að við tækjum upp 100% af ESB- gerðum en ekki 13,4%. Innganga í ESB myndi þýða að allir 34 málaflokkar ESB ættu við um okkur en ekki einungis þeir sem okkur eru hagfelldastir. Staðreyndin er sú að við erum aðilar að sérsniðnum samningi sem hentar ís- lenskum hagsmunum ákaflega vel og gerir um leið að verkum að engin þörf er á inngöngu í tollabandalag ESB-ríkjanna. Gleymum því ekki að hlutfall tollskrárnúmera sem ekki bera toll hér er þannig 89,6%, en um 27% í ESB. Því myndi verð á mörgum vörum og þjónustu hér á landi hækka við inngöngu í ESB. Enginn hljóp apríl Vísað er til þess í áðurnefndri greinargerð að vegna heimsfaraldurs þurfi Ísland að „nýta öll möguleg tækifæri sem örvað geta nýsköp- un, eflt viðskipti og styrkt hagvöxt“. Með aðild að EES-samningnum njótum við fulls við- skiptafrelsis með allar vörur nema landbún- aðarvörur og hluta sjávarafurða á EES- svæðinu. Samningurinn tryggir okkur bú- setu-, atvinnu- og námsrétt í öðrum ríkjum svæðisins og mikil tækifæri eru fyrir Íslend- inga til að taka þátt í fjölmörgum samstarfs- verkefnum og það gerum við. Við njótum s.s. margvíslegs ávinnings af innri markaðnum án þess að þurfa að axla byrðarnar af ESB-aðild og þær eru stórfelldar. Ísland er fríverslunar- þjóð og við höfum fullt frelsi til þess að gera fríverslunarsamninga við önnur ríki enda er fríverslunarnet okkar víðfeðmara en net Evr- ópusambandsins. Hver skyldi annars hinn mikli hagvöxtur vera á evrusvæðinu? Jú, heil 1,27% árið 2019 og 1,84% 2018! Í dag býr Ísland hins vegar við þá ákjós- anlegu stöðu í krafti EES-samningsins að eiga greiðan aðgang að innri markaði ESB. Við getum um leið tekið okkar eigin ákvarðanir um hvernig við viljum móta samskipti okkar við þau ríki sem standa utan þess. Snemmbúið aprílgabb Viðreisnar á það sem betur fer sam- eiginlegt með flestum slíkum blekkingum að þegar undrunin er liðin hjá þá er yfirleitt þægileg tilfinning að sjá að veruleikinn og staðreyndir segja allt aðra sögu. Snemmbúið aprílgabb Viðreisnar Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Staðreyndin er sú að við eigum aðild að sérsniðnum samningi sem hentar hags- munum Íslands afar vel. Eng- in þörf er á inngöngu í tolla- bandalag ESB-ríkja. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.