Morgunblaðið - 08.04.2021, Side 34

Morgunblaðið - 08.04.2021, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 SMÁRALIND – DUKA.IS Blómapottar úr endurunnu plasti 12 cm – 1.690,- 15 cm – 2.490,- 19 cm – 3.590,- NÝTT Páll Guðmundsson palli@fi.is Hugmyndin að stofnun Ferða- félags Íslands (1927) kom frá Norðurlöndum. Stofnun félagsins var í takt við tíðarandann í land- inu, sem einkenndist af þrá eftir sjálfstæði og framförum, breyttum lífsháttum og að þjóðin var að að- laga sig að siðum og venjum ná- grannaþjóða á sem flestum svið- um. Um leið voru fleiri landsmenn áhugasamir um að vinna að and- legum þrótti og líkamlegri hreysti. Á árum áður var fátítt að menn ferðuðust um landið sér til skemmtunar. Lífsbaráttan var hörð og lítið tóm gafst til slíkra ferða. Þekking almennings á landinu var mjög af skornum skammti og því varð það eitt af aðalmarkmiðum félagsins við stofnun þess að kynna landið fyrir almenningi og greiða götu ferðafólks. Í 2. gr. laga Ferðafélags Íslands sem voru samþykkt á stofnfund- inum 1927 segir m.a.: „Tilgangur fjelagsins er að stuðla að ferðalög- um á Íslandi og greiða fyrir þeim“. Í 3. grein sömu laga er nánari skýring. Þar segir m.a.: „Vekja skal áhuga landsmanna á ferðalögum um landið, sérstaklega þá landshluta, sem lítt eru kunnir almenningi en eru fagrir og sér- kennilegir, að gefa út ferðalýs- ingar um ýmsa staði, gera upp- drætti og leiðarvísa, að beita sér fyrir byggingu sæluhúsa í óbyggð- um, og síðast en ekki síst að gefa út bækur og ritlinga um náttúru landsins, atvinnuvegi, sögu og þjóðarhætti.“ Árbók félagsins hefur nú komið út í óslitinni röð í 93 ár og er flaggskipið í útgáfustarfi félagsins. Árbók FÍ er einstakur bókaflokk- ur um land og náttúru; ein ná- kvæmasta Íslandslýsing sem völ er á, skrifuð af heimamönnum og fræðimönnum sem gjörþekkja það svæði sem fjallað er um hverju sinni. Önnur verkefni í útgáfu- starfi félagsins eru meðal annars gönguleiðarit, leiðarlýsingar, kortagerð og sérútgáfa af ýmsu tagi. Þegar í upphafi var lagður grunnur að kjörsviðum félagsins, tilgangi og markmiðum. Í dag, rúmum níutíu árum síðar, er til- gangur félagsins og markmið enn þau sömu. Stærstu verkefni fé- lagsins eru að hvetja fólk til að fara út og kynnast náttúru lands- ins, byggja upp gönguleiðir, skála og aðstöðu fyrir ferðamenn. Í 90 ára sögu félagsins hefur ekki verið haldinn fundur í stjórn félagsins án þess að ræða um kamar eða salernismál, uppbyggingu skála- svæða og gönguleiða. Uppbygging innviða er í dag stærsta verkefni þjóðarinnar þegar kemur að mót- töku erlendra ferðamanna. Náttúruvernd hefur ávallt verið á stefnuskrá félagsins. Með því að kynna og opna landið fyrir al- menningi hefur verið tekið mikil- vægt og stórt skref til að efla nátt- úruvitund fólks. Því betur sem við þekkjum náttúru landsins því vænna þykir okkur um landið og skiljum þau verðmæti sem felast í óbyggðum víðernum, landslags- heildum og öræfakyrrð; og verðum frekar tilbúin til þess að leyfa náttúrunni að njóta vafans í sam- kskiptum manns og náttúru. Þessi verkefni eru mikilvægari nú en nokkru sinni og stór verkefni fé- lagsins á næstu misserum eru að efla náttúru- og umhverfisvitund þjóðarinnar og hvetja alla til að taka vistvæn spor eins og hægt er. Öryggi, upplifun og gleði eru þau markmið sem félagið hefur sett sér fyrir ferðarekstur félags- ins. Fararstjórahópur félagsins er glæsilegur þar sem fólk kemur úr öllum áttum bæði úr röðum fræði- manna innan háskólasamfélagsins, heimamenn sem gjörþekkja hvern stein og úr hópi áhugamanna sem byggt hafa upp reynslu og þekk- ingu; en allur þessi hópur á það sameiginlegt að elska landið og hafa yndi af ferðum og miðlar af þekkingu sinni og fróðleik, ýmist um náttúru, sögu, gróðurfar eða dýralíf. Í einni árbók félagsins á upphafsárunum segir á skemmti- legan hátt um ferðareglur; „ef þú vilt hafa gaman í ferð reyndu þá að vera hress sjálfur og sýndu úr hverju þú ert gerður ef á móti blæs.“ Um leið er það besta regla hvers ferðamanns að snúa frá ef aðstæður eru ótryggar, veðurspá vond eða óvissa um aðstæður. Við getum alltaf komið seinna; fjöllin, dalirnir og árnar fara ekki frá okkur. Ferðafélag Íslands er áhuga- mannafélag. Sjálfboðaliðastarf hef- ur í áratugi gert starf félagsins mögulegt. Sjálfboðaliðarnir og for- ystufólk félagsins hafa verið frum- kvöðlar og hugsjónafólk. Fólk með stóra drauma og framtíðarsýn. Þannig hafa verið byggðir 40 fjallaskálar og skálasvæði, lagðir tugir gönguleiða, reistar yfir 60 göngubýr og farnar yfir 4.000 ferðir með yfir 250.000 þátttak- endum. Segja má að þetta starf fé- lagsins hafi einkennst af sam- félagslegri ábyrgð í þágu almennings og þjóðarinnar. Nú líður að sumri og ekki seinna vænna að skipuleggja ferðalög sumarsins. Frumkvöðlar með hugsjónir og framtíðarsýn Hugmyndin að stofnun Ferðafélags Íslands (1927) kom frá Norður- löndum. Stofnun félags- ins var í takt við tíðar- andann í landinu, sem einkenndist af þrá eftir sjálfstæði og fram- förum, breyttum lífs- háttum og að þjóðin var að aðlaga sig að siðum og venjum nágranna- þjóða á sem flestum sviðum. Um leið voru fleiri landsmenn áhuga- samir um að vinna að andlegum þrótti og lík- amlegri hreysti. Ljósmynd/FÍ myndabanki Um miðja öld Við skála FÍ í Landmannalaugum, mynd tekin upp úr 1950. Langidalur, Þórsmörk Framundan er endurnýjun og uppbygging innviða. Ferðalög á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.