Morgunblaðið - 08.04.2021, Qupperneq 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
✝
Sigrún Stein-
grímsdóttir
fæddist í Reykjavík
27. febrúar 1938.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Hrafnistu við
Sléttuveg 26. mars
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Ingunn
María Friðriks-
dóttir, f. 13. janúar
1915, og Steingrímur Sigurðs-
son, f. 21. maí 1915. Þau skildu.
Systir Sigrúnar sammæðra er
Erla Steingrímsdóttir, f. 29.
nóvember 1936.
Systkini samfeðra eru: Magn-
ea, Ingibjörn (látinn), Sveinn
Vernharð, Mónika Björg, Magn-
ús Hannes og Edvin.
Sigrún giftist Grétari Hann-
essyni 11. apríl 1958, f. 9. apríl
1937, d. 22. júlí 2012.
Börn þeirra:
1. Jónína Björg, f. 11.08. 1957,
maki Þóroddur Sveinsson, f.
01.08. 1956, synir þeirra:
a) Gunnar, maki María Sigríð-
ur Kjartansdóttir, börn þeirra
sinni, á Ránargötunni og Grett-
isgötu 20C.
Skólagangan var stutt, hún
lauk unglingaprófi og fór svo að
vinna fyrir sér. Var í vist og fór
svo að vinna á saumastofunni
Föt hf., þar vann hún við karl-
mannsfatasaum og kom það sér
vel seinna. 16 ára kynnist hún
Grétari og byrja þau búskap á
Grettisgötunni, en lengst af
bjuggu þau í Skriðustekk 3 í
Breiðholti. Móðir Sigrúnar bjó
alla tíð hjá þeim. Sigrún saum-
aði alls konar flíkur fyrir frænk-
ur o.fl. og drýgði þannig tekj-
urnar, einnig skúraði hún í
versluninni Straumnesi, þar sem
Grétar vann, fyrst á Nesveg-
inum, en seinna í Efra-Breið-
holti þegar verslunin flutti. En
1987 fer hún að vinna á leikskól-
anum Bakkaborg, þar til hún fór
á eftirlaun 2005.
Hún var mikil hannyrðakona
og einstaklega handlagin og fátt
sem hún gat ekki gert, allt frá
því að þræða nál og gera við
bíla.
Útförin fer fram frá Selja-
kirkju í dagklukkan 13. Í ljósi
aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir en út-
förinni verður streymt:
https://www.streyma.is
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
Kjartan Breki, Al-
var Brandur, Grét-
ar Ingi og Kara
Rún.
b) Snorri Sveinn,
maki Þórey Alda
Pálsdóttir, synir
þeirra, Þóroddur
Páll og Víkingur
Jens.
2. Hannes Svan-
ur, f. 29.09. 1959,
maki Helga Marta
Helgadóttir, f. 07.12. 1961, synir
þeirra:
a) Grétar, maki Edda Ósk
Ólafsdóttir.
b) Hermann, sambýliskona
Henný Lindquist, dóttir þeirra
Freyja Nikki.
c) Anton Helgi, sambýliskona
Ingunn Lára.
3. Ingvar, f. 12.11. 1963, maki
Vigdís Þórisdóttir, f. 28.10.
1963, sonur þeirra Þórir, maki
Júlía Bjarney Björnsdóttir.
4. Margrét, f. 01.11. 1971,
maki Guðjón Guðjónsson, f.
09.06. 1966.
Sigrún ólst upp hjá móður
sinni, ömmu og Erlu systur
Elsku mamma mús, mikið er
það skrýtið að kletturinn og hlýi
faðmurinn sé farinn.
Ég á eftir sakna svo margs en
fyrst og fremst hlýjunnar, vænt-
umþykjunnar og samverunnar.
Þú varst með stórt hjarta og
máttir ekkert aumt sjá, þú lað-
aðir að þér börn og dýr sem
þótti afskaplega gott að fá að
kúra hjá þér.
Við ferðuðumst mikið um
landið þegar ég var lítil og þú og
pabbi vissuð fátt skemmtilegra
en að bruna um vegi landsins
með toppgrindina hlaðna og all-
an útilegubúnaðinn í hentugum
skjóðum sem að sjálfsögðu voru
heimasaumaðar af natni og út-
sjónarsemi, það lék allt í hönd-
unum á þér hvort sem það var
eitthvað sem sneri að sauma-
skap eða bílasprautun, þú saum-
aðir kjóla, gardínur, tjaldhimna
eða hvað sem var fyrir fjöl-
skyldu og vini og stundum
fannst mér nóg um og skreið þá
undir borð og kippti saumavél-
inni úr sambandi og tilkynnti að
það yrði ekki saumað meir í dag.
Ég rak hálfgerða félagsmið-
stöð heima í Skriðó á unglings-
árum og allir voru velkomnir og
þið pabbi kipptuð ykkur ekkert
upp við þó að einhver fengi að
gista til lengri eða skemmri
tíma, þið voruð vinir vina minna
og yfirleitt gengu þau beint inn í
stofu skelltu sér í sófann til að
ræða heimsmálin við ykkur og
oft sótti ég þau til að athuga
hvort þau hefðu ætlað að hitta
mig eða ykkur.
Við vorum alla tíð miklar vin-
konur og heyrðumst á hverjum
degi stundum oft á dag, ég á ótal
minningar um samverustundir
sem ylja nú.
Ég veit að nú stígur þú dans
með pabba sem þú saknaðir alla
tíð eftir andlát hans enda voruð
þið sérlega samrýnd og sam-
stíga og ást ykkur hvort til ann-
ars svo falleg.
Elsku mamma mín, ég elska
þig og bið þess að nú sértu sam-
einuð þeim sem á undan hafa
farið, ég veit að ég fæ ekki hlýju
faðmlögin þín eða fallegu orðin
þín aftur en ég á þau í hjarta
mér.
Takk elsku mamma fyrir að
vera svona ljúf og kærleiksrík,
sakna þín og sendi þér stórt
knús.
Þín dóttir og örverpi,
Margrét Grétarsdóttir.
Elsku besta mamma mín, ég
vona að pabbi hafi tekið vel á
móti þér í Sumarlandinu og þið
búin að fá ykkur snúning. Það
var alltaf gaman að sjá ykkur
tjútta. Margar minningar koma
í gegnum hugann, þú alltaf að
sauma fyrir frænkurnar alls
konar kjóla, kápur o.fl. en við
nutum líka góðs af saumum þín-
um, allar fallegu flíkurnar sem
þú saumaðir á okkur og vinkon-
ur mínar trúðu stundum ekki að
ég væri í heimasaumuðu.
Stundum þegar ég vaknaði á
morgnana var stóra dúkkan eða
Barbie búin að fá ný föt. Þú
saumaðir líka jakkaföt og
smóking á pabba, yfirdekktir
sófasett og breyttir, gerðir við
fyrsta bílinn sem þið pabbi
eignuðust og sprautaðir hann
líka. Það lék allt í höndunum á
þér og ófá eru útsaumsstykkin
og prjónuðu flíkurnar sem þú
gerðir.
Þú varst líka góð amma og
langamma og prjónaðir fallegar
flíkur handa þeim. Þú varst allt-
af til í að spila eða leika við
ömmustrákana. Oft var fjör í
kotinu, þegar þeir gistu hjá þér,
stundum allir í einu, þá var flat-
sæng í stofunni svo hægt væri
að horfa á Stellu í orlofi, sem
var alltaf horft á í ömmu- og
afahúsi. Þú og pabbi komuð í
orlof til okkar á sumrin, þegar
ég bjó á Möðruvöllum í Hörg-
árdal og voruð í 2-3 vikur. Þá
var farið að veiða í Hörgá,
heimsóknir til frændfólksins
fyrir norðan og í bíltúra um all-
ar sveitir. Þú studdir líka pabba
í félagsstarfi hans, sem var
Kiwanis-klúbburinn Elliði, en
hann var einn af stofnfélögun-
um, þið fóruð að ég held á nán-
ast allar samkomur hjá klúbbn-
um og höfðuð gaman af.
Björg vinkona þín var dugleg
að koma til þín eftir að pabbi
lést. Hún var gift Einari (d.
1997) vini pabba og voru ófáar
útilegur, ferðalög og heimsókn-
ir þeirra, þegar ég ólst upp. En
Björg lést 16. mars sl. Þær
höfðu ekki hist mikið sl. ár, en
talað saman í síma. Alltaf spurði
mamma eftir Björgu vinkonu
sinni og saknaði hennar mikið
síðastliðið ár.
Þú varst rétt flutt á Hrafnistu
við Sléttuveg, í mars 2020, þegar
öllu var skellt í lás og við hitt-
umst ekki aftur fyrr en í maí,
það var mjög erfiður tími. Alz-
heimers-sjúkdómurinn var bú-
inn að stríða þér í nokkur ár en
versnaði mikið síðastliðið ár, en
þú þekktir okkur alltaf og
spurðir alltaf um allt sem við-
kom hverju okkar. En þú varst
orðin ansi týnd og okkur þótti
það erfitt þín vegna.
Takk fyrir allt, elsku besta
mamma mín.
Þín
Jónína (Ninna).
Með andláti Rúnu, eins og
hún var alltaf kölluð, má segja
að farinn sé síðasti hlekkurinn
sem tengdi mig við föðurfjöl-
skyldu barnæsku minnar. Rúna
var gift Grétari Hannessyni,
sem var einn af þremur bræðr-
um föður míns, Guðjóns H.
Hannessonar, en allir eru þeir
bræður látnir.
Samgangur fjölskyldna var
annar hér á árum áður, þegar
ekkert sjónvarp var og fólk
droppaði inn í kvöldkaffi eða
heimsóknir á virkum dögum eða
um helgar. Það var alltaf spenn-
andi þegar Rúna og Grétar
komu í heimsókn, því þá ómaði
húsið af skemmtilegu sögunum
hans Grétars og dillandi hlátr-
inum hennar Rúnu.
Fyrir utan reglulegar heim-
sóknir og afmælis- og jólaboð
skiptust bræðurnir, eða kannski
öllu heldur eiginkonur þeirra, á
um að passa hvor fyrir aðra. Ell-
efu ára gömul var ég í pössun
hjá Grétari og Rúnu, ásamt
rúmlega ársgömlum bróður
mínum, í tvær vikur meðan for-
eldrar okkar fóru í ferðalag til
Danmerkur með vinahjónum
sínum. Og meðan Rúna lá á
sæng eftir að hafa átt Hannes
Svan var Jónína Björg (Ninna) í
pössun heima hjá foreldrum
mínum.
Dvöl mín inni á heimili Rúnu
og Grétars styrkti böndin við
þau enn frekar, en nokkrum ár-
um síðar skildu foreldrar mínir
og þá var eins og við skildum
líka við föðurfjölskylduna, svo
samgangurinn datt nánast alveg
niður.
Gamlir þræðir milli fólks
slitna þó seint, svo tengingin
hélt áfram að vera til staðar,
þótt við hittumst sjaldnar. Eftir
að Grétar lést rakst ég oft á
Rúnu í matvöruversluninni sem
við báðar versluðum í og alltaf
var hún jafn brosmild og elsku-
leg.
Í smá glufu í Covid-ástandinu
á síðasta ári náði ég að heim-
sækja Rúnu á Sléttuveginn, en
þá var hún komin á hjúkrunar-
heimili Hrafnistu.
Minnistapið hafði ekki alveg
yfirtekið huga hennar, svo við
gátum rifjað upp gamlar og góð-
ar minningar frá fyrri árum.
Þrátt fyrir veikindin var dillandi
hláturinn enn til staðar og
glettnin í augunum.
Fyrir nokkrum vikum heim-
sótti hún mig svo í draumi, full-
komlega heilbrigð og hress,
brosandi út að eyrum og faðm-
aði mig svo innilega að sér. Ég
hafði samband við Ninnu daginn
eftir, til að kanna hvort hún væri
nokkuð búin að kveðja þetta til-
verustig. Svo var ekki þá, en nú
hefur hún gert það. Hvar sem
hún er veit ég að hún er bros-
andi og glöð, líkt og hún var í
draumnum.
Þegar móðir manns kveður
myndast alltaf mikið tómarúm,
því hún hefur verið staðfasti
hlutinn í tilveru okkar frá fæð-
ingu. Ég votta ykkur systkinun-
um Jónínu Björgu, Hannesi
Svani, Ingvari og Margréti sam-
úð mína, svo og mökum ykkar,
börnum og barnabörnum.
Guðrún Bergmann.
Sigrún
Steingrímsdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
VALGERÐUR HANNESDÓTTIR,
Vallý,
leikskólakennari,
Höfðahlíð 9, Akureyri,
lést laugardaginn 3. apríl á Sjúkrahúsi Akureyrar.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju á Akureyri mánudaginn 19. apríl
klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins
nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfnin verður send út í
gegnum Facebook-síðu, jarðarfarir í Glerárkirkju - beinar
útsendingar.
Haraldur Helgason
Halldóra Kristjánsd. Larsen
Theódór S. Haraldsson María Sigurlaug Jónsdóttir
Hulda Haraldsdóttir Karl Ingi Björnsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEFANÍA SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Miðvangi 4, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 31. mars á hjúkrunar-
heimilinu Grund.
Útförin verður auglýst síðar.
Anna María Flygenring Tryggvi Steinarsson
Súsanna S. Flygenring
Sigurður Flygenring
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir
og systir,
SÓLEY ÓMARSDÓTTIR
barnalæknir,
lést 1. apríl á sjúkrahúsi í Stokkhólmi eftir
áralanga baráttu við krabbamein.
Guðjón G. Kárason
Ómar Kári Guðjónsson Sara Tanner
Íris María Guðjónsdóttir Sara Kristín Guðjónsdóttir
Ragnheiður Blöndal Ómar Kjartansson
Róbert Ómarsson Anna Thorsell
Saga Ómarsdóttir Matthías H. Johannessen
Sturla Ómarsson Anna Hulda Sigurðardóttir
Kjartan Már Ómarsson Inga Maren Rúnarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, ævintýralegi faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
HANS JÓN BJÖRNSSON,
Enghavevej 4,
Jordløse, Danmörku,
lést af slysförum á heimili sínu 25. mars.
Hans og hans einstöku frásagnargáfu er sárt saknað.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey sökum heimsfaraldursins.
Þegar aðstæður leyfa verður haldin erfidrykkja á Íslandi.
Lykke, börn, tengdabörn og barnabörn
Okkar kærleiksríka móðir og tengdamóðir,
MARGRÉT JÓNA ÍSLEIFSDÓTTIR,
Hvolsvegi 19, Hvolsvelli,
sem lést 30. mars, verður jarðsungin frá
Stórólfshvolskirkju föstudaginn 9. apríl
klukkan 14 að viðstaddri nánustu fjölskyldu.
Streymt verður frá útförinni, https://www.facebook.com/groups
/jardarformargretarisleifsdottur
Guðríður Björk Pálmadóttir
Ingibjörg Pálmadóttir Haraldur Sturlaugsson
Ísólfur Gylfi Pálmason Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir minn, sonur, bróðir, frændi
og mágur,
PÉTUR ÁSKELL SVAVARSSON,
lést 1. apríl.
Útför hans fer fram í Digraneskirkju
mánudaginn 12. apríl klukkan 15.
Í ljósi aðstæðna verða því miður einungis hans nánustu
aðstandendur viðstaddir.
Streymt verður beint frá athöfninni á slóðinni
https://www.digraneskirkja.is/
Hrefna Sóley Pétursdóttir
Aðalheiður Steinarsdóttir
Jóhanna K. Svavarsdóttir Eva Valdís Jóhönnudóttir
Svavar Kári Svavarsson Ester Rán Ómarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÍSAK MÖLLER,
Rauðási 1, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 31. mars.
Steinunn Bárðardóttir
Bárður Eyjólfsson
Ragnar Örn Möller
Ebba Sif Möller Haraldur G. Guðmundsson
Aníta Björk, Kristófer Ísak
og Guðmundur Gunnar
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
ÓLÖF HANNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Brákarhlíð, Borgarnesi,
lést í Brákarhlíð aðfaranótt 6. apríl.
Gunnhildur J. Halldórsdóttir Sigurður Ö. Jónsson
Þ. Birna Halldórsdóttir G. Oddgeir Indriðason
Magnús P. Halldórsson Sigurlín S. Sæmundsdóttir
Halldór S. Halldórsson Þórunn G. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn